Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Side 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Side 2
Kortið sýnir svæðið, sem var mælt. hefir lengi haft í huga að eignast fullkomin tæki sem þessi. Mælingarnar með Raydist- tækjunum fóru þannig fram, að staðsetningar-tækjum var komið fyrir í Knarrarósvita og Hall- geirsey í A.-Landeyjum. Þá var eitt tæki í skipinu og við þver- skurð geislanna, sem sendir voru úr landi fékkst syo nákvæm stað- arákvörðun að ekki gat munað nema örfáum metrum. Skipinu var síðan siglt í ákveðna stefnu og djúpið mælt með dýptarmæl- um. Milli hinna jafnhliða lína voru yfirleitt sexhundruð til eitt- þúsund metrar, en þar sem botn- lagið var þannig, að mæla þurfti sérstaklega var millibilið ekki meira en 300—500 metrar. V/s Ægir varð var við grynn- ingar, sem ekki fundust á sjó- korti, á svæði S af Eindrang. Gerðar voru nákvæmar mælingar af þessu svæði og kom þá í ljós á 90 metra dýpi að 60 metra hár drangur reis þar frá botni. Nú fellur þessi „einmana" drangur inn í hið endurbætta sjókort hinna íslenzku mælingamanna, en eins og Gunnar Bergsteinsson skýrði frá, er mjög mikil vinna Pétur Sigurð'sson, forstjóri landhelgisgæzlunnar. framundan við að færa hinar ná- kvæmu mælingar, sem nú eru í „handriti," inn á sjókort, sem fyrir hendi eru. Annar þáttur þessa leiðangurs var að framkvæma mjög ná- kvæmar mælingar í kringum Surtsey. Þar nutu þeir mikil- vægrar aðstoðar brezka hafrann- sóknarskipsins H. M. S. Heckla, sem mikið hefir verið hér við land. Þær mælingar tóku um hálfan mánuð og sýna þær, m.a. að Surtla litla, sem eitt sinn reis úr sæ og hreykti sér við hlið Surts- eyjar, hefir nú sigið um 20 metra undir sjávarmál, miðað við stórstraumsfjöru. Forstöðumað- ur brezku hafrannsóknarstofnun- arinnar hefir nú skilað árangri Surtseyjarmælinganna og birtist fróðleg mynd af þeim hér. Bret- arnir veittu mikilvæga aðstoð. — Lánuðu þeir vélbát til mæling- anna. Almennar sjómælingar voru Kortið sýnir mælingarnar við Surtsey, sem Bretar a hafrannsóknarskipinu Heckla önnuðust. 182 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.