Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 31
Hann bjargaði Þetta reyndizt aðeins forustuflokk- urinn, því á eftir komu tveir aðrir. Það var slembilukka að við urðum ekki á vegi þeirra, en það, sem bjargaði okkur, var að við flugum mjög lágt, svo að þeir komu ekki auga á okkur, annars hefðu orustu- flugvélarnar, sem fylgdu, skotið okkur niður á augabragði. Við komum að húsi General Stu- dents alveg óskemmdu, en okkar eigið, Villa Tuskulum 11, var illa farið, — hafði orðið fyrir tveim sprengjum. Við vorum stöðvaðir af liðsforingja, sem sagði að í kjallar- anum væru tvær ósprungnar tíma- sprengjur. Við fórum samt til her- bergja okkar og náðum í hafurtask- ið og skjöl. Tala hinna föllnu og særðu óbreyttu borgara hlýtur að hafa verið há, en aðeins örfá þeirra húsa, sem þýzki herinn hafði, höfðu orðið fyrir sprengjum. Hermennirn- ir unnu sleitulaust að ruðningsstarfi og við að leggja bráðabirgða síma- línur, og eftir stuttan tíma var mest aðkallandi viðgerðum lokið. Radl og ég urðum að fara til Róm- ar, til þess að hitta að máli nokkra ítalska liðsforingja, sem við frétt- um að væru að ráðgera björgun Mussolinis. Ég vildi endilega vita hvað þeir hefðu í huga, því að þetta gat auðveldlega seinkað mínum að- gerðum, eða eyðilagt áætlun mína alveg. Það kom í ljós að þrátt fýrir að þeirra ráðagerð væri ágæt, var undirbúningurinn ekki nærri eins langt kominn og hjá okkur. Það var orðið áliðið dags, þegar ég ók um götur Rómar, til þess að sækja Radl, sem var á þýzkri skrifstofu á öðrum stað í borginni. Ég tók eftir að hóp- ar fólks höfðu safnast saman við hina almennu hátalara, og þegar ég ók inn á Via Veneti, var þröngin svo mikil að ég komst lítið áfram. Tilkynningu á hátölurunum var tek- ið með miklum fögnuði af mann- fjöldanum og víða heyrðist hrópað: — Viva II Re! (lifi konungurinn). Konurnar kysstu börnin og æstir hópar manna voru í hörku stælum. VÍKINGUR MUSSOLINI Ég stöðvaði bílinn og heyrði hróp- að: —■ Italska stjórnin hefur gefist upp! í sendiráðinu hitti ég Radl. Seinna frétti ég að general Eisen- hover hefði tilkynnt uppgjöf ítala yfir útvarpið í Algíer. Sú staðreynd að Badoglio hafði tilkynnt þetta seinna en Bandamenn, benti til þess að þeir .hafi viljað tryggja sér að Badoglio héldi loforð sín. Bandamenn höfðu ákveðið að land- gangan við Salerno skyldi fara fram aðfaranótt 8. september og urðu að halda sig við þá ákvörðun. Þessar aðgerðir og loftárásin á Frascati, áttu að vera til þess að gera ítölsku stjórninni hægara um vik. Upplýs- ingaþjónusta okkar hafði gefið upp- lýsingar, sem bentu til þess, að í bækistöðvum Eisenhovers væri í at- hugun að senda fallhlífarsveitir til Rómar. Með tilliti til þess, hve fá- liðaðir við vorum þar, myndi sú hernaðaraðgerð verða okkur ó- skemmtileg. Dögum saman braut ég heilann um, hvort Mussolini væri í raun og veru á hótelinu í Gren Sasso, einu heimildirnar fyrir þeirri staðhæf- ingu voru til þessa frá tveim ítöl- um, sem sögðu mér þetta, án þess að þekkja ástæðuna fyrir þeirri for- vitni minni. Ég vildi mjög gjarna fá þetta staðfest af Þjóðverja. Það mátti télja víst, að enginn fengi að koma nálægt hótelinu sjálfu, sem var einangrað frá daln- um fyrir neðan, að öðru leyti en því, að þaðan lá ein rafmagnsbraut. En ég hélt að hægt væri að fá einhvern Þjóðverja til þess að ferðast þarna um, undir einhverju meinleysislegu yfirskini. Tækifærið gafst von bráð- ar og ég greip það fegins hendi. Ég þekkti þýzkan herlækni í Róm, sem hafði mikinn áhuga á heiðursmerki. Hann hitti ég og sagði honum hvern- ig hann gæti unnið hershöfðingja sínum mikið gagn. Allir malaríu- sjúklingar höfðu til þessa verið fluttir til lækninga á Týrol hálendið. Ég benti honum á, að vert væri að athuga hótelið í Gran Sasso, sem ég hefði heyrt getið og taldi mjög heppilegt til slíkra hluta, þar sem það lá í um 2000 metra hæð. Hann skyldi setja himin og jörð á hreyf- ingu, til þess að hitta forstjórann sjálfan, fá upplýsingar um rúma- fjölda og gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir. Læknirinn samþykkti að hef jast handa strax daginn eftir, en ég varð að viðurkenna með sjálf- um mér, að mjög vafasamt væri, hvort hann kæmist lifandi frá þessu. Starfsfólkið í sendiráðinu í Róm var sent til Frascati, undir vernd þýzka hersins. Við Radl gengum á Niðurlag úr síðasta blaði. SíSast endar frásögnin á því, aö Skorzeny, sem viSa hefur leitaS aS Mussolini, hefur fregnaS aS Mussolini sc í haldi í fjallagistiliúsi viS fjalliS Gran Sassi. ÞangaS flýgur liann og tekur myndir úr lofti af staSnum til aS getu síSar skipulagt leiSangur aS gistihúsinu. Á leiSinni heim sjá þeir flugvélahópa gera sprengiárás á bœkistöSvar þcirra. 211

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.