Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 9
Skúlagatan frá Ingólfsstræti að
gömlu Iðunni, nú Hörpu, er ein-
hver sérkennilegasta gata borg-
arinnar. Hún hefur tekið mikið
af þungavöruflutningum frá
höfninni og miðbænum, en er
auk þess einhver ákjósanlegasti
vegur fyrir borgarbúa til þess að
aka um, þegar tækifæri gefst frá
önn dagsins að slappa af. Hér er
eitthvert bezta útsýni, sem gefst,
af malbikaðri braut til eyja,
sunda og fjallahrings. Hér er
fuglalíf í algleymingi, vegfarend-
ur verða jafnvel að aka með
nokkurri gát til þess að aka ekki
á gráðuga máva, sem eru að gæða
sér á dauðum karfa eða öðrum
fiski, sem einatt er hér á miðjum
vegi, eða forðast, að mávarnir
fljúgi á farartækið og beygli þau
eða brjóti glugga.
Vegna landþrengsla í borginni
er þessi gata að mestu leyti upp-
fylling út í fjöruborðið, þó ekki
lengra út en sem nemur stór-
straumsfjöru. Byggingar eru að-
eins enn sem komið er á aðra
hönd, þ.e. sunnan hennar að und-
anskilinni olíustöð BP á Klöpp,
sem stendur neðan við Klappar-
stíg og Völund. Þetta eru mjög
svo ósmekklegar byggingar, sem
æpa á umhverfið,ogsamanstanda
af gömlum bárujárnshjöllum,
olíutönkum og nítýzkulegum
skúrbyggingum með yfirlætisleg-
um „himni“ yfir benzíndælum.
Hinum megin við þessa götu er
Fiskifélagshúsið, gamall kunn-
ingi, sem lætur lítið yfir sér,
steinsteypt hús með litlum glugg-
um, en inngöngudyrum til vest-
urs og suðurs, eða á hléborða.
Næsta hús er 6 hæða höll byggð
í Suðurlandastíl og hluti neðstu
hæðar súlnagöng. Þessi súlnagöng
hafa sennilega (?) sínu hlutverki
að gegna. Þar eru bílastæði og
þar er inngangur í höllina, marg-
ar dyr með stórum vængjahurð-
um og hverfihurðum, sem eru e.
t. v. réttlætanlegar á Miðjarðar-
hafsströndum eða Kaliforníu.
Þetta hús er hins vegar stað-
sett á gamla Battaríinu með alla
sína nýtízkulegu innganga beint
VlKINGUR
Annar áfangi. ■
á móti norðanáttinni, sem enn í
dag lætur til sín taka við og við.
Það er því ekki óalgengt fyrir-
bæri, að allir þeir mörgu starfs-
menn, sem hér vinna, og þá einn-
ig viðskiptamenn, lendi í nokkr-
um mannraunum við að komast
út og inn, því að þegar norðan-
áttin nær sér upp er hér sífelld
ágjöf og Skúlagatan ófær af þeim
sökum. Þá getur bílastæðið undir
súlnagöngunum orðið einn sjó-
krapaelgur með hæfilegri blöndu
af fiskslitrum, sem iðulega liggja
eins og fyrir færi á þessari ann-
ars skemmtilegu götu. Þá getur
líka orðið talsvert slabbsamt að
komast út og inn í þessa bygg-
ingu fyrir ekki sjóklædda menn.
Vissulega hefði verið skemmti-
legra, að gamla battaríið hefði
fengið að ráða hér ríkjum að ein-
hverju leyti og þessari glæsilegu
höll fundinn staður í heppilegu
umhverfi, en hér er til húsa, m.
a. Útvarp Reykjavík o.fl- o.fl.
Næst þessari súlnahöll er hin
gamla Nýborg, Áfengisverzlun
ríkisins, sem lengi er búin að
vera aðalútsala þessar mjólkur-
kýr landsins. Meðan „útsalan"
var á þessum stað^ var Skúlagat-
an oft ófær vegna örtraðar af bíl-
um og „rónum.“ Hinir svokölluðu
„rónar,“ sem margir voru ágæt-
ismenn, réðu sem sé ríkjum við
Nýborg. Þar voru þeir mættir
strax og verzlunin var opnuð til
þess að innheimta hjá vinum sín-
um (en allir yoru vinir þeirra,
sem inn í búðina fóru) smáupp-
hæð, sem orðið gæti hluti and-
virðis eins Svartadauða. Þessir
menn höfðu sínar ákveðnu leik-
reglur, þannig var vakað yfir því,
að borgari, sem eitthvað lét af
hendi rakna, þegar hann fór inn,
væri ekki rukkaður aftur, þegar
hann fór út. Þessi stétt manna er
- 3. grein.
að mestu leyti útdauð, því að þeir
virðast ekki hafa náð fótfestu í
hinum nýrri útsölustöðum þessa
þjóðþrifafyrirtækis Á.T.V.R.
Þá taka við gamlar byggingar,
sem eins og Nýborg, ættu fyrir
löngu að vera horfnar, og svo
Völundur, sem væntanlega held-
ur velli á þessum stað.
Næst eru hin gömlu fiskverk-
unarhús Kveldúlfs, sem nýlega
hefur verið breytt í vöruskemmu
fyrir Eimskip. Þessi hús eru eins
og önnur mannvirki þessagengna
heiðursmanns, Thors Jensens,
alltaf til sóma hvar sem er. Hins
vegar eru þau ákaflega óheppi-
leg til þeirra nota, sem þeim er
ætlað í dag. 1 fyrsta lagi standa
þau öfugu megin við umferðar-
æðina og ekkert gert til þess að
laga það, og í öðru lagi gætu þau
fullnægt miklu meiri þörfum
Eimskips, ef staðurinn og undir-
staðan væri fullnýtt með 2—3
hæðum ofan á þessar byggingar.
Sláturfélag Suðurlands er við
þessa götu. Það hefur séð sér hag
í að geta varizt norðangarðinum
og hefur sína innganga úr lokuðu
porti með innkeyrslu frá Lindar-
götu.
Skúlagatan er eins og fyrr seg-
ir ein vinsælasta gatan í bænum
fyrir skrifstofu þreyttra borgara
til þess að njóta útsýnis og slappa
af og ein aðalæð fyrir þungavöru
frá og til hafnarinnar. Ennþá er
hún strandgata, en hve lengi það
verður með sömu landvinninga-
og uppfyllingarstefnu má guð
vita.
Súlnahöll Fiskifélagsins yrði
vissulega betur sett, ef þróunin
yrði sú, að nýtt land yrði mynd-
að framan yið Skúlagötu til þess
að forða henni frá ágjöfum.
Guðfinnur Þorbjömsson.
189