Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 15
StandiiV aldrei undir lieisi, livorki í lest eða á dekki! Verið sérstaldega varkárir á þeirri skipghliðinni, sem unnið er. Það get- ur fallið úr heisinu. Bomman getur sveifl- ast til í ótíma og valdið slysi. unnar, eru m.a. atriði, sem þung eru á metunum, þegar leitað er eftir aðalorsökum slysa. Þó ber að geta þess, að ósjald- an kemur fyrir, að á skortir að hlutdeild mannsins sé að fullu og öllu rannsökuð, og er hætta á að hún sé á stundum notuð sem skálkaskjól, í stað þess að af- greiða slysaorsökina sem óupp- lýsta. Vörn gegn slysum. Slysakostnaðurinn, 25 til 30 millj. d. kr. á ári, að viðbættum þjáningum hinna slösuðu, er geysihár. Um þetta eru allir sammála, og það hlýtur að vera hægt að vinna að fullkomnari vörnum. Með nán- ari samvinnu við yfirmenn skip- anna má ennþá ná verulegum ár- angri í því að koma í veg fyrir slysin. Skipstjórnarmenn hafa með höndum víðtækustu völdin um borð í skipunum. Þeirra eru ekki einungis völdin, heldur einnig það, sem sérstaklega er nauðsyn- legt í þessu efni; skyldurnar til að stjórna og skipuleggja hvort- tveggja; siglingu skipsins og vinnu skipverja um borð og ferð- ir þeirra milli skips og lands. VÍKINGUR ----------------------------------------------------------------------------—~ Fyrir nokkrum árum tók ég saman nokkur atriði hér í Vikingnum varð- andi slys um borð í skipum. Vegna þess, að öryggismálin eru „eilífðarmál", sem aldrei firnast, er ekki óviðeigandi að endurvekja nokkur atriði til þess að rifja upp fyrir mönnum hina sífelldu slysahættu, sem fylgir þessari at- vinnugrein. öll Norðurlöndin fjögur hafa um árabil staðið að samnorrænni rann- sókn og ráðstöfunum til þess að koma í veg fyrir slys og tryggja öryggi sjómanna. Þessi þáttur norrænnar samvinnu, ásamt fleirum, er snerta atvinnuskil- yrði sjómanna á vissulega erindi til okkar og er reyndar furðulegt, að ís- lendingar skuli ekki hafa gerzt aðili að Samnorrænu nefndinni, en slíkt samstarf gæti aldrei orðið okkur nema til góðs. Rannsóknir nefndarinnar byggjast í meginatriðum á því, að spurninga- listar eru sendir skipstjórum og yfirvélstjórum .verzlunarskipanna til út- fyllingar, ásamt viðtölum við ýmsa viðkomandi aðila, og á úrvinnslu á þeim gögnum, sem nefndinni berast byggir hún sínar niðurstöður og semur sinar varúðarráðstafanir. Störf samnorrænu nefndarinnar hefur haft mjög heillavænleg áhrif á öryggismál norrænna sjómanna. Ótalmargar endurbætur hafa verið framkvæmdar og fjöldi atriða komið fram, sem í fljótu bragði kunna að virðast þýðingarlitil, en eru við nán- ari athuganir þýðingarmikill þáttur í heildarniðurstöðum rannsóknanna. Eftirlitsmenn skipa og véla eru oft þýðingarmiklir tillöguaðilar um ör- yggisreglur vegna þess, að frá þeim koma iðulega hörðustu kröfurnar. Nefndin hefur bent á aðkallandi þörf á bættri þjálfun viðvaninga, með það fyrir augum að auka menntun og starfshæfni sjómannsefna og byggja upp hæfari starfskrafta innan sjómannastéttarinnar, bæði í vélarúmi og ofan þilja. G. J. Að vísu eru völdin skipstjór- ans, frá fyrstu hendi, en auðvitað felur hann stýrimönnum sínum framkvæmdirnar að meira eða minna leyti, eins og lög gera ráð fyrir. Yfirvélstjóri hefur að sjálfsögðu sérstakt vald og ber ábyrgð á sínu athafnasviði, og ábyrgð verkstjórans hvílir jafn- framt á fleirum um borð sem hafa slíkar stöður með höndum. En öryggisþjónustan hvílir fyrst og fremst á skipstjóra og stýrimönnum, og kennsla í sjó- rétti í Stýrimannaskólanum taka þar öll tvímæli af. Þessir aðilar hafa beztu skil- yrði allra um borð til að fram- kvæma varnir gegn slysum á sjó. Fullkomnari upplýsingar og strangara eftirlit er eittafmegin- atriðunum, sem uppfylla þarf í baráttunni gegn slysum. Af hendi hins opinbera og út- gerðarmanna mun vera hag- kvæmast að styðja að, styrkja og auka stórum fræðslu- og upplýs- ingastarfsemi um slysavarnir og auka áróðurinn í þeim efnum. Þegar sannað þykir, að það sé hlutdeild mannsins, sem er tíð- asta orsök til árangurs, að beita öllum mögulegum aðgerðum til áhrifa á þennan „faktor." Og á þessu sviði er ekki nóg að gert. Útgjöld til frekari aögeröa. Upplýsinga- og áróðursstarf til varnar slysum kostar peninga, — mikla peninga, ef frekari árang- ur á að nást. En, ef litið er á útgjaldahlið vegna slysanna, eru fjárframlög til varnar þeim mjög gróðavæn- leg „fjárfesting." Það þarf skarpari aðgerðir en hingaðtil. En hvar eru peningarn- ir til þeirra hluta? Það skortir hvorki vilja né áhuga hjá hinu opinbera og útgerðarfélögunum. Það er fjármagnið, sem skortir. Slys, sem orsakast af raf- magnsstraum, aðallega högg og jafnvel bruni, koma oft fyrir um borð í skipum. Það er auðvitað nauðsynlegt að 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.