Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 37
og vitlaus maður, og við höfðum
hoppað yfir margar ójöfnur, þegar
gapandi gljúfur kom í ljós beint
framundan. — Þetta er vissulega
endirinn, hugsaði ég, þegar fuglinn
okkar hófst allt í einu á loft. Ég
andaði frá mér þögulli þakkarbæn.
Þá rakst vinstra hjólið enn á ójöfnu.
Vélin hallaðist til hliðar og stefndi
niður í gljúfrið. Með því að beita
vélinni til vinstri, tókst Gerlach að
skríða yfir gljúfurbarminn.
Ég lokaði augunum og hélt niðri
í mér andanum og bjóst enn við ó-
hjákvæmilegum endalokum. Vindur-
inn kvein fyrir eyrum okkar.
Þetta hlýtur að hafa verið aðeins
nokkrar sekúndur, því þegar ég leit
í kringum mig, hafði flugmaðurinn
náð valdi yfir vélinni og hún komin
á nokkurnveginn réttan kjöl, og nú
höfðum við náð nægilegri ferð, jafn-
vel í þessu þunna lofti. Við flugum
yfir dalinn í mesta lagi 30 metra
hæð. Allir vorum við nokkuð fölir á
vangann, en enginn hafði mælt orð
af vörum.
Það var ekki að hætti hermanna,
þegar ég lagði höndina á öxl Duce,
sem nú loks var örugglega sloppinn.
Hann hafði nú náð sér að fullu og
fór að segja mér ýmislegt um svæði
þau, sem við flugum yfir, í um 100
metra hæð, svo gættum við þess að
rekast ekki á hæðirnar.
— Einmitt hér ávarpaði ég mik-
inn mannfjölda fyrir tuttugu ár-
um... Hér jarðsettum við góðan
vin.. . minntist Duce.
Loks lá Rómaborg fyrir neðan
okkur, á leiðinni til Pratica di Mare-
flugvallarins.
— Haldið ykkur fast! hrópaði
Gerlach. — Tveggja punkta lend-
ing! Ég minntist skemmdanna á
vinstra hjólinu. Síðan var gætilega
lent á hægra framhjóli og aftur
hjóli. — Ferð okkar var á enda.
Melzer kapteinn tók á móti okkur
á flugvellinum og bauð okkur vel-
komna, í nafni Students. Óskaði
okkur hjartanlega til hamingju með
hinn velheppnaða leiðangur. Þrjár
He 111 flugvélar biðu á vellinum, og
eftir að hafa fengið tækifæri til þess
að kynna áhafnirnar fyrir Musso-
líni, kvaddi ég Gerlach, með þakk-
læti. Við máttum engan tíma missa,
ef við ættum að ná til Vínarborgar
fyrir myrkur.
❖
Kafli úr bókinni: „Skorzeny’s Spe-
cial Missions." Rituð af honum
sjálfum.
VÍKINGUR
Veðurathugunarhnettir.
Tírus 1. fór á loft í Apríl 1960, og 12 dögum síð-
ar var sendur upp Transit 1., sem er leiðarviti
skipa á Atlantshafi. Tíros 1. hefur gefið margar
og merkilegar upplýsingar um veðramyndanir á
Atlantshafinu og Kyrrahafi.
Tiros 3. var sendur á loft í september 1961, og
sendi sjónvarpsmyndir af óveðri sem var að fæðast
á Atlantshafi, og enn veit enginn hvaða gagn og
óteljandi möguleika og árangri er hægt að ná með
hnöttum þessum. Keflavíkurflugvöllur fær sendar
myndir frá Tiros 9., og munum við þannig njóta
góðs af honum í framtíðinni.
* *
Einhver merkilegasta uppgötvun sem gerð hefur
verið í geimnum til þessa, kom frá ameríska gervi-
tunglinu Könnuði 1., en hann sannaði að jörðin
væri umvafin óhemjumiklum geislahjúpi, sem
segulsvið jarðarinnar héldi í greipum sér. Hefur
belti þetta verið kennt við Dr. James Van Allen,
sem fyrstur fann skýringar á því.
Beltið tekur yfir 80.000 kílómetra svæði milli
jarðar og sólar, en sólvindurinn hrekur það ca.
300.000 kílómetra vegalengd forsælis frá jörðu. í
belti þessu er geimförum búin alvarleg geisla-
hætta, rétt við dyr geimsins að kalla. Sólvindur-
inn er straumur smá agna, sem geislast út frá
sólu, og á rætur sínar að rekja til eldgosa á yfir-
borði sólarinnar. Hraði hans getur farið upp í
1.600 kílómetra á sekúndu. Bragandi Norðurljósin
eiga tilveru sína í þessum smáu rafhlöðnu ögnum,
en þessi ógnþrungnu prótónuský geta orðið geim-
förum hættuleg.
Eftir 5 ár af geimöld okkar var fjöldi gervi-
tungla orðinn svo mikill, að upptalning á þeim
yrði margar prentaðar síður, sum voru skammlíf
og brunnu upp til agna eða sundruðust, önnur geta
endst öldum saman, og enginn sér fyrir enda þessa
ævintýris.
Gemini 14., síðasta geimskeyti Bandaríkja-
manna, markar tímamót í eldflaugasögu þeirra.
Næst tekur við Appolo áætlunin með mönnuð geim-
för til tunglsins árið 1969, og verður sú eldflaug
120 metrar á hæð, verða gerðar 11 tilraunir með
appolo eldflaugarskot áður en tunglflug hefst. 50
manna geimfarahópur er nú í stífri þjálfun fyrir
þessi flug. 400.000 manns vinnur að smíði appolo
skeytanna, og turninn, sem þeim verður skotið
úr, er um 175 metrar á hæð, 172 metrar á lengd
og um 170 metrar á breidd. Áætlun þessi er álitin
kosta um 20 billjónir dollara.
217