Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Page 39
u.
Myndin sýnir hvernig sjóininjasöfn koma
upp hjá sér eftirlíkingnm af skipum frá
gámla tímanum, sem sögulegt gildi hefur
aó geyma.
kynna hvemig og hvar hver
þeirra var notaður.
Sú starfsemi safnsins, sem
fram fer að tjaldabaki, og fæstir
gestir safnsins sjá, en er þó sér-
staklega mikilvæg fyrir varð-
veizlu haf-vísinda er bókasafn,
ljósmyndasafn, málverkasalur og
gífurlegt safn sjókorta. — Menn
sem fást við rannsóknir, sækja
mikinn fróðleik í þessar deildir
safnsins.
Starfslið bókasafnsins fæst
einnig við talsverðar sjálfstæðar
athuganir, og hafa verið gefnar
út 20 ritsmíðar, þar á meðal hin
þekkta Ashley-bók um hnúta. —
Menn þeir, sem ábyrgð bera á
Mariners Museum, hafa unnið
mikið og þarft verk, þeir tak-
marka ekki starf sitt við neina
sérstaka þjóð eða skipategund.
Alúð sú og virðing fyrir verkefn-
inu er allsstaðar kemur fram,
eykur mjög á ánægju sýningar-
gestanna, og hve vel hefur tekist
til um val og varðveizlu, og skil-
greiningu á þeim þúsundum
muna er þama eru til. Það má
geta þess, að til er á safni þessu
afsteypa af styttu Leifs Eiríks-
sonar heppna, er valin hefur ver-
ið fagur staður í lystigarðinum,
og sómir sér vel á slíkum stað,
þáttur hans í sögu Ameríku hef-
ur sannarlega ekki verið fyrir
borð borinn. Það má með sanni
segja, að safnið hafi verið trútt
einkunarorðum sínum, sem skrif-
uð eru á bronz-hurðina við inn-
ganginn: „Þetta safn er helgað
minningu og sigrum mannsins
yfir hafinu, og áhrifum þess á
framþróunina.“
Björn þýddi.
Séð inu í daiiBkt sjóminjasafn.
VÍKINGUR
219