Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 11
en stærri togarar með meiri
mannskap.
Með sjálfvirkni og notkun véla
við afhausun, að fara innan í,
fletja, afbeina, roðfletta og
hreinsa fiskinn á vinnuþilfarinu
hefur náðst veruleg fækkun skip-
verjanna.
Öll veiðin er afhausuð og far-
ið inn í með tveim þar til gerð-
um vélum, sem 3 menn stjórna.
Þetta verk þurfti áður 8 menn
við.
Áður hefur ekki þótt taka því
að gera trollbúnaðinn vélrænan,
þ.e. við að setja trollið út og taka
það inn, því að menn voru ávallt
til á þilfari fyrir þetta verk,
vegna vinnunnar við fiskinn,
sem áður hefur verið handunn-
inn.
En þegar fækkað hefur verið
niður í 3 menn úr 8, varð ekki
hjá því komizt að vélræna troll-
búnaðinn. Hér er þetta gert á
þann hátt, að fjórar litlar vindur
eru notaðar í tengslum við eitt 5
trommla spil. Á þennan hátt má
komast af með færri menn við
trollið.
Annar útbúnaður er á skipinu
sem sparar menn. Er það tæki,
sem hreinsar smábeinin úr fisk-
inum og er smíðað inn í flatn-
ingsvélina.
Jafnvel eftir flatninguna eru
enn smá bein í fiskinum, sem
fram til þessa hefur orðið að
tína úr með höndunum til þess að
hægt væri að frysta roðlausan og
beinlausan fiskinn. — Til þessa
starfs hefur venjulega þurft 12
til 16 menn. Með vélunum er
komizt algjörlega hjá að nota
þessa menn, svo að útbúnaður
skipsins sparar 43 menn —
áhöfnin hér er 37 menn í stað 80
manna á venjulega útbúnu verk-
smiðjuskipi.
Skipið er 224 fet á lengd, það
er með 2350 hestafla Mirleesvél
og getur verið úti í 55 daga. —
Hraði þess er 13,5 sjómílur á
klst.
Þegar fiskurinn veiðist, er hann
tekinn úr trollinu og látinn gegn-
um tvær vökvastýrðar lúgur sitt-
VlKINGUR
Að' ofan sést aftur eftir vinnsluþilfarinu. Aftast sjáum við báðar Baader 188 flökunar-
vélarnar, en framan lil eru roðflettingarvélarnar tvær, Baader 47, sem afgreiða fiskinn
á færiband.
Baader 99, sem flakar stærri fiskinn.
Þvotta- og þurrkunarfæriband fyrir flökin. Eftir þvott og þurrkun flytur bandið fiskinn
að vélinni, sem mælir og vegur fiskinn í umbúðirnar fyrir frystingu.
191