Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Blaðsíða 7
ZJndan Hornbjargi.
biskup góði með sitt flökkulið undan ofríki
Sturlunga.
Tveim árum áður en ég kom til Húsavíkur,
eða vorið 1919, fóru nokkrir Húsvíkingar að
stunda veiðar í eynni með þorskanet á tíma-
bilinu frá miðjum apríl og fram til 20. maí.
Gekk þorskurinn grunnt upp að eynni og inn
í víkurnar og gaf veiðin góðan arð til ársins
1925, að dragnótabátar voru einnig komnir á
þessar slóðir og spilltu henni. Húsvíkingar
héldu áfram að stunda róðra frá Grímsey á
vorin, breyttu veiðiaðferð og fóru með línu á
hin dýpri og fjarlægari mið og gafst sæmilega
næstu fimm ár, en svo komu útlendu togararnir,
einkum brezkir, á miðin og þá var ekki lengur
á þau sækjandi fyrir innlendu bátana. Á þeim
árum var í Grímsey stórt hundrað manns heim-
ilisfast, auk þeirra, sem við lágu á vorin. Nú
munu eyjarskeggjar vera um sjötíu, og haldi
svona áfram fækkuninni og brottflutningi úr
eynni, má búast við því að Grímsey verði hin
íslenzka St. Kilda.
Norðvesturland og Vestfirðir.
Vík ég mér vestur fyrir Strandir og verða
þá á leið minni frá Horni að Ritnum þessar
víkur: Hornvík, Hlöðuvík, Fljót og Aðalvík,
sem áður voru fiskisæl útræði, Aðalvík um
300 manna verstöð og hreppur, en nú eru þær
allar í eyði, mestmegnis sökum aflaleysis, og
verður Slysavarnafélag Islands að halda við
skipbrotsmannaskýlum á þessum stöðvum, svo
mannlaust er þar orðið.
Er þá komið að /safjaröardjúpi, en það er
merkast allra fjarða landsins sökum þess, að
þar var fyrst sett mið við ísland, er nefnist
Kvíarmið og setti það landnámskonan Þuríður
sundafyllir, sem fór frá Hálogalandi til Is-
lands, ásamt syni sínum, Völu-Steini, og nam
Bolungarvík og bjó í Vatnsnesi. Fyrir stað-
setninguna tók hún til á kollótta af hverjum
bónda á ísafirði, og mun ekki of goldið, því
sjaldan eða aldrei hefur mið þetta brugðizt,
sem lesa má í Sturlungu, en þar segir, að til
landauðnar hafi horft við ísafjörð árið 1236
„áðr fiskr gekk upp á Kvíarmið“.
En horfir nú ekki til landauðnar þar, þrátt
fyrir „Kvíarmið"? Guðmundur H. Guðmunds-
son, Engjaveg á ísafirði, svarar spurningum
V I K I N G U R
1G1