Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Side 8
mínum m. a. á þessa leið: „Hvað viðvíkur hinni nýju friðunarlínu, gerir hún engan mismun á friðun fiskimiða hér nema á svæðinu í álnum, þar útilokar hún alla dragnótaveiði. Togbátar gátu áður farið í álnum inn á svo- nefnt Kvíarmið og töluvert innar, en eftir lok- unina geta þeir ekki farið nema á Kögurtrýni og inn undir Eldingar á vestri kanti. Það munar miklu fyrir smæri'i línubáta. Út af Patreksf jarðarflóanum verður nokkur rýmk- un, og er það von okkar hér vestra, að það hjálpi sunnangöngum á vorin, ef varðskip væri haft á svæðinu um það leyti, sem fiskur gengur, en misbrestur hefur orðið á því eftirliti hingað til. Ekkert eftirlit eftir mánaðamót marz— apríl. Togaraágengnin virðist meiri hér síðan Breiðifjörður og Faxaflói lokuðust". Þá hefur Páll Pálsson í Hnífsdal gefið mér glöggar lýsingar á þremur miðum við eða í Djúpinu, auk þess sem hann um „Bolvíkinga- mið“ vísar til bls. 36 í hinni merku bók Jóhanns Bárðarsonar, „Áraskip". Segir hann um miðið inn með Straumnesi: „Á þetta svæði gekk fisk- ur mjög oft upp að landsteinum“. Um þriðja miðið, sem hann nefnir „aðal vetrarmið Djúp- manna“, segir: „Var þar stundum svo ör fisk- ur- að fyrir kom, að 60—70 fengust á 90 öngla“. En svo kemur sorgarsagan í þessum fáu línum um það, hvernig veiðin hafi spillst: „Því enskir togarar voru mjög ágengir á þessum sviðum, einnig mjög tíðir innan landhelgislínunnar og spilltu veiðarfærum báta mjög oft“. Nú berast 'hinar hörmulegustu fréttir frá þessu elzta veiðisvæði íslendinga. Aflinn minnkar.. Flotinn rýrnar. Fólkinu fækkar. Allt er þetta að kenna ágangi útlendra togara, sem bókstaflega raða sér á Halamiðin, sem eru fyrir Norðvesturland eins dýrmæt eins og Selvogs- bankinn fyrir Suðurland, og loka fyrir mynni Isafjarðar, svo fiskurinn kemst ekki á „Kvíar- mið“. Um miðin fyrir Vestfjörðum skrifa þeir mér Þórður Maríasson, formaður, f. h. Fiskifélags- deildarinnar í Súgandafirði, eftir tilmælum bóksala Hermanns Guðmundssonar og Sigurðar Fr. Einarssonar á Þingeyri, og farast Þórði þannig orð: „Fislcimi’ð okkar Súgfirðinga eru að mestu leyti á svæðinu frá Deild við ísafjarðardjúp og vestur að Sléttanesi milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Á vetrarvertíð róa bátarnir, sem eru nú 18 til 29 smál. að stærð, með lóðir sínar 15—20 mílur undan landi. Á sumrin er nær eingöngu róið smábátum, 1 til 7 tonn að stærð, og taka þeir afla sinn eingöngu innan SuSureyri við Súgandaf jörS. 102 VÍ K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.