Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Síða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Síða 4
HatsjáLn og SLglingareglu.rn.ar FriSrik V. Ólafsson. skólastjón hefur sent Víkingi eftirfarandi til bir'tingar Hr. Leif Jernæs, yfirkennari við Kristiansands Navigasjons- skole hefur að tilhlutan ráðu- nautar norska ríkisins í siglinga- málum samið kennslubók í rat- sjársiglingum, sem Norges Han- dels og Sjöfartstidende gaf út á sl. ári. Nafn kennslubókarinnar er Anti-Kollisjon, Radar A B C, og einn kafli hennar er um ratsjána og siglingareglurnar, leiðbeining- ar um siglingu í dimmviðri og ráðstafanir sem skipum ber að gera, þegar þau sjá ekki hvert annað. Hér er einmitt tekið á vandamálum, sem skoðanir munu — þó undarlegt sé — vera all- skiptar um hjá fjölda skipstjórn- armanna í mörgum löndum, og mér finnst margt af því, sem hér segir, svo fróðlegt, að sjálfsagt sé að kynna það sem flestum af íslenzkum skipstjómarmönnum. Ég vil þó taka fram, að full not af þessum kafla bókarinnar fá menn aðeins með því að kynna sér aðalefni hennar. F. V. Ó. Alþjóðaráðstefnan um öryggi mannslífa á sjó. 1948, lýsti yfir: ,,Jafnhliða því, að ráðstefnan viðurkennir, að nýjustu framfar- ir í gerð ratsjár og annarra raf- knúinna hjálpartækja við sigl- ingar séu hinar mikilvægustu, er það álit ráðstefnunnar, að enda þótt skip sé búið slíkum tækjum, leysi það á engan hátt skip- stjóra þess frá þeirri skyldu, að fara í einu og öllu eftir þeim kröfum, sem alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó heimta, einkum ákvæðum 15. og 16. greina þessara reglna. Ráð- stefnan ræður ríkisstjórnunum til að vekja athygli skipstjórnar- manna á þessari skoðun". Framvinda þessara mála hef- ur ekki orðið á þánn veg, að á- stæða sé til að ætla, að önnur ráðstefna, áratug síðar, muni komast að annarri niðurstöðu, öðru nær. Árið 1957 lét forstjóri Lloyd’s svo um mælt, að nýtízkulegasta öryggistæki vorra tíma hefði valdið svo mörgum slysum. að í athugun væri hjá vátrygginga- félögunum að hækka iðgjöldin fyrir skip með ratsjá. Síðan þetta gerðist, hafa Bretland og Svíþjóð samþykkt að skylda rats j ár-siglingaf ræðinga til að fá, útgefin sérstök skír- teini. Ástæða er til að halda, að kennsla í meðferð ratsjár hafi verið aukin hjá flestum siglinga- þjóðum. Er hægt að gera nokkuð til að auka siglingaöryggi í slæmu skyggni ? 1 samræmi við ákvæði sigl- ingareglnanna skulu hér sett fram nokkur atriði siglingafræð- ingum til stuðnings: 10 reglur til leiðbeiningar með skýringum. Reglur til leiöbeiningar vió siglmgu í dimmviöri. Ráðstœfanir skipa, sem ekki sjá hvert cmnað: 1. Gefið hljóðbendingar samkv. 15. gr. siglingareglnanna. 2. Siglið með minnkaðri ferð samkv. a-lið 16. gr. siglinga- reglnanna. 3. Hafið stöðugt menn úti á varðbergi og einnig við rat- sjána. Munið að erfitt kann að reynast að „finna“ tré- skip og suma aðra hluti á ratsjárskífunni, þótt þeir séu hættulegir siglingum. 4. Ef maður hvorki stanzar né dregur úr ferð með sömu stefnu til þess að víkja fyrir skipi, sem ekki er innan heyrnarsviðs frá eigin skipi, ætti að ákveða hina nýju bergmálsieið*), áður en breytt er um stefnu. 5. Enda þótt svo geti litið út í einstökum tilfellum, sem veigamiklar ástæður mæli með því að víkja til bak- borða fyrir skipi, sem ekki er í augsýn, má undir eng- um kringumstæðum grípa til þess ráðs, ef unnt er að forða árekstri með því að stöðva eða draga úr ferð. 6. Stöðvið vélina samkv. fyrir- mælum b.-liðs 16. gr. sigl- ingareglnanna. 7. Gefið aldrei merki samkv. 28. gr. skipi, sem ekki er 1 augsýn. 8. Gerið ráð fyrir að öll skip, sem eru utan heyrnarsviðs frá eigin skipi, séu vélskip með ratsjá. 9. Þannig ætti að líta á, að 18., 19., 21., og 24. gr. siglinga- reglnanna eigi einnig við að því er tekur til tveggja skipa sem eru ekki innan heyrnar- sviðs hvors annars. 10. Forðist stefnubreytingar nema samkv. 18. gr. sigl- ingareglnanna. Um 1. I þoku, dimmviðri, snjó- komu, steypiskúrum eða slæmu skyggni annarra hluta vegna skal gefa þær hljóðbendingar, sem fyrirskipaðar eru í 15. gr. hinna alþjóðlegu siglingareglna, jafnt að nóttu sem degi, hvort heldur skipið er búið ratsjár- tækjum eða ekki. Enginn útbún- aður losar neitt skip undan þeirri skyldu að gefa þokumerki svo oft sem reglurnar fyrirskipa. Það er hættuleg aðferð að gefa þokubendingar endrum og eins og rita svo í leiðarbókina: Þoka, gefnar þokubendingar reglulega (Sjá 316. gr. hinna almennu hegningarlaga). Fyrirsögn í Norges Handels ogSjöfartstidende 13. des. 1956: „Reiddi sig á ratsjána. — Brak og brestir" . . . skyggnið *) Með bergmálsleið er átt við stefn- una, sem bergmálin frá öðru skipi hreyfast í á ratsjárskífunni. ÞýtS. VÍKINGUK 108

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.