Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Blaðsíða 13
Hetirih Thorlacius: Lokadagurinn — Slysavarnadagurinn Grein þessi átti aí! birtast 1 einu af dagblöðum Reykja- víkur, en hún fann ekki náð fyrir augllti ritstjómar. „Sá einn er öruggur fyrir hættunrvi, sem ér á verði gegn henni — jafn- vel þótt hann telji sig öruggarí'. S y r u s. Sjósókn og siglingar hér á landi eru jafn- gamlar þjóðinni. Landnámsmennirnir, forfeður okkar, komu yfir sollinn sæ á knörrum sínum og langskipum. Friðsamlegar siglingar urðu, þá þegar, stór þáttur í uppþyggingu íslenzka þjóðfélagsins á þernskuárum þess. Islenzka þjóðin varð því, þegar frá upphafi, nátengd hafinu, sem umlukti land hennar. Eftir því sem tímar liðu, og verkaskiptingin varð greinilegri með þjóðinni, myndaðist hér hópur manna, er kaus sér það hlutskipti að eyða ævi sinni á sjónum — hér hafði myndazt sjómannastétt. Lega landsins krafðist hraustra drengja, er sæktu gull í greipar Ægis eða færðu björg í bú frá fjarlægum löndum. Og íslenzkir sjómenn brugðust ekki skyldu sinni. í átökum við grimm náttúruöfl, drýgðu þeir dáðir sínar — oft og einatt fjarri ást- vinum sínum og fósturjörð. Starfið kenndi þeim þolgæði. Náin sambúð við hætturnar gaf þeim æðruleysi. Á örlagastundum hefir þjóðin skilið gildi sjómannastéttar sinnar og kunnað að meta hana. Allt frá styrjöldum Napóleons mikla, hafa íslenzkir sjómenn boðið hættum stórvelda- styrjalda birginn. Þeir hafa siglt méð afla sinn á erlenda markaði í tveimur heimsstyrjöldum og fært heim varning, er þjóðin gat trauðla án verið. Á myrkum og köldum nóttum, þegar þeir, sem á landi eru, geta notið öryggis og hvíldar, plægja íslenzkir sjómenn heimshöfin eða stunda veiðar á miðum nær og fjær, og mæta þar erfiðleikum og hættum, sem við hin þekkjum ekki nema af fréttum og afspurn. Allt þetta ber að þakka, svo sem vert er. En hefir það verið þakkað og virt svo sem vera bæri? Við neyðumst til að svara því neit- andi. Sjómönnum hefir að vísu verið búinn eins konar tyllidagur — sjómannadagurinn — þar VÍ K I N G U R sem menn, er ekki koma nærri sjó. hafa sett svip á daginn og rómað mjög ágæti sjómann- anna íslenzku. sem þeir hafa naumast vitað af endranær. Þenna eina dag á árinu eru sjómennirnir hetjur hafsins, í munni þessara manna — en því miður víst þenna eina dag. Sannleikurinn er sá, að sjómannadagurinn er því miður tild- ursdagur þeirra, er ekki koma nærri sjó. Það eru vitanlega sjómennirnir sjálfir, sem eiga algjörlega að setja svip sinn á sjómanna- daginn. Þetta er þeirra dagur, rétt eins og 1. maí er verkalýðsdagur. Á þessum degi eiga sjómenn að kynna áhuga- mál sín, og vitanlega ættu útgerðarfélögin að reyna að haga siglingum skipa sinna þannig, að sem flest þeirra gætu verið í höfn á sjó- mannadaginn. Þegar við höfum hugleitt erfiðleika sjómann- anna okkar, — þegar við hugsum um hið þjóð- nýta starf, sem þeir inna af höndum, og hætt- ur þær, sem því eru samfara, þá er rétt að hugleiða, hvað landsmenn geta gert, hver og einn, til þess að bæta þeim lítillega það harð- rétti, sem atvinna þeirra býr þeim oft og einatt. Og okkur býðst alveg einstakt tækifæri, en það er að styrkja Slysavarnafélag Islands. Slysavarnafélagið hefir valið lokadaginn til fjáröflunar, og er það vel til fallið, því að sá dagur hefir jaf'nan haft, og hefir enn, sérstakt gildi í atvinnulífi þ.jóðarinnar. Honum hafa oft fylgt bjartar vonir. Hér í Reyk.iavík er það Slysavarnadeildin Ingólfur, sem annast fjáröflunina, en allt það fé, sem inn kemur fyrir merkjasölu og söfnun, rennur til stjórnar Slysavarnafélags íslands, er ráðstafar því svo á þá staði á landinu, þar sem þörfin er mest hverju sinni, því að enda þótt mikið hafi áunnizt hjá Slysavarnafélagi Islands, og það hafi lyft Grettistaki í þau 25 ár sem bað hefir starfað. þá liggja enn fyrir 107

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.