Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 12
hvorumegin aftast á trollþilfar-
inu. Neðan við lúgurnar eru lest-
ar, sem hvor um sig tekur 7 tonn
af fiski. Er í þær látið til skiptis
úr öðru hverju hali og rennur
fiskurinn í þær eftir þar til gerð-
um rennum, og þarna geymist
fiskurinn í 4 til 9 klst. áður en
hann er tekinn til meðferðar. —
Þessi tími, sem fiskurinn er lát-
inn bíða, er mjög þýðingarmik-
ill liður í framleiðslunni. En fisk-
urinn er að stirðna eftir dauðann
í þetta langan tíma. Ef fiskurinn
fær ekki að stirðna í friði, kem-
ur það síðar fram við affryst-
ingu að hráefnið verður léleg
vara, sem á rætur sínar að rekja
til breytingar á vefjabyggingu
fisksins í dauðastríði hans.
Þegar stirðnunartíminn er lið-
inn, sem er dálítið breytilegur
eftir aldri og ástandi fisksins, er
hann tekinn sorteraður af manna-
höndum og kastað inn á þrjú mis-
munandi færibönd. Fiskur undir
26 þumlunum er látinn á færi-
band, sem flytur hann að vélum
er gera úr honum svokallaðar
,,fish finger blocks.“ Stærri fisk-
ur er settur á færiband, sem flyt-
ur hann að vélunum er breyta
honum í fiskflök- Allur annar
fiskur, sem ekki er hæfur til
vinnslu, fer eftir færibandi að
fiskimjölsvélunum. Er talið að
um 10% aflans hverju sinni fari
í mjölvinnslu.
Stjórnborðsmegin eru vélarnar
staðsettar, sem framleiða „fish
finger blokkirnar.“ Úr sorter-
ingsbalanum fer fiskurinn að vél,
Baader 163, sem afhausar hann
og slódregur. Vinnur vélin að 40
fiskum 14 til 29 þumlunga löng-
um á mínútu. Síðan flytzt fisk-
urinn að þvottakeri, þar sem
hann er þveginn á sjálfvirkan
hátt. Þaðan fer liann að Baader-
vél 188, sem flakar fiskinn. Um
borð í „Coirolanus" eru tvær
slíkar vélar. Önnur verður aðeins
í notkun í einu, hin er til vara
eða í notkun meðan verið er að
skerpa hnífa hinnar vélarinnar.
Á þessari vél er útbúnaður til að
ná öllum smábeinum úr fiskin-
um, sem er mikilvægt fyrir þessa
framleiðslu. Þessi búnaður hefur
ekki áður verið í notkun um borð
í skipi.
Frá flökunarvélinni fara flök-
in gegnum Baader 47 roðflett-
unarvél. Eftir það fer hráefnið í
nákvæma skoðun, þar sem ath.
hvort nokkur blóðsletta eða roð-
ögn sést í fiskinum- Sé svo er það
hreinsað af mannahöndum.
Að lokinni skoðun fer fiskur-
inn gegnum þvotta- og þurrk-
unarútbúnað, sem notar ferskt
vatn og síðan viftur til að blása
burtu óþarfa raka úr fiskinum,
áður en honum er pakkað og
komið fyrir í frystirnum. Þar
næst er fiskinum pakkað í blokk-
ir, sem sérstakt tæki mótar í
ákveðna þyngd hér, 27 lb (12,3
kg.) og eru umbúðirnar úr vax-
kenndum pappa.
Skipið er útbúið tveim lárétt-
um plötufrystisamstæðum af
Jackstonegerð. Hvor frystisam-
stæða um sig getur fryst 12 tonn
á dag. Er fiskurinn orðinn full-
frystur eftir 1 klst. og 20 mínút-
ur, en þá er fiskurinn tekinn út
og settur í lestina, sem tekur 375
tonn og haldið er í -f- 29 °C kulda.
Bakborðsmegin er vélbúnaður-
inn fyrir vinnslu stærri fisksins.
Úr sorteringsbalanum fer fiskur-
inn að Baadervél 164, sem af-
hausar og slódregur fiskinn, 21-
47 þumlunga langan. Þessi vél
hefur ekki áður verið notuð á
sjó. Frá þessari vél fer fiskurinn
um þvottaker að Baadervél 99
flatningsvél.
Eftir flatningu fer fiskurinn
beint á rannsóknarborðið. Og eft-
ir skoðun fær hann sömu með-
ferð og„fish fingers blokkirnar,“
nema hér er blokkstærðin 131/)
lb-
Þorskflökin eru þannig látin í
blokkirnar að þunnt plast er sett
milli laganna.
Allur fiskur annar en þyrsling-
ur og þorskur ásamt óætum hlut-
um þessa fisks fer beint í mjöl-
vinnslu, nema lúða, sem fer í sér-
staka geymslu.
Mj ölvinnsluvélarnar geta unn-
ið úr 20 tonnum af fiski og úr-
gangi á dag. Fæst 1 tonn af fiski-
mjöli úr hverjum 7 tonnum af
fiskúrgangi.
Til að vega upp á móti þunga
mjölvinnsluvélanna, sem eru
staðsettar til hliðar, er olíutank-
ur, sem tekur 42 tonn af diesel-
olíu. Þessi olía er notuð til að
bræða lifur, þegar hún er það
mikil að það borgar sig að vinna
lýsið.
Þá er skemmtilega útbúinn
klefi á vinnsluþilfari, þar sem
hægt er að fylgjast með aðalvél
og hjálparvélum ásamt frystivél-
unum og koma þar fram hljóð-
merki ef eitthvað er að vélbún-
aðinum.
Stuðst við frásögn í
Motor Ship og World Fishing.
192
VÍKINGUR