Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Page 20
Það var sirkussýning og maður
kom til forstjórans og bað um at-
vinnu.
„Hvað geturðu gert?“ spurðifor-
stjórinn.
„Allt,“ svaraði maðurinn.
„Ágætt, dýfingameistarinn hefir
forfallast. Farðu upp þennan stiga,
sem er 10 metra hár og stingdu
þér niður í ámuna, sem er undir,
hún er full af vatni.“
Maðurinn gerði það, og áhorfend-
ur klöppuðu og hrópuðu.
„Þetta var fínt númer,“ sagði for-
stjórinn ánægður. „Þú verður að
endurtaka það.“
„Endurtaka, nei, fjandakornið,"
svaraði hinn.
„Hvað hefurðu æft þetta lengi?“
„Æft? Ég hefi aldrei gert þetta
fyrr en nú!“
❖
„Hérna um daginn kom undarlegt
fyrir mig,“ sagði unga frúin við
vinkonu sína.
„Nú, hvað var það,“ spurði vin-
konan forvitin.
„Ég keypti bita af reyktum laxi
og lét hann í gluggakistuna, en um
morguninn var hann horfinn, en um
kvöldið var hann á sama stað.“
„Drottinn minn, er draugagangur
hjá þér?“
„Og næsta morgun var hann aft-
ur horfinn, en kominn á sinn stað
um kvöldið."
„Þetta er óskiljanlegt!“
„Já, þangað til að ég komst að
því að hann hafði krækst í rúllu-
gardínuna!“
*
Frú Jónína átti afmæli og eigin-
maðurinn komst að því að hana
langaði í einhver undirföt. Hann
sveimaði fram og aftur fyrir utan
kvenfataverzlun, en tók svo í sig
kjark, strikaði inn að búðarborðinu
og bað um brjóstahaldara.
„Sjálfsagt, hvaða númer?“
„Númer 58.“
„Svo stórt númer eigum við ekki
til, eruð þér viss um að yður mis-
minni ekki?“
„Nei, alls ekki, ég mældi það
sjálfur.11
„Og hvernig mælduð þér það?“
„Með hattinum mínum.“
*
„Nei, nei, elskan. Þetla eru bara nöfnin
á skipunura, sem ég liefi siglt á.“
*
Amerísk frú heimsótti Róm í
bílnum sínum. Hún skoðaði rústirn-
ar og sagði við ljósmyndara að hún
vildi fá mynd af sér við rústirnar,
en bíllinn mætti ekki sjást.
„Hversvegna ?“ spurði hann undr-
andi.
„Jú, sjáið þér, ef maðurinn minn
sér bílinn, heldur hann að þessar
rústir séu mér að kenna.“
FRÍ vaktin
í sögutíma.
„Þið skiljið, nemendur góðir, að
án föður síns hefði Alexander mikli
verið óhugsandi."
*
Pétur kom inn á hjúskaparskrif-
stofu og leit á nokkrar framboðs-
myndir, en hann virtist áhugalaus.
„Yður líst ekki sem bezt á þær?“
spurði miðlarinn.
„Þér verðið að afsaka," sagði Pét-
ur, „en mér finnst flestar þeirra
líta út eins og þær hafi verið pant-
aðar, en ekki teknar!“
*
Þú getur yfirleitt ekki tekið þér
meira eða minna vald en það, sem
þú hefir yfir sjálfum þér.
❖
Flest fólk vill frekar deyja en að
hugsa. í reyndinni er það líka það
sem það gerir.
❖
Frúin kom inn í sjálfsöluverzlun
og tók eitt karton af sígarettum,
sex ölflöskur, púðurdós, andhts-
krem og konfektkassa. Þegar kom
að kassanum og sá reikninginn,
hrópaði hún: „Drottinn minn, hvað
matvaran hefir stigið í verði!“
*
„Veiztu um nokkurn, sem vill
kaupa bíl?“
„Já, hann Kristján, ég seldi hon-
um bílinn minn fyrir mánuði síðan.“
200
VlKINGUR