Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Qupperneq 4
Hinn glæsilegi brezki „skut-togari“, „Fairtry“, í reynsluferð.
raununum, sem nú er ekki lengur tilraun, held-
ur staðreynd, því þannig er „Fairtry" tilbúinn.
Þegar fiskinum hefur verið náð um borð, með
þar til gerðum krana, fellur hann niður á
fallhlera, sem borðreisist og fer aflinn þannig
af yfirdekkinu niður í skipið, þar sem vinnzla
hans byrjar, því í togaranum er, auk fiski-
mjölsverksmiðju, fullkomin flökunarstöð, þar
sem fiskurinn er flakaður, pakkaður og hrað-
frystur.
Þegar skipið kemur í höfn, eftir ca. 80 daga
veiðiferð, getur það haft innanborðs, ef sæmi-
lega aflazt, 500 lestir af hraðfrystum fiskflök-
um, auk 100 lestir af fiskimjöli.
Skipið er byggt eftir Lloyds register Class
X 100 Al’, og er 2.605 br. reg. tonn, svokallað-
ur „skut-togari“. Þá er tekið tillit til krafna
brezka samgöngumálaráðuneytisins, hvað snert-
ir mannaíbúðir, vegna hinnar löngu útivistar.
Eldvarnir og önnur öryggistæki eftir Inter-
national Convention of Safety of lifes at Sea.
Mál skipsins að öðru leyti eru eins og hér
segir: Lengd B.P. 245 fet. Breidd 44 fet. Dýpt
frá aðaldekki 24 fet, en frá brúardekki 32 fet.
Aðalvél þess er fjögurra strokka Lewis Dox-
ford, gerð 48 S.B. 4, sem framleiðir 1900 hest-
öfl með 135 snúningum á mínútu.
Mannaíbúðir eru sagðar eftir ströngustu
brezkum kröfum til skipa í langsiglingu. Á
efsta brúarþilfari er skipstjóraíbúðin, svefnsal-
ur, setustofa og baðherbergi. Á sama þilfari er
svefnklefi loftskeytamanns og vinnustofa, með
öllum þeim tækjum, sem nútíma fiskiskip kref j-
ast. Á neðra brúarþilfari eru, fremst, íbúðir
annarra yfirmanna skipsins. 1. vélstjóraíbúð-
in er eins og skipstjóra. Þá eru íbúðir stýri-
manna, undirvélstjóra, verksmiðjustjóra, tækni-
sérfræðings og yfirbryta. Aftar á sama þilfari
búa hásetar og þjónustufólk.
Af siglingatækjum má nefna Cyro-áttavita
frá S. G. Browne og magnetiskur áttaviti frá
Kelwin & Hughes. Radiolocator radar Mark IV
o. s. frv. Skipstjóri þessa nýstárlega skips er
Mr. Romyn og 1. vélstjóri Mr. Campell.
Þegar þessi grein birtist í Víkingnum verður
skipið eflaust búið að ljúka sinni fyrstu veiði-
ferð og væri fróðlegt að frétta, hvernig ferðin
hefur gengið.
Forsídumyiidm
Þann 18. júlí síðastliðinn var hleypt af stokkunum
hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f. í Hafnarfirði nýjum
vélbát, 56 rúmlesta að stærð. Var honum gefið nafnið
Víðir II, GK 275. Eigandi bátsins er Guðmundur Jóns-
son, útgerðarmaður, Rafnkellsstöðum, Garði.
Báturinn er smíðaður úr eik, með yfirbyggingu úr
stáli. í bátnum er 180 hestafla Lister dieselvél, vökva-
dekk og línuvindu, dýptarmælir með Asdicútfærslu og
að öðru leyti búinn beztu tækjum, sem völ er á.
Smíði bátsins hófst 5. október 1953. Teikningu gerði
Egill Þorfinnsson, Keflavík. Yfirsmiður var Sigurjón
Einarsson, skipasmíðameistari. Niðursetningu á vél og
alia járnsmíði annaðist Vélsmiðja Hafnarfjarðar. Raf-
lögn lögðu rafvirkjameistararnir Þorvaldur Sigurðsson
og Jón Guðmundsson. Málun annaðist Sigurjón Vil-
hjálmsson, málarameistari. Reiðar og segl voru gerðir
af Sörin Valintínussyni. Dýptarmælir var settur niður
af Frikrik A. Jónssyni, útvarpsvirkjameistara. Dekk- og
línuvinda var smíðuð af Vélsmiðjunni Héðinn.
Reynsluför var farin föstudaginn 23. júlí síðastliðinn.
Ganghraði reyndist 9 mílur. Bátur og öll tæki reynd-
ust mjög vel.
Skipstjóri á þessum nýja bát verður Eggert Gísla-
son, Garði.
Báturinn fór til síldveiða fyrir Norðurlandi með öll
síldveiðitæki ný og af fullkomnustu gerð.
I6B
V I K I N □ U R