Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Qupperneq 3
Haraldur Björnsson, shipherra:
Varðbátarnir ern ofi litllr
til björgunar
Þriðjudaginn 15. janúar 1952 sökk vélbátur-
inn Bangsi frá Bolungarvík, 7 sjómílur N. af
Rit, er brotsjór reið yfir bátinn og braut hann
svo, að hann fyllti af sjó og sökk skömmu
síðar. 2 menn tók' út af bátnum og drukknuðu
þeir báðir, en 3 mönnum varð bjargað á síð-
asta augnabliki, með því að leggja bæði skip
og menn í mikla hættu. Veður var gott fram
eftir deginum. En er líða tók að kvöldi, fór
að hvessa af NA. Voru bátar á sjó úr Djúp-
inu. Meðal þeirra var vélbáturinn Bangsi frá
Bolungarvík, 41 tonn að stærð og talinn góður
bátur. Kl. 17,00 kallaði togarinn Austfirðingur
í björgunarskipið Maríu Júlíu og tilkynnti, að
vélbáturinn Bangsi I. S. 80 bæði um aðstoð,
þar eð hann væri með brotna skrúfu, og þá
staddur 15 sjómílur N.A. frá Rit. Var björg-
unarskipið þá statt inni í ísafjarðardjúpi og
heyrðist illa í talstöð Bangsa, en vel, þegar
utar kom. Var strax brugðið við, og siglt fulla
ferð í áttina til bátsins. Veður var versnandi
og komin blindhríð. Togarar voru komnir upp
undir land í skjól og hættir veiðum, og bát-
arnir allir á landleið, þeir, er ekki voru þegar
komnir í höfn. Létu nokkrir togarar reka inn
með Grænuhlíð í skjóli þar. Þegar út að Rit
kom, var byrjað að taka radiómiðanir af
Bangsa frá björgunarskipinu. Heyrðist þá vel
til hans. Miðanir voru svo teknar alla leið út.
Þegar út fyrir Rit var komið, varð að minnka
ferð skipsins, því sjólag fór ört versnandi og
brotsjóar skullu á öðru hvoru. Við það reyndi
mikið á skipið. Var norðurfall og gerði það
sjólagið enn verra. Ekkert sást út frá skipinu
fyrir blindhríð og náttmyrkri. Veðrið herti
óðum og litlu síðar var komið rok af NA. 11
vindstig, þreifandi bylur og sjódrif. Þegar utar
kom, var veður og sjór orðið það mikið, að
tekið var það ráð að dæla olíu í sjóinn til þess
að verjast verstu áföllunum. Kl. 22,30 kallaði
Bangsi út, og segir mikinn sjó kominn í bát-
inn og biður um að koma til hjálpar. Voru þá
skipin farin að nálgast hvort annað. Var þá
strax sett á fulla ferð og olía stöðugt látin
renna í sjóinn. Kl. 20,43 var komið að Bangsa.
Rétt áður sáust ljósin frá honum, þar eð hann
var með sterk ljós uppi, en þau hurfu svo allt í
einu, og við lá, að báturinn tapaðist alveg út
í myrkrið. En björgunarskipið var rétt að
komast að honum og búið að taka á hann
beina stefnu, svo að hann fannst aftur. Þegar
sjórinn komst niður í Bangsa, slokknuðu öll
Ijósin og talstöðin fór úr sambandi, svo að
ekki heyrðist meir í henni. Varð þá alveg sam-
bandslaust við bátverja. Þannig var ástatt,
þegar björgunarskipið kom að Bangsa, að hann
var kominn að því að sökkva og maraði í
sjónum allur brotinn ofanþilja og öllu skolað
fyrir borð. línu, bölum og belgjum og því, er
brotnaði ofan af bátnum, og rann sjórinn nið-
ur í bátinn. Enginn tími var til umhugsunar,
hvernig bjarga skyldi mönnunum úr hinum
sökkvandi bát. Það varð að gerast strax, ef
takast mætti. Var það ráð því tekið, að leggja
björgunarskipinu að hlið hins sökkvandi báts
og freista að ná mönnunum þannig, þótt ekki
væri það árennilegt, eins og aðstæður voru,
því að við það varð að leggja bæði skip og
menn í mikla hættu, og ef illa tækizt, þá var
ekki gott að segja, hvað skeð gæti. Var nú
björgunarskipinu rennt að Bangsa hlémegin
við hann, og um leið og skipin voru hlið við
hlið, stukku mennirnir yfir í björgunarskipið.
Tókst þetta strax og fljótt. Komust allir slysa-
laust yfir, nema einn. er meiddist dálítið á
öðrum fætinum, en þó ekki alvarlega. Þegar
skipin lágu saman, brotnaði öldustokkur björg-
unarskipsins dálítið, en aðrar skemmdir urðu
ekki. Um leið og mennirnir voru komnir yfir,
fóru allir af þiljum og niður í skipið, og var
siglt frá Bangsa. Síðan var leitað að 2 mönn-
um af bátnum, er brotsjórinn tók út. Var leit-
að fram eftir kvöldinu, en árangurslaust. Sást
aldrei meir til þeirra. Línur, belgir og balar
voru á reki allt umhverfis björgunarskipið,
meðan leitað var og því hætta á, að línan færi
í skrúfu skipsins. Bangsi hvarf strax út í
myrkrið og bylinn, kominn að því að sökkva.
V I K I N G U R
97