Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Page 25
sveitinni var mjög gott og miMu betur verkað saltkjötið þá, held- ur en nú fæst. Mér finnst ég aldrei fá núna jafngott saltkjöt eða hangikjöt og þá var. Nú þarna var ég kokkur í 2 ár, og var ráðinn upp á 12 kr. á mán- uði í kaup, auk þess fékk ég 5 aura fyrir hvern fisk, sem ég dró. Hvort heldur var stór eða lítill fiskur. En fyrsta árið dró ég þó engan fisk, því að nóg var að gera í kokkaríinu. — Fékk þá húsbóndinn 12 kr. á mánuði fyrir þig? — Já, 12 krónurnar fóru þang- að og fékk ég svo hlut í þeim ásamt fæði yfir tímann, sem heima var verið. Þorsteinn gamli skipstjóri lofaði mér 18 kr. á mánuði, ef honum líkaði við mig. — Stóð hann ekki við það? — Jú, heldur betur, því að þeg- ar ég hætti hjá honum, greiddi hann mér 30 kr. á mánuði, sem þótti mikið kaup. Á öðrum skip- um höfðu kokkar mikið minna. Jafnvel fullorðnir menn fengu yfirleitt ekki nema 12 kr. — Hvaða ár var þetta? — Þetta hefur verið árið 1898. Það var dálítið merkilegt aðkokk- arnir voru annaðhvort unglingar eða eldgamlir menn, sem ekki gátu staðið við færið. — Nú, þannig hélt lífið áfram? — Já, en upp úr aldamótunum var ég orðinn þreyttur á skútu- lífinu og langaði að breyta til, en oft gat maður hlegið á skútun- um. Eg hefi ekki hlegið öllu meira í annan tíma en þar. Þetta var þó mikið undir yfirmönnun- um komið. Sumir vildu ekki leyfa strákunum að fljúgast á uppi á dekki, því að þeir óttuðust að menn hrykkju fyrir borð, enda var lunningin á þessum skipum mjög lág. Þó var aldrei flogistá nema í góðu veðri. Aðrir höfðu unun að því og beinlínis stund- um eggjuðu menn til að takastá. Tveim skipstjórum var égmeð, sem þótti sérlega gaman að láta strákana tuskast. Það voru Björn ólafsson frá Mýrarhúsum og Ingólfur Lárusson, faðir Lárusar VÍKINGUR Ingólfssonar, leikara, sem marg- ir kannast við. — Ingólfur var ljómandi skipstjóri og nettur stjórnari- Þegar einhver varð undir í á- flogunum, hjálpaði Ingólfurþeim til að standa upp. — Með hvaða skip var Ing- ólfur? — Hann var með „Guðrúnu" frá Gufunesi, sem var rúm 80 tonn. — Hvernig var verkaskipting- in. Voru ekki sérstakir saltarar um borð? — Nei, það kunnu allir að salta. Verkaskiptingin var þann- að kvöldvaktin gerði að fiskinum eftir að dimma tók og fiskur hættur að bíta á. En næturvaktin kom fiskinum niður og saltaði hann og þreif dekkið. — Manstu eftir nokkru eftir- minnilegu frá skútunum? — Einn atburður er mér minnisstæður, en það var þegar við stálum skipinu, sem ég var á. Þetta var mannskaðaveturinn, — þrjú skip höfðu farizt með allri áhöfn. Við komum inn til Reykjavík- ur rétt fyrir páskana til að sækja nýjan stýrimann, sem var að ljúka prófi við skólann. En við misstum stýrimann okkar á leið- inni inn, sjórinn tók hann, þar sem hann stóð við stýrið. 1 Rvík lágum við meðan mesta veðrið gekk yfir, en fórum svo upp á Akranes til að sækja hluta af áhöfninni. — Skipstjórinn hafði leyft mönnunum að fara upp á Akranes, en þeir áttu þar heima. Skip þetta hét „Anna Breið- fjörð,“ síðar kallað „Valtýr.“ I blíðviðri var farið frá Rvík til að sækja mennina og lagst á Krossvíkina undan Akranesi. — Skipstjóri og nýi stýrimaðurinn fóru í land til að hitta vini og kunningja, enda báðir frá Akra- nesi. Þegar þeir voru nýkomnir á land, snarhvessir af suðaustan og stendur beint upp á. Við vorum eitthvað 5 strákar um borð. Skipstjóri og stýrimaðurfengu sexmanna far til að reyna að komast út, en tókst ekki að kom- ast nema hálfa leið og urðu að láta sakka í land aftur. Þá voru engir mótorbátar komnir. Okkur strákunum varð nú ekki um sel og vorum við hræddir við að skipið kynni að reka upp í klettana og brotna þar, en mörg skip höfðu farizt þarna áður. Kom okkur saman um aðfara út. Drógum við upp akkerin og hífðum upp seglin, sem við þurft- um og byrjuðum að krusa út. Akkerin létum við eiga sig og dingluðu þau við klussin. Út fyr- ir flösina komumst við og hægð- um þá á okkur og bóguðum bæði akkerin og hagræddum seglum. Létum við síðan hala út á Fló- ann í áttina að Garðsskaga. Eg þekkti vitana þarna og vissi hvað leið. Um nóttina batnaði veðrið og héldum við þá í áttina til lands og komum um fótaferða- tíma til Akraness. Voru skip- stjóri og menn hans þá ekki lengi að koma út. — Hver átti skipið? — Það var Valgarður Breið- fjörð, sem keypti skipið frá Eng- landi. Var skipið þá trollari með bómmutroll og gufuketil til notk- unar við trollið. En segl yorU notuð til að sigla trollinu áfram. Þessi háttur tíðkaðist, áður en vélarnar komu. En ekki heppn- aðist þessi veiðiaðferð hér. Valgarður var efnaður maður og átti stóra húsið vestan við Morgunblaðshúsið, þar sem „Gamla bíó“ var fyrst til húsa. — Hvernig var það, Eiríkur, höfðu menn ekki hver og einn sitt mark til að merkja fiskinn, sem þeir drógu? — Jú, hver maður átti sitt mark. Þegar fiskurinn var dreg- inn, skelltu menn honum inn á dekkið, tóku úr honum gelluna og geymdu í skrínu hjá sér og merktu síðan fiskinn marki sínu. — Voru þetta sporðmörk? — Ekki gátu allir haft sporð- mörk, því menn voru það margir á. T.d. voru 26 menn á „önnu Breiðfiörð" og voru því möi'kin margvísleg, svo sem blaðstíft, hamrað, sneitt, sýlt og heilhamr- að og allt svoleiðis, sem maður 205

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.