Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Page 20
í
Einar Jónsson hafnsögum.
Einar Jónsson hafnsögumaður var
fæddur á Fossá á Barðaströnd 2.
október 1892. Á fyrsta aldursári
missti hann föður sinn og fluttist
þá með móður sinni að Flatey á
Breiðafirði og ólst þar upp.
Eins og aðrir Breiðfirðingar, sem
eyjarnar byggja, komst Einar fljótt
í náin kynni við Ægi. Strax á unga
aldri lærði Einar hinar haldgóðu
leikreglur sjómennskunnar, hjá hin-
um lífsreyndu Breiðfirzku sjómönn-
um, sem margir hverjir urðu lands-
kunnir fyrir afburða skipstjórn á
opnum bátum og skútum .
Heima í Flatey var lagður horn-
steinn að því starfi, sem átti eftir
að verða æfistarf hans, sjómennsk-
unni. Ungur að árum yfirgaf Einar
æskustöðvarnar og leitaði starfa á
stærri skipum. Hann lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
árið 1917. Tveim árum seinna, eða
í febrúar 1919 var Stýrimannafélag
íslands stofnað og var Einar einn
af stofnendum þess félagsskanar.
Átti sá félagsskanur erfiða aðstöðu
í byrjun, bæði vegna þess að með-
limir voru fáir, því verzlunarskip
íslendinga voru ekki mörg á þeim
árum og vegna hins að félagsmenn
voru allir siglandi á höfum úti og
því oft erfiðleikum bundið að halda
fundi, og voru þá ekki ósjaldan
fundir haldnir í erlendum höfnum,
oftast í Kaupmannahöfn, þar sem
skipin mætttust helzt .
Þeim mönnum sem voru í farar-
broddi í félagsmálum á þeim árum,
verður seint þakkað sem skyldi
þeirra mikla starf í þágu stýri-
mannastéttarinnar. Einn í þeirra
hópi var Einar. Hann var að eðlis-
fari félagslyndur, vel greindur og
fylginn sér, í hverju því máli er
hann beitti sér fyrir.
Einar giftist eftirlifandi konu
sinni, ísafoldu Einarsdóttur, árið
1920. Eignuðust þau 5 börn: tvo
drengi er dóu ungir, og þrjár dætur,
sem allar eru giftar. — Búa tvær
þeirra hér í Reykjavík, en ein gift-
ist til Ameríku.
Einar var alltaf mjög farsæll í
starfi. Hann kynntist ýtarlega öll-
um hliðum sjómannsstarfsins, á
opnum bátum, skútum, togurum og
erlendum skipum. Hann var skip-
stjóri á Eos, því eina barkskipi sem
íslendingar hafa eignast. Þá sigldi
hann á skipum Eimskipafélags ís-
lands, þar til hann fór í land og
varð hafnsögumaður hjá Reykja-
víkurbæ árið 1929.
Er Einar lét af hafnsögumanns-
starfinu, vegna heilsubrests, hafði
hann gegnt því starfi í 28 ár. í öll
þessi mörgu ár leysti hann starf
sitt með mestu prýði og kom öllum
þeim skipum, sem hann veitti leið-
sögu, heilum í höfn og eignaðist í
gegnum starf sitt fjölda vina úr
hópi skipstjómarmanna, bæði inn-
lendum og erlendum.
Sömu sögu má segja um sam-
starfsmennina. öllum var hlýtt til
Einars og allir sáum við mikið eftir
honum er hann lét af störfum, fyrr
en skyldi. Kringum hann var and-
rúmsloftið hreint og starfið létt og
skemmtilegt .
Hann var gæddur góðri frásagn-
argáfu og hafði frá mörgu að segja
úr sinni viðburðaríku ævi. Einar
var glöggskyggn á ýmis sérkenni
samferðamannsins og kunni góð
skil á því að færa það í þann bún-
ing, að hlustendur hefðu skemmtun
af.
öldur tímans rísa og hníga. í
öldutonpunum má sjá andlit gam-
alla vina, kunningja og samstarfs-
manna. koma og fara, allir og allt
á sífelldri hreyfingu. frá unphafi
hvers mannlífs til endaloka. Tímans
haf er fullt af ólgandi lífsbaráttu
einstaklinga og stétta. En þó er það
ávallt svo, að þegar góður félagi
hverfur í hafið, myndast lygna í
hafflötinn og í þeirri lygnu speglast
margar og ljúfar endurminningar
um horfinn samferðamann, þeim
mun fleiri, sem samstarfið var inni-
legra og lengra.
Kæri félagi! Lengsti kaflinn í
lífsbók þinni er helgaður leiðsögu-
mennskunni, og henni þjónaðir þú
af lífi og sál. Þegar röðin kemur að
okkur, að leggja í álinn, einir á báti,
misjafnlega vel undir búnir — síð-
ustu ferðina milli landa lifenda og
dauðra, þá er gott að vita þig til-
búinn að veita okkur leiðsögu yfir
móðuna miklu yfir að strönd hins
ókunna. Við þökkum þér samveruna
og hugsum gott til samstarfs á nýj-
um leiðum í æðri heimi.
Konu Einars, dætrum og öðrum
ástvinum sendum við okkar innileg-
ustu samúð.
Th. G.
—o—
Skipastóll Færeyinga
Færeyska Lögþingið samþykkti
nýlega að heimila landstjórninni að
gera samning við belgiska skipa-
smíðastöð um smíði allt að 30 línu-
skipa fyrir Færeyinga. Verða þau
af stærðinni 118, 122 og 126 fet.
Bæði einstaklingum og útgerðarfé-
lögum mun gefast kostur á að kaupa
þessi skip.
Belgiska skipasmíðastöðin hefur
jafnframt boðið Lögþinginu að lána
20 milljónir d. kr. í sambandi við
bessi kaup — með 1% vöxtum. Lán-
ið skal endurgreiðast á tíu árum. —
Þó lánar þetta félag ekki meira en
75% af samanlögðum smíðakostnaði
skipanna.
—o—
Umhverfis för&ina í kafi
Bandaríski kafbáturinn Triton
kom fyrir nokkru upp að ströndum
Delaware eftir að hafa farið kring-
um jörðina. oftast í kafi, á 84 dög-
um. Þetta er kjarnorkuknúinn kaf-
bátur. Hann kom tvisvar upp á yfir-
horð siávar. í annað skipti vegna
veiks manns, er þyrla flutti til lands.
og undan ströndum Portúgals til
þess að heiðra minningu Magellans,
sem fyrstur manna sigldi kringum
jörðina 1519—21. Fór kafbáturinn
mikið til sömu leið, um 36,000 sjó-
mílna leið.
Triton er 7750 smálestir og mun
vera stærsti kjarnorkuknúni kaf-
bátur heims.
124
VÍKINGUR