Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Page 23
Henry Hálfdansson
fimmtugur
Henry Hálfdansson.
Henry Hálfdansson, skrifstofustjóri hjá Slysa
varnafélagi fslands, varS fimmtugur 10. júlí s.l.
Hann er Vestfirðingur að ætt, fæddur á ísa-
firði, og mun hafa verið aðeins 11 ára þegar
hann hóf sjómennskuferil sinn sem háseti á
skútu. Síðar fór Henry í siglingar á seglskút-
um. Þar mun hann hafa fengið sinn strangasta
skóla og lært að standa á eigin fótum.
Til gamans má geta þess, að á unglingsár-
um sínum lærði Henry siglingafræði og lauk
skipstjóraprófi á smáskipum. Ekki lagði hann
þó fyrir sig formennsku, en tók próf í loftskeyta-
fræðum, og var í mörg ár loftskeytamaður á
togurum, lengst af á Hannesi ráðheri'a og síðar
á e.s. Súðinni
Á þessum árum sat Henry ekki auðum hönd-
um. Hann fullkomnaði með sjálfsnámi þekk-
íngu sína í rafmagns- og loftskeytafræðum, og
hóf, einn af þeim fyrstu hér á landi, tilraunir
með talstöðvar á bylgjusviðinu 100—200 metrar
fyrir fiskibáta, en þetta svið er nú almennt not-
að núna af bátaflotanum. Byggði Henry hina
fyrstu talstöð, sem reynd var í þessu skyni og
þótti reynast vel. Telja má, að þessu merkilega
brautryðjandastarfi Henrys hafi ekki verið
haldið á lofti eins og vert er, en slíka talstöð
notaði hann, þegar Hannes ráðherra strandaði
út af Kjalarnesi, eftir að ljósavélin, aflgjafi
loftskeytastöðvarinnar, var á kafi í sjó, og hélt
sambandi við land.
Fyrir nokkru átti Henry 10 ára starfsafmæli
hjá Slysavarnafélagi íslands. Það mun vart of-
mælt, að þeirri stofnun hafi verið það mikið
happ að fá slíkan mann í þjónustu sína, enda
ber vöxtur og viðgangur Slysavarnafélagsins hin
síðari ár þess ljósan vott. Mun óhætt að fullyrða,
án þess að rýrð sé kastað á aðra starfsmenn og
velunnara Slysavarnafélagsins, að með sívak-
andi áhuga og miklu starfsþreki muni Henry
eiga þar einn drýgstan þáttinn.
Sjómannastéttin hefur á fleiri sviðum notið
góðs af starfsemi Henrys. Hann er einn af for-
göngumönnum að stofnun sjómannadagsins og
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, hefur verið
formaður sjómannadagsráðs og lífið og sálin í
þeirri starfsemi frá upphafi.
Sjómannablaðið Víkingur á Henry Háldans-
syni margt gott upp að unna. Hann er einn af
stofnendum blaðsins, hefur ritað ótal margar
greinar í blaðið um ýmis þjóðnytjamál. Vill
Víkingurinn hér með nota tækifærið og færa
honum beztu árnaðaróskir í tilefni af afmæl-
inu, með þeirri ósk, að íslenzk sjómannastétt
eigi enn um langan aldur eftir að njóta starfs-
krafta hans.
G. J.
VIKINGUR
1B7