Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Qupperneq 23
ingar sækja Borgnesinga í vinnu. — Landþurrkun á Álftanesi með fyrir- hleðslu við Bessastaðatjörn. Níu stór- virkar jarðýtur unnu að því að loka tjarnarósnum í fyrradag. • 25/4. Landhelgislínan hefur verið merkt með Ijósum, þar sem langt er til lands. • 28/4. Stálsmiðjan smíðar fyrsta skipið, sem hér hefur verið gert úr stáli. Samningar undirritaðir um smíði dráttarbáts hafnarinnar. Verð- ur sennilega tilbúinn fyrir árslok 1954 og mun kosta rúmlega 6,4 millj. króna. Varð sænskur ráðherra, Hammar- skjöld, fyrir valinu. - 2/4. Mikill hafís við Jan Mayen. • 8/4. 96 menn farast, er tyrkneskur kafbátur sekkur. 22 af áhöfninni biðu dauða síns í 8 klst. — Góðar horfur á að samningar takist um skipti á sjúkum og særðum föngum í Kóreu. • 9/4. Sameinuðu þjóðirnar kveðja Tryggve Lie. — Síldarvertíðinni er lokið í Noregi. — Færeyingum hefur tekizt að koma síld sinni inn á . Bandaríkjamarkað. 29/4. Til mála hefur komið, að beituskurðarvélar frá Borgarnesi verði fluttar út til Færeyja. — Helm- íngur íbúanna á Sauðárkróki hefur veikzt af inflúenzu. — Mjólkurbílar voru 15 tíma frá Dalvík til Akur- eyrar, en það er 40 min. leið í snjó- lausu. — Unglingar úr skólum teknir til að vinna við fisk á Isafirði. — Flugvélar flytja beitu í heilum förm- um norður í Skagafjörð. Þorskanetja- veiði gefst vel í Skagafirði. • 30/4. Geymslur vinnslustöðvanna fullar af óseldum fiski frá fyrra ári. Mikið af afla Vestmannaeyjabátanna lá undir skemmdum af þeim sök- um. — Mokafli af steinbít og rækjum á Bíldudal. Hásetahlutur í apríl um 10 þúsund krónur. Kvenfólk kemst upp í 1500 krónur á viku. ERLENDAR FRÉTTIR. 1/4. Nú virðist síðasta steini rutt úr vegi fyrir vopnahléi í Kóreu- styrjöldinni. Éínverjar fallast nú á indversku tillöguna, sem þeir áður höfnuðu. — Stórfelld verðlækkun á matvælum og öðrum neyzluvörum í Sovétríkjunum. — Samkomulag hef- ur orðið í SÞ um eftirmann Lies. 10/4. Enskar þrýstiloftsvélar fá ekki lendingarleyfi í USA. — Elzta frímerki í heiminum fundið. Er það frá árinu 1385. — Sovétbeitiskip fer til Bretlands í sumar til að taka þátt í alþjóðlegri flotasýningu til heiðurs Elísabetu Bretlandsdrottningu, þeg- ar hún verður krýnd. — Samningar um skipti á sjúkum og særðum föng- um í Kóreu tilbúinn til undir- skriftar. — Hammarskjöld er kom- inn til New York. • 11/4. Hammarskjöld hefur verið settur inn í embættið. — Fimm ára samningur Dana og Norðmanna um fiskveiðar við Grænland hefur verið gerður. Danir segjast vilja greiða götu norskra og færeyskra fiski- manna. • 12/4. Bandaríkjamenn tregðast við að hefja viðræður um vopnahlé. Samningurinn um skipti á sjúkum og særðum stríðsföngum undirrit- aður. • 14/4. Aukin viðskipti Austur- og Vestur-Evrópu á vegum SÞ. — Sára- lítil selveiði hefur verið hjá norsku selföngurunum. — Ágreiningur milli USA og Bretlands um hveitiverð. — Iskyggilegt er, hve mjög lungna- krabbi hefur farið í vöxt í heiminum á síðustu árum. • 15/4. Aukin fisksala til ítaliu frá Noregi. — Þriðjungi útgjalda Breta á næsta ári varið til hermála. — Brezk flugvél rýfur lofthelgi Svía. • 19/4. Vopnahlésnefnd SÞ er farin til Kóreu. — Japanskt hvalveiðamóð- urskip, 50 millj. króna virði, skilið eftir í ísnum. Er flotinn hættur veið- um og farinn heim. • 21/4. Krónprins Friðrik, danska farþegaskipið, eyðilagðist af eldi í gærkvöldi. — 15 ára drengur á hrakn- ingi í 74 sólarhringa. Bjargaðist hann ásamt einum skipverja öðrum. Lentu þeir í hrakningum á Indlandshafi í opnum báti. Hann horfði upp á föð- ur sinn deyja ásamt sjö öðrum skips- mönnum. — Skipti á sjúkum og særðum föngum í Kóreu hófust i gær. • 22/4. SAS lætur illa yfir sam- keppni Loftleiða á flugleið Norður- Atlantshafsins. 25/4. Talið er, að Iíínverjar auki hernaðarhjálp til Indó-Kína. — Þorskstofninn við Vestur-Grænland hefur ekki nægilegt æti. Norðmenn hyggjast telja selina á vesturísnum. — Færeyingar hafa nú fengið aukin réttindi á norskum fiskiskipum og geta nú látið tryggja sig eins og norskir starfsbræður þeirra. — Bret- ar reyna að komast að samkomulagi við Rússa um ýmis deilumál. Þar á meðal eru fiskveiðar Breta innan rússneskrar landhelgi. • 28/4. Kuldasvæði nær yfir alla Vestur- og Mið-Evrópu. Er tiltölu- lega mildast á SV.-Grænlandi. — Tryggve Lie flytur kveðjurræðuna hjá SÞ. — Setulið Breta á Bermuda- eyjum kvatt heim. — Svar Rússa við tillögum Eisenhowers gefur veika von um frið. Þeir vilja ræða sum deilumálin, en alls ekki önnur. • 29/4. Sjómannadeilan færeyska er nú loks leyst, og er þar með lokið harðasta og langvinnasta verkfalli þar í landi. — Hörð stjórnmáladeila í Finnlandi. — Rússneskri tillögu um fimmveldafund kuldalega tekið í Evrópu. V I K I N G U R 117

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.