Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Side 12
Rafn A. Sigurðsson, skipstjóri, sextugur Hinn 11. þ. m. varð einn af kunnustu skip- stjórum á íslenzka flotanum, Rafn A. Sig- urðsson, sextugur að aldri. Hann er fæddur að Sæbóli í Dýrafirði árið 1894. Foreldrar hans eru Sigurður Ólafsson, sjómaður, ættaður af Barðaströnd, og Dagbjört Jónsdóttir, ættuð úr Dýrafirði. Rafn A. Sigurðsson, skipstjóri. Á unga aldri missti Rafn föður sinn og varð þá, að þeirra tíðar venju og nauðsyn, að byrja hinn harða skóla lífsins. Vegur flestra þeirra unglinga, sem einhver töggur var í, í þá daga, lá að jafnaði til sjávar, en Rafn mun hafa verið um 10 ára, er hann fyrst steig af'sér bárur hafsins á vestfirzkri skútu í umsjá föður síns. Eftir missi hans varð Rafn að fara að heiman til vandalausra, sem ekki þótti nema sjálfsagt og eðlilegt í þá daga, en upp frá því mun hann hafa orðið að sjá sér sjálfum farborða. Vegnesti að fjármunum mun að sjálfsögðu hafa verið lítið, en því meir af einbeittum vilja til að brjóta sér leið til sjáifstæðis og frama í lífinu og ekki er ótrúlegt, að hörð barátta ein- stæðs unglings hafi að nokkru mótað skapgerð og raunsæi. Á unga aldri, eða á árunum 1909 og 1910, hlaut Rafn þó þá undirbúningsmenntun, sem hinn landsfrægi unglingaskóli að Núpi í Dýra- firði veitti og má segja, að þar hafi rétt verið af stað farið. Árið 1912 fór svo Rafn utan og sigldi á erlendum skipum allt til ársins 1916, eða í fjögur ár, og geta má nærri, að ekki hafi ætíð verið ,,hlið veröld“ hjá einstæðum, íslenzk- um ungling með útlendingum svo árum skipti, en vart trúi ég að Rafn hafi Ijátið hlut sinn, er því var að skipta, því náttúran hefur verið hon- um örlát, að líkamlegu og andlegu atgjörfi. Enda heppnaðist honum það, sem margir lingerðari hafa fyrr og síðar gefizt upp við: Að eflast við hverja raun og tileinka sér lærdóm og reynslu, sem að góðu haldi kom síðar í lífinu. Árið 1917 lauk Rafn prófi við fiskimanna- deild Sjómannaskóla íslands og árið eftir við farmannadeild sama skóla. Strax þá um vorið gerðist hann stýrimaður hjá Jóni Kristófers- syni skipstjóra á Huginn, og árið eftir, 1919, fluttist hann með sama skipstjóra yfir á Hauk. Bæði þessi skip voru seglskip með hjálparvél og stunduðu utanlandssiglingar, aðallega með salt- fiskfarma til Miðjarðarhafslandanna. Árið 1920 tók Rafn við skipstjórn á Hauk, en frá þessum tíma má segja, að hann hafi stöðugt verið í siglingum. Skipstjóm sína byrjaði hann þó á m.s. Snorra, eign Ásgeirs Péturssonar, og um tíma var hann skipstjóri á e.s. Nonna, sem stundaði veiðar. Árið 1928 stofnaði Rafn, ásamt fleirum, Eim- skipafélag Vesturlands, er keypti flutningaskip, sem skírt var Vestri. Því skipi stjórnaði hann til ársins 1932, er það var selt til niðurrifs, en þá stofnaði hann, ásamt öðrum, Eimskipafélag Reykjavíkur h.f., sem keypti e.s. Heklu, er fórzt í síðasta stríði, og e.s. Kötlu, sem við nú köll- um „gömlu“ Kötlu, er minnst er á hana. Það var mikið happaskip fyrir margra hluta sakir og sigldi meðal annars allt stríðið án þess að hlekkjast á. Árið 1948 keypti félagið nýsmíðað skip frá Svíþjóð, sem ber nafnið Katla og Rafn er nú 176 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.