Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Síða 22
stefnt í voða, þótt einn af löggiltum helgidögum þjóð- arinnar sé gefið frí. Að einn helgidagur verði í náinni framtíð, eins og síðustu seytján árin, minninga-, kynn- inga- og fagnaðardagur sjómanna, Sjómannadagur. Það er áreiðanlega nauðsynlegt hverjum manni, að hverfa stund og stund frá striti og bardagahug hversdags- lífsins. Svala löngunum sínum eftir því sem skapgerð og ástæður leyfa. Ármann Sigurðsson tekur þetta orð- rétt upp úr grein minni: „Ég hygg, að fiskimanna- stéttin megi sæmilega við una í venjulegu árferði, að kjör fiskimanna séu ekki lakari en stéttarbræðra þeirra í nágrannalöndunum". Greinarhöfundi virðast ekki falla í geð þessi ummæli mín. Spyr hvað ég sé að fara? Hvort ég hafi ekki getað miðað við aðrar stéttir í landinu, en lilaupi í samjöfnuð við sjómenn annarra þjóða. Já, ég var nú svona grunnhygginn. Einfaldlega vegna þess, að ég hef vanizt því við samningagerð, að hafa til hlið- sjónar samninga skildra aðilja frá nágrannalöndunum. Eru svo atriðin samræmd við aðstæður heima fyrir. Um kaup og kjör togaramanna, eins og þau eru í dag, ræði ég ekki, sökum þess, að ég er þeim ekki nægileg|a kunnugur. Það er nú svo, að það ber ekki allt upp á sama daginn í þessu lifi. Skipstjórar og fyrstu stýrimenn á togurum hafa frá byrjun togaraútgerðar á íslandi haft meginhluta launa sinna greiddan í hlut í afla. Þannig er það enn. Fyrstu áratugina höfðu allir aðrir skipverjar mánaðarkaup, að viðbættu því, að þilfarsfólk og matsveinn fengu lifrarhlut. Þegar frá leið voru skipstjórar og stýrimenn öfundaðir, einkum þegar vel gekk og aflahlutir háir. Voru uppi háværar raddir, einkum vélstjóra, að kom- ast meira eða minna inn á %-leiðina, eins og það var nefnt, fá kaup sitt greitt í hlut í afla. Á þessum ósk- um bar minna eða ekki þegar illa áraði. Þá sást það enn betur, að %-leiðin var tvíeggjuð, hún gaf mikið, þegar vel áraði, en lítið, of lítið, þegar miður áraði. Jafnvel aflahæstu skipin gáfu naumlega meðal tekjur. Það er einmitt þetta (sem varast varð), sem á er skollið. Fjöldi togaranna er með rýran afla og afkoman í samræmi við það. Ef til vill eru aflahæstu skipin með sæmilega afkomu. Þess þarf enginn að ganga dul- inn, er velur sér togarastarf að atvinnu í lengri eða skemmri tíma, og meðan kaup er greitt í hlut í afla, verða laun manna alltaf mishá. Einfaldlega vegna þess, að afli og afkoma skipanna er mis mikil. Eins og nú standa sakir, skiptir miklu, hvernig gengur að rétta við togaraútgerðina, að hún nái aftur fyrri aðstöðu. þeirri, að menn sækist um að komast á togarana, vegna þess, að þar er vinnan bezt borguð. Ármann Sigurðsson segist ekki sjá neina ástæðu til að taka undir þann „lofsöng og þakkargjörð, sem vél- stjórinn vill syngja útgerðarmönnum og ráðamönnum þjóðarinnar fyrir afskipti þeirra af hagsmunamálum sjómannastéttarinnar". Það er nú svo. Hér virðist tala maður, sem ekki þarf að saka sig um, að eiga vangert við samferðaménnina. Það efast víst enginn um það, að útgerðarmenn og aðrir ráða- og framkvæmdamenn þjóðarinnar sé ekki í ýmsu áfátt. Það hafði mér ekki dottið í hug, að ekki mætti átölulaust þakka þeim og lofa fyrir það, sem í þeirra valdi hefur staðið, að unn- ist hafi og vel tekizt. Allir drenglundaðir menn viður- kenna þær miklu framkvæmdir til lands og sjávar, sem hvarvetna blasa við augum sjáandi manna. í kjölfar framkvæmdanna hefur aðbúnaður og lífsafkoma fólks gjörbreytzt til hins betra, að vart á sinn samjöfnuð. Þetta hefði ekki gerzt án góðrar forustu. Einmitt ráða- menn þjóðarinnar, útgerðarmenn og aðrir einstaklingar, hafa með framsýni og dugnaði ýtt af stað og unnið að þessum stórstígu framkvæmdum. Framfarirnar sýna einnig og sanna, að ísland byggja stórhuga og þrótt- mikið fólk, sem ekki lætur sitt eftir liggja, ef því er sköpuð skilyrði til framtaks og manndóms. Þótt það hneyksli Ármann Sigurðsson, þá endurtek ég þakklætið með þessum fyrri orðum mínum. Ég er það „gamal- dags“, að mér finnst þetta allt þakkarvert. Mikið má íslenzka þjóðin í heild þakka og lofsyngja guð fyrir alla þá menn og konur, er fyrr og síðar hafa tekið stein úr götu og rutt brautina fram á við til hagsæld- ar, manndóms og annarrar menningar. Daglegt líf — og samskipti manna sanna þau ummæli Björnstjerne Björnson: „Þar sem góðir menn fara, eru guðs vegir“. Sennilega aldrei meira en nú þarfnast íslenzka þjóð- in fleiri karla og kvenna, sem vilja — og gera vel, og bera sáttar- og kærleiksorð á milli einstaklinga og hags- munasamtaka. Þá mundi enn betur morgna í lífi ein- staklinga og þjóðarinnar allrar. Júlíus Olafsson, vélstjóri. Skfpverjar á m.b. Gylli bjarga skipstjóra síiiuiii Hinn 21. júní síðastliðinn kom fyrir atvik, sem rétt er að halda á lofti, er skipverjar á vél- bátnum Gylli frá Fáskrúðsfirði björguðu skip- stjóra sínum með snarræði og kunnáttu sinni í lífgun úr dauðadái. Vél Gyllis bilaði, er hann var á veiðum í Faxa- flóa. Skipstjóripn, Matthías Jónsson, fór þá nið- ur í vélarhús, en varð þar fyrir kolsýringseitrun. Félagar hans urðu þessa varir, náðu honum upp og hófu þegar lífgunartilraunir. Héldu þeir því áfram í þrjár klukkustundir og var skipstjór- inn þá farinn að draga andann, en rankaði þó ekki úr yfirliðinu. Kyntu þá skipverjar bál á þilfari, og Brúar- foss, sem bar þar að, tók Matthías og flutti hann til Ólafsvíkur, en síðan var farið með hann á báti til Sands. Náði Björn Pálsson þangað í hann í sjúkraflugvél sinni, og var hann fluttur í Landsspítalann, þar sem hann kom til með- vitundar. Aðeins einu sinni hér á landi mun lífgunar- tilraun, sem staðið hefur lengur, hafa borið svo gifturíkan árangur sem þessi. Var það, er Ólaf- ur Lárusson, læknir í Vestmannaeyjum, bjarg- aði dreng, sem féll í höfnina þar, eftir þriggja og háls tíma lífgunartilraunir. Er yfirleitt talið rétt að halda björgunartilraunum áfram í 4—5 klukkustundir. 1B6 VIKINBUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.