Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Page 24
Sjónvarp ejóniannsins. * Hinn frægi málari Degas var eitt sinn viðstaddur uppboð, þegar mál- verk eftir hann var slegið á hálfa milljón krónur. Þegar hann var spurður að, hvern- ig honum liði, svaraði hann: „Svipað og veðhlaupahesti, sem vinnur veðreiðar, — en eigandinn fær verðlaunin." „Hvort þykir þér betra vín eða kven- íólk?“ „Það er undir aldrinum komið.“ * v A K T I N s_____ Gömul kona heimsótti eitt sinn alþjóðamót skáta. Henni lék mest hugur á að fá að sjá Pólverjana. Hún fékk ósk sína uppfyllta. „Þetta var mjög ánægjulegt," sagði hún; — en segið mér; eru þeir frá suður- eða norðurpólnum ?“ * „Það er undarleg manngerð, sem þú hefur ráðið sem gjaldkera; kol- rangeygður, haltur og með blóm- kálsaugu.“ „Þetta var með ráðum gert; hann þekktist auðveldlega ef hann skyldi „stinga af!“ ❖ „Við hljótum að vera sammála stjórnarvöldunum í Louisiana fylki. Þar eru í gildi lög um að fólk megi ekki skilja nema tíu sinnum.“ „Já, það er nauðsynlegt að hafa takmörk fyrir öllu!“ * Hann: „í Austurlöndum fær mað- ur tvo asna fyrir eina konu.“ Hún: „Þá hefi ég verið snuðuð, ég fékk ekki nema einn!“ ❖ Mamma: „Nú hafið þið verið svo dugleg að hjálpa pabba með að þvo upp, að þið eigið sannarlega hrós skilið." Litli bróðir: „Hvað þýðir hrós?“ Stóri bróðir: „Það þýðir að við fáum ekki grænan eyri.“ * „Yður þýðir ekkert að koma hér og telja mér trú um að það sé ekk- ert að mér,“ sagði gamla konan við lækninn. Ég skal láta yður vita, að ég var mesti vesalingur, löngu áður en þér fæddust." * „Listin við að vera góður dans- maður," sagði danskennarinn, er sú, „að kunna að flytja til fæturna áð- ur en mótaðilinn fær tíma til að troða á þeim.“ * Þú getur sagt hvað þú vilt um að ganga í þröngum skóm, þvi fylgir sá kostur að maður gleymir öllum j öðrum plágum. — Því miður er allt upptekið hér á hótelinu. Prestur nokkur, sem þjónaði hér um miðja síðustu öld, þótti nokkuð ber- orður; sérstaklega í hjónavígsluræð- um. Eitt sinn, er hann var að gifta frænsku sína, sem komin var eitthvað á leið, komst hann svo að orði: — þú, brúður! Rík ertu ekki, það vitum við, fögur ertu ekki, það sjáum við. En að hann hefur elskað þig, — það dylst okkur ekki. * Liðþjálfinn öskraði í dyragætt- inni: „Innan fimm sekúndna verðið þið allir að vera mættir í æfinga- salnum!" Nýliði stakk höfðinu undan sæng- inni: „Getum við ekki fengið að koma eilítið fyrr ef okkur langar til?“ * 24 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.