Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Qupperneq 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Qupperneq 4
Sifiurjón Einamwn, sliipsijóri: Frásögn í febrúar 1916 Ég settist í Stýrimannaskólann haustið 1915 og var þá orðinn 18 ára. Þegar fram í febrúar kom 1916 var enginn aur eftir, þrátt fyrir það, að spart hafði verið á haldið. Faðir minn sneri þá út pláss fyrir mig, svona til reynslu á togaranum „Ými“ frá Hafnar- firði. Fór ég þar um borð 27. febr. Skipstjórinn á „Ými“ var Ól- afur Þórðarson, hafði hann verið með skipið frá því það kom nýtt til landsins í byrjun fyrri heims- styrjaldarinnar. Ólafur var einn þeirra skútu- skipstjóra, sem tók togara. Hann hafði verið með kútter „Sjönu“ og aflað vel. Honum gekk líka vel að fiska á „Ými,“ en að sjálf- sögðu háði reynsluleysi gömlu skútu-skipstjórunum, mjög við veiðar á togara. Stýrimaður á „Ými“ var Magnús Kærnested, ungur og upprennandi maður á þessu sviði. Léttlyndur og kátur maður, sem ekki dró úr því að einhverjar smá brösur ættu sér stað með hinum yngri mönnum þarna um borð. Allt í gamni þó. Bátsmaðurinn var Jóhannes Narfason, mikill vinnuþjarkur og framúrskarandi samvizkusamur. Ég datt heldur betur í það, þennan fyrsta túr minn á „Ými“, því við lentum í sjóð-nógum ufsa og fylltum skipið á 4 dögum. Það voru hel.dur snögg viðbrigði fyrir mig beint af skólabekknum, en Á Ymisstrandinu Hrein jiessi burst Sjómannablaðinu YíUinij rétt fyrir síó- usíu jól. Er hún síðasta rityrrð Siyurjóns Einarssonar, shipstjóra, en hann veihtist shfindileiia í 75 ára afmivlis- hófi Öldunnar 3. jan. oy lézt Juí urn nóttina sem hunnuiit er. Sifiurjón shrifaði oft í Yíhimj »(/ var Jní jafnan shorin- orður oy shemmtileijur. Ávallt var hann traustur liðsmað- ur sjómannasiétiarinnar otj munaði heldur betur um, er hnnn heitti sér. Blaðinu er Jiví Ijúft að mega birta Jicssa sérstirðu ijrein tifj Jiahhar jafnframt lanija samfjilijd of/ </«<) hynni við Siyurjón á liðnum árum. Ö. S. ég hafði það þó af að halda pláss- inu. Föstudaginn 29. marz rauk hann upp með hörku, norðaustan roki, frosti og snjókomu. Við vorum þá á Selvogsbanka og andæfðum upp í veðrið í átt til lands. Veður þetta olli miklu tjóni. Vélbáturinn „Hermann“ frá Vatnsleysu fórst með manni og mús. V.b. „Guðrún“ frá Bol- ungavík sökk, en v.b. „Freyja“ bjargaði mönnunum. Kútter ,,Ester“, skipstjóri Guðbjartur Ólafsson, bjargaði 38 manns af 4 Grindavíkur áraskipum, og mann tók út af bát frá Sand- gerði. Við á „Ými“ urðum svo fyrir því slysi að rekast á sker vestan til við Þorlákshafnarbjarg. Skip- ið festist ekki en varð flóðlekt, það hafði verið andæft með hægri ferð, kolsvarta bylur var á svo að ekkert sást til. Það voru nokkrar mínútur liðnar frá vaktaskiptum. Við sem vorum að fara af vakt, vorum í þann veginn að stinga okkur í kojuna, þegar skipið rakst á. Það flýtti sér hver sem betur gat að komast upp og taka til starfa, en þar var hvergi greitt um, því allt var einn klakabálkur. Surnir gengu í að brjóta af bátunum, aðrir að brjóta ofan af lúgum til þess að komast að til að ausa, ef leki skyldi vera kominn svo mikill að skipinu að véldælurnar hefðu ekki undan. Þegar loks var hægt að lyfta lúgunum kom í ljós að mikill sjór var kominn í lestar, og var þá hafizt handa um stampa-austur. Skipinu var haldið eins næ'rri landi og framast var unnt, og lagzt fyrir akkeri. Þrátt fyrir að ausið var af kappi, hækkaði sjórinn stöðugt í lestum, en hvorki lak í lúkar né vélrúmi. Spurningin var því, hvort skipið bæri fullar lestar af sjó á lúkar og vélrúmi, ef ekki kæmi að því áður að við hefðum undan lekanum. Þegar sjórinn v-ar kominn það hátt að hægt var að standa á lestarborðum, sem flutu upp og halda sér í lúgukarminn og sei- last niður til að sökkva í fötun- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.