Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 1
EFNISYFIRLIT: bls. Þeir líta reidir um öxl 1 G. Jensson Saniileikiirinn í bátadeilunni 3 Orn Steinsson Frásögn af Ymisstrandinu 4 Sigurjón Einarsson • Þorp á svörtum sandi 6 Gunnar Magnússon /rá Reynisdal • Vanræktur atvinnuvegur 9 Böíívar Steinþórsson • Laun fannanna 11 Sigurbjörn Guðmundsson Slys á sjó G. Jensson tók saman 14 Helge Ingstad og íslenzku landafundirnir 20 Henry Hálfdansson Landssmiðjan 30 Guðfinnur Þorbjörnsson Koma seglskipin aftur? Skynsemin skilin eftir Guðfinnur Þorbjörnsson Giflusöm björgun Frívaktin o.fl. Forsíöumyndin er fengin aó láni úr tímaritinu Soviet Union. 32 35 37 Si ijonic dUií VIKIIXIGUR Úlgefundi F. F. S. 1. Ritstjórar: Guð mundur Jensson (áb.), Orn Steinsson Ritnefnd: Ólafur V. Sigurösson, Hall gríinur Jónsson, Hcnry Hálfdansson Sigurður Guðjónsson, Anlon Nikulásson Guðm. l’étursson, Guðin. Jensson, Örn Steinsson. Blaðið ketnur út einu sinni í mánuði og kostar árgangurinn 350 kr, Rilsljórn og afgreiðslu er að Bárugötu 11, Rcykjavík. Utanáskrift: „Víkingur,“ póstbólf 425, Reykjavík. Sími I 56 53. Prentað í ísafoldarprentsmiðju li.f. Si yjomanna iLiii Ölk VIKINGUR 'ldtgefa n dr’: ^da 3ióh armanna- og ^iihnnannaianii 'iband d^ifandi Ritstjórar: Guó'iu. Jensson áb. og Örn Steinsson. XXXI. árgangur. 1.—2. tbl. 1969 (OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO GUÐM. JENSSON: Þeir líta reiðir um öxl Þegar á áliðnu liausti var forustu- ntönnum þjóðarinnar orðið Ijóst að efnahagsástandið liafði náð þeirri lægð að róttækar aðgerðir virtust óumflýjanlegar. Re^Tidar mætti álíta, að þegar á áliðnu ári 1967, þegar síldin hafði lagst frá landinu og afrakstur þeirr- ar veiði liafði rýrnað eins og raun har vitni; að þá þegar hefðu fram- sýnir stjórnendur og ekki sízt efna- liagsráðunautar þjóðarbúsins, mátt fara að glugga eilítið dýpra í fjár- málaástandið, semja áætlanir fram í tímann með þaðfyriraugum, aðvera viðbúnir að mæta efnahagslega ó- hagstæðum sveiflum, sérstaklega þegar ljóst lá fyrir að hámarkstíma- bil þjóðarteknanna gerði lítið betur en að starnla undir afborgunum er- lendra skulda, öflun framleiðslu- tækja, innflutningi óþarfa varnings og eyðslu almennings, sem lítil tak- mörk voru sett. „Síldarævintýri“ er ekki nýtt fvrirbrigði á landi hér og með sögu- lega reynslu að baki í þeim efnum, hefði verið mjög liyggilegt að gera fyrr heldur en síðar ráð fyrir þeirri staðreynd, að sjávaraflinn er svip- ull, ekki sízt þegar um síldargöng- ur er að ræða, en við vitum að þær eru sjaldan árvissar til langframa. Það mun sízt ofmælt að sú efna- hagslega gróska, sem allur landslýð- ur naut í ríkum mæli góðs af og hófst upp úr síldveiðunum 1962, hafi byggst í einu og öllu á þeirri auknu tækni, sem sjómenn tileink- LANBRBOK ASAFN 2 s e o e i, fSLAIIDS uðu sér við síldveiðarnar; þ.e. kraft- blokk og hringnót. Þrált fyrir að hlutaskipti sjó- manna liöfðu verið rýrð með Gerð- ardómsúrskurði í júlí 1962, upp úr kjaradeilu við útgerðarmenn, — auðvitað til bjargar útveginum, — færðu næstu 5 aflaár þeim allgóðar tekjur, sem rétti þá efnaliagslega allvel úr kútnum. Það stóð lieldur ekki lengi á því, að ýmsar stéttir í landi, allt frá bændum til hálaunastétta og þar í tnilli, liæfu kröftulega launabar- áttu, byggða á samanburði við tekj- ur sjómanna. Þessi launapólitík bar vissulega árangur og var þetta í sjálfu sér ekki óeðlilegt fyrirbrigði, meðan tekjurnar af sjávarútveginum megn- uðu að standa straum af þeim auknu útgjöldum, enda þurftu ýms- ar launastéttir að rétta hlut sinn, þ.á.m. opinberir starfsmenn. Með áframhaldandi aflabrögðum liefði „velgengnishjólið“ sennilega oltið áfram um hríð, en snemma á árinu 1967 greip hin óviðráðanlega bremsa í það. Síhlarafurðir féllu í verði, en síldin lét sér fátt'um finnast og leit- aði uppi sína átu og kjörhita í sjón- um, og í þetta skipti 7—800 sjó- mílur austur í hafið og suður í Norðursjó. Tekjur síldveiðisjómanna rýrn- uðu í réttu hlutfalli við aflabrögðin og þrált fyrir atorku þeirra við að sækja á liin fjarlægu mið var svo

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.