Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Síða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Síða 17
Endurminningar Þorsteins Þorsteinssonar, skipstjnra í Þórshamri Þriðja grein Rétt er að hafa í huga, að endurminn- ingar þessar eru ritaðar árið 1940, þótt ekki hafi þær birzt á prenti fyrr en nú. Togaraútgerð hér á landi byrjar fyrir al- vöru á árinu 1907 og þá að sjálfsögðu hér í Reykjavík. Að sönnu hafði dálítið verið unnið hér með litlum togara, „Coot“, áður, en það var varla teljandi í samanburði við aðalútgerð- artímabilið, sem byrjaði, eins og áður er sagt, árið 1907. Ég verð að telja að hið merka togaraút- gerðartímabil hafi byrjað með stofnun þess útgerðarfélags hér, sem heitir „Alliance“, sem fyrir löngu er orðið þekkt um allt land, ekki einungis fyrir að vera fyrsta togarafélagið, heldur líka fyrir framtak sitt og áræði á fleiri sviðum framleiðslunnar. Þetta félag var í fyrstu stofnað af nokkrum skútuskipstjórum árið 1906 er ákváðu strax að láta byggja fyrir sig togara í Englandi. Togarinn, sem hlaut nafnið „Jón forseti“, kom hingað altilbúinn til að geta byrjað fiskiveiðar rétt fyrir áramótin 1906—1907. Þetta þótti all- myndarlega af stað farið. Félaginu gekk svo vel, að það lét byggja hvert skipið af öðru og keypti líka notuð skip. Fyrsti togaraskipstjóri félagsins var Halldór Kr. Þorsteinsson og var það góð undirstaða undir velgengni félagsins, er hann lagði með sinni fyrirmyndar skipstjórn og aflabrögðum á „Jóni forseta" og „Skúla fógeta“ hinum fyrri. Félagið hefur þó orðið fyrir miklu tjóni, þar sem það hefur, frá stofn- un þess, misst fimm togara, og þar af einn með allri áhöfn. Þetta er gífurlegt tjón af ekki fleiri skipum og á ekki lengri tíma. Oft hefur félaginu græðst fé, enda hefur það fært út kvíarnar með hinni stóru fyrirmyndar síldar- verksmiðju á Djúpuvík. Síðustu árin hefur það hinsvegar, eins og öll önnur togarafélög, átt við erfiðleika og taprekstur að stríða. Um haustið 1906 var einnig stofnað annað félag hér í Reykjavík, sem vildi eignast tog- ara, en það var Fiskveiðahlutafélagið Island. VÍKIN G U R Hjalti Jónsson hefur sagt mér, að fyrstu orðin, sem lágu til stofnunar þessa félags hafi verið sögð af okkur tveimur, er við einn góðan sunnudag 1906 vorum í útreiðartúr uppi í Mosfellssveit, en Hjalti átti, sem kunnugt er, mestan þáttinn í að stofna þetta félag, og mátti því bezt vita, hvar hann þreifaði fyrst fyrir sér um fylgi til handa þessu máli, en það er rétt, að við strengdum þess heit í nefnd- um túr að stofna félag, er skyldi kaupa einn togara til að byrja með og skyldi Hjalti verða með þann fyrsta, en ég með þann næsta, ef fleiri yrðu keyptir. Um haustið var safnað hlutafénu, rúmum 100 þús. krónum. Eftir ára- mótin var Hjalti sendur til Englands til þess að kaupa togara og kom hann með togarann í marzmánuði. Var hann skírður „Marz“. Okkur skútuskipstjórunum var oft búið að sárna, þegar við lágum í logni og vissum af nógum fiski á næstu grösum, en gátum ekkert hreyft okkur. Við höfðum séð marga útlenda togara hvað eftir annað með fullt dekkið af fiski og það einnig þeirri tegund fiskjar, er ekki tók beitu, flatfisk. Það var hart í sumar- blíðunni að þurfa að horfa upp á þetta og geta ekkert aðhafzt. Það var þá heldur ekki undar- legt, þótt áhugamönnum rynni til rifja og langaði til að reyna lukkuna með togara. Útgerð fyrsta togara fyrrnefnds félags byrj- aði því í marzmánuði 1907 með 30 þúsund kr. reikningsláni í íslandsbanka, sem fljótt var uppétið og hrökk skammt, en við þetta varð samt bjargast. Með sögu þessafa tveggja togarafélaga, þ. e. Aliance-félagsins og íslandsfélagsins, er að miklu leyti sögð saga togaraútgerðarinnar. Mörg fleiri togarafélög voru þá þegar stofnuð. Að sönnu var afkoma félaganna ærið misjöfn og kemur þar margt til greina. Menn voru mis- jaínlega fengsælir og stjórnin á öllu í landi fór mjög misjafnlega úr hendi. Þessi útgerð gekk þó svo vel, að margir fleiri vildu eiga togara, eða að minnsta kosti hluti í togara- félagi. Það endurtók sig nú, sem gerðist, þegar m

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.