Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Side 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Side 2
Veibiferð til Grænlands <& & & Tæplega verður lengur talið til stórtíðinda, þótt íslenzkur togari leiti á Grænlandsmið. Fregnir af slíkum veiðiferðum birtast daglega í blöðun- um, er á þeim ferðum stendur. Misjafnlega gefast þessar ferðir, eins og aðrar veiðiferðir, þótt oftast náizt góður árangur og stundum ágætur. Tilefni þessarar greinar, er að Víkingur fregnaði að togarinn Egill rauði hefði komið til Norðfjarðar með um 380 lestir af saltfiski eftir sex vikna ferð til Grænlands. Þetta var því meiri fregn fyrir þær sakir, að meirihluti togaraflotans hefur legið bundinn i höfn, svo mánuðum skiptir aðgerðarlaus. Gunnar Þórarinsson, skipstjóri. Víkingur hitti skipstjórann af Agli rauða að máli fyrir nokkru, og spurði hann um ferðina. Kom brátt í Ijós, að hér var um nokkuð sögulega veiðiferð að ræða, bæði vegna óhemju fiskmergðar á þessum miðum og ýmislegs' fleira. Fer sem aðeins er sagt frá staðreyndum. Það var í lok maímánaðar, að Egill rauði lagði upp frá Norðfirði í þessa saltfiskveiðiferð og var ákveðið að sigla á „Fyllubanka", sem ligg- ur um það bil 1 sólarhrings siglingu frá Hvarfi, eða suðurodda Grænlands, en þaðan er siglt norður með vesturströndinni. Um þennan tíma er oft mikið um rekís á þessum slóðum og verður því að fara um 80 sjómílur frá strönd- inni, til þess að forðazt hann. Er komið var á bankann, mætti skipverjum sýn, sem auk þess að glæða aflavonir þeirra, mun og seint líða þeim úr minni. Á haffletin- um gat að líta stóra, hvíta flekki um allan sjó, sem við nánari athugun reyndust vera breiður af dauðum, fljótandi fiski, er flotið hafði úr botnvörpum skipanna, er þær sprungu utan af fiskmagninu, en þarna var fjöldi skipa frá ýms- um löndum, svo sem Frakklandi, Spáni, Portú- gal, Noregi og víðar að. Þarna voru einnig móð- urskip, sem sendu flatbotnaðar doríur frá sér til veiða. Á þeim var oftast aðeins einn maður, er lagði 50 öngla línu og fengu þær undantekn- ingarlítið fullfermi og voru stundum með seil. Slík ódæmi af fiski, sem þarna var, er vart hægt að gera sér fulla grein fyrir og alls ekki sambærilegt við neitt, sem við höfum þekkt bezt á heimamiðum okkar. Egill rauði kastaði fyrst trollinu á 180 til 205 faðma dýpi, en þar mældist fiskurinn 50 til 80 faðma þykkur frá botni. Eftir tæpar tvær mín- útur var varpan hífð upp, en þá þegar hafði hér á eftir einföld og skrautlaus frásaga af ferðinni, þar hún rifnað þvert yfir undan magninu/ svo að ekkert náðist af fiskinum. Egill rauði togaði þarna um stórt svæði og hvergi virtist lát á þessu geysilega fiskmagni. Aðal vandinn var að ná vörpunni heilli upp áður en hún sprakk, sem oft vildi verða, er henni skaut upp á yfir- borðið af miklum krafti, því mikið loft var í fiskinum. Til dæmis skaut pokanum stundum upp er 50 faðmar voru enn úti af vírum. Sjaldan þurfti meir en tvö eða þrjú hol á sólarhring til þess að fylla dekk, en í þessum dráttum fengust þetta frá 12 til 21 poki í holi, þ. e. a. s. í þau skipti, sem netið hélzt heilt og allt flaut ekki út. Til skýringar þeim, sem ekki þekkja til, skal þess getið, að í einuin poka, sem hífður er inn, eru venjulega þrjár lestir af fiski og fengust því þetta frá 16 til 63 lestir í hverj- um drætti. Á Agli rauða voru 44 skipverjar þessa ferð, en þar af unnu 34 að staðaldri við aflann í tví- skiptum vöktum og var það mikil vinna að gera að þessum mikla afla, enda dró enginn af sér. Eftir fjóra daga frá því að veiðin hófst, var byrjað að umsalta fiskinn og voru fjórir af há- setum við það starf að staðaldri upp frá því. Liggja þurfti um kyrrt í fimm sólarhringa við umsöltunina, því ætíð þurfti að rýma fyrir meiri afla. Var hver fiskur um borð í skipinu að lok- um umsaltaður og allur aflinn því ,,fullstaðinn“, er heim var komið. , Slík fiskmergð, sem þarna var á ferðinni, VÍKIN □ U R 166

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.