Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1960, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1960, Side 9
Breytingar á göngum ufsans Þýzkir togarar stunda ufsa- veiðar við Island, Noreg, Fær- eyjar og í norðanverðum Norður- sjó. 1 ár var afli þeirra á flestum veiðisvæðum mun minni en í fyrra. Við Noreg varð aflinn t. d. aðeins 4 þúsund tonn á móti 14 þúsund tonnum í fyrra, og við Færeyjar féll aflamagn þýzkra togara úr 10 þúsund tonnum í 2 þúsund tonn. Aíflaeysi þetta er að nokkru leyti af fjárhagslegum ástæðum, en orsakast á hinn bóg- inn einnig af breytingum á hegð- un ufsans. 1. mynd sýnir aldurs- og lengdardreifingu, ufsans á helztu veiðivsæðum þýzkra togara und- anfarin 3 ár. Það er áberandi, að árgangarnir frá 1949—1951 hafa verið ríkjandi í veiðinni á flestum stöðum. Sveiflur í stærð hinna einstöku árganga í ufsastofninum ráða miklu um aflabrögðin, en hins Vegar er aflabresturinn viðNoreg ekki einvörðungu af líffræðileg- um orsökum. Að vísu eru hinir sterku árgangar frá 1949—51 úr sögunni á þessu veiðisvæði, og ár- gangarnir frá 1953 og 1954 eru htilsmegandi. Hér má einnig kenna um minni sókn, sem orsakast hefur af því, að minna hefur gengið af fiski á miðin vegna óhagstæðra ytri skilyrða. Aflarýrnunina á Islandsmiðum má einnig rekja til mun minni sóknar við suðaustur- og suðvesturströndina á vetrar- vertíðinni, og hafa þýzkir togar- ar í stað þess sótt meira í karfa- stofninn. Um veiðar þýzkra tog- ara á Færeyjamiðum gegnirsama máli. Rannsóknir seinustu ára hafa kastað nýju ljósi yfir ýmiss atriði í hegðun ufsans í Norðurhöfum, sérstaklega með tilliti til skiln- ings okkar á sveiflum í stærð stofnsins. Ef við lítum aftur á 1. mynd, kemur í ljós, að sterku árgangarnir frá 1949—’51 hafa enzt miklu skemur í veiðinni við Noreg en við Færeyjar og fsland. Hér er þó ekki um að kenna of mikilli veiði við Noreg, heldur hinu, að síðan árið 1957 a. m. k. hefur allmikill hluti þessara ár- ganga gengið frá Noregi tíl Fær- eyja og fslands. Hefur þetta kom- ið greinilega í ljós með merking- um þeim, sem norski fiskifræð- ingurinn Steinar Olsen gerði á ufsa við Noreg á árunum 1955— 58. Merktur ufsi hefur veiðzt í norðurhluta Norðursjávarins, við Færeyjar og við ísland. Steinar Olsen heldur því fram, að ufsi sá, sem gengur til íslands fari aðra leið en sá, sem fer til Færeyja, og að ufsinn, sem fer til Færeyja, haldi ekld áfram til íslands. Steinar Olsen heldur að sennileg- asta leiðin milli Noregs og ís- lands sé sú sama og síldin fer á milli þessara tveggja landa.Þessu til stuðnings færir hann það, að síldin hrygnir nú seinna við Nor- eg en áður, og að hrygningin hef- ur stöðugt færzt norður með ströndinni. Síldin er því nú í heimkynnum ufsans, er hún yfir- gefur Noreg, og ufsinn fylgir henni eftir. Þjóðverjar hafa undanfarin ár merkt nokkuð af ufsa, sem veidd- ur hefur verið í botnvörpu. Þess- ar merkingar hafa hins vegar ekki gefið mikinn árangur, vegna þess að mjög erfitt er að ná fisk- inum óskemmdum með þessari veiðiaðferð. I janúar 1958 merkt- um við um 200 ufsa við suðvest- urströnd íslands, á grunnu vatni og í góðu veðri, en frekari til- raunir í það skipti misheppnuð- ust. Auk þessarar merkingar lán- aðist okkur að merkja 25 ufsa við Noreg í nóvember 1958 og aðra 25 í marz 1959 við Island. Úr merkingunni við Island 1958 hafa alls endurheimzt 8 fiskar. Allir fengust þeir við Island að einum undanskildum, er fékkst aðeins tveimur mánuðum síðar við Norður-Noreg, og gefur sú endurheimt til kynna, að einnig séu göngur frá íslandi til Noregs. Af merkingunni við Vestur- Noreg hefur fengizt ein endur- heimt við Færeyjar. Þessar end- urheimtur, þótt fáar séu, gefa ti.l kynna, að allmikil samskipti séu á milli þessara tveggja stofna, og lét enginn sér það til hugar koma fyrir 2—3 árum. Ymsar aðrar athuganir benda einnig til breytinga í hegðun ufs- ans undanfarin ár. 1 því sam- bandi má nefna, að smáufsi hef- ur gengið mun lengra suður á víkingur 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.