Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 23
„Trausti“ 9,00 tonn. Smíðaður í Vestmannaeyjum 1913. Ólafur Ólafsson, Bjargholti, er fæddur aS Núpakoti undir Eyja- fjöllum 24. ágúst 1891. Foreldr- ar Ólafur Ketilsson, bóndi og kona hans Ingibjörg Ólafsdóttir. Ungur að árum fór Ólafur í ver til Eyja, á fyrstu mótorbátana, sem þangað komu. Var það á „Kristbj örgu“ til Magnúsar á Felli. 1919 var Ólafur formaður á „Trausta," þá einu vertíð. Eft- ir það keypti Ólafur part í „Siggu“ og gerði hana út nokkur úthöld. Síðar varð hann vélamað- ur hjá Bjarna Sveinssyni á „Ásu“ til ársloka 1929. Þá tók Ólafur við formennsku á „Siggu“ veturinn 1930 og gengu afla- brögðin mjög vel hjá Ólafi. Eftir það fluttist Ólafur brott úr Eyjum til Reykjavíkur og hef- ir unnið við múrverk fram á þennan dag. Ólafur var góður og öruggur sjómaður, einn af þeim góða stofni er fluttizt und- an Fjöllunum og lagði sitt til uppbyggingar í Eyjum. VÍKINGUR „Freyja 1“ 9,5 tonn. Siníðuð' í Vestmannaeyjum 1911. Tómas Þórðarson, Varmahlíð, er fæddur að Rauðafelli undir Eyjafjöllum 17. janúar 1886. Foreldrar Þórður Tómasson, bóndi og formaður og kona hans Guðrún Tómasdóttir. — Þriggja vikna gamall fór hann að Varma- hlíð undir fjöllunum til móður- bróður síns Sigurðar Tómasson- ar og konu hans Þóru Torfadótt- ur. Var hann þar til þrítugs. Hann byrjaði ungur sjó- mennsku á opnum skipum frá Eyjafjallasandi og úr Eyjum. Var á þeim þar til vélbátarnir komu til sögunnar. Réðist hann fyrst á „Lunda,“ formaður Guðleifur Elísson frá Brúnum. 1913 tekur hann við formennsku á „Freyju I.“ Var hann með bátinn þá einu vertíð. Þá réðist hann til Sveins Jóns- sonar, Landamótum, á „Sæfara.“ 5. janúar 1916 fórst „Sæfari“ vestur af Eyjum í ofstopa veðri, en skipshöfninni varð bjargað af Frli. á bls. 210 „Blíða“ 6,00 tonn. Smíðuð' í Danmörku 1907. Isleifur Jónsson, Nýjahúsi, var fæddur að Leirum undir Eyja- fjöllum 7. sept. 1881. Foreldrar Jón Helgason, bóndi þar og Guð- rún Sveinsdóttir kona hans. Til Eyja er Isleifur kominn laust fyrir aldamót alfarið. Var hann sjómaður á opnum skipum og síðar formaður til þess síðasta er voru gerð út, sem vertíðarskip. Var hann þá með „Fleyið.“ 1907 fór Isleifur á vélbáta og 1912 er hann formaður á „Blíðu,“ sem hann átti ásamt fleirum. Hafði hann formennsku á henni nokkr- ar vertíðir. Sjó stundaði ísleifur svo undir annarra stjórn fram yfir 1930, lengst af á „Ester,“ sem hann átti ásamt fleirum. Is- leifur var allur við sjóinn og stundaði hann vetur og sumar. Hann þótti vel liðtækur, ósérhlíf- inn og duglegur. Skapgóður á hverju sem gekk. Hann lézt 20. desember 1958. 203

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.