Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Síða 27
Daníel Sigurðsson, Kolmúla, er fæddur að Karlsstöðum í Vöðla- vík í Suður-Múlasýslu 16. marz 1901. Foreldrar: Sigurður Sig- urðsson og kona hans Þorbjöi'g Sigurðardóttir. Ólst Daníel upp á Kolmúla hjá afa sínum og ömmu. Daníel byrjaði sjómennsku innan við fermingaraldur, fyrst á opn- um bátum og síðar á vélbátum á Austurlandi. Byrjaði formennsku 1923 á „Bergþóru," sem gerð var út frá Hornafirði. Síðan var Daníel formaður á Þórshöfn á Langanesi í fjölda ára, með ýmsa báta. Daníel fór fyrst til Vest- mannaeyja til sjóróðra 1918, þá háseti á „Halkion 1“ til Stefáns Guðlaugssonar í Gerði. Eftir það er Daníel sjómaður í Eyjum í mörg úthöld, ýmist sem háseti eða vélamaður. Formennsku byrj- aði hann upp úr 1930 í Eyjum með m.b. „Svan“ og síðan með „Neptúnus" og „Ingólf.“ Eftir það hætti Daníel formennsku í Frainh. á hls. 44 Jón Á. Jónsson. „Gunnar Hámundarson“ 17.00 tonn. Smíðaður í Noregi 1924. Hólberg Jónsson, Reykhólum, er fæddur á Arnarnesi þann 17. nóvember 1913. Foreldrar: Jón Jónsson og Jónheiður Guðbrands- dóttir og með þeim ólst hann upp. Hólberg byrjaði sjómennsku 14 ára með föður sínum í Faxaflóa og var með honum óslitið í 10 ár. Síðan fóru þeir feðgar til Vest- mannaeyja og var Hólberg með föður sínum fyrstu árin þar á mótorbát. Árið 1945 byrjar Hól- berg formennsku á m.b. „Þrist,“ síðan á „Erni“ og þá „Stakkár- foss“ og loks er Hólberg með m.b. „Björgvin," sem hann átti sjálf- ur og var með hann í 14 ár. Upp úr því hætti Hólberg sjómennsku og hefur stundað netaveiðar síð- ari árin og var mjög heppinn á þeim veiðiskap. Jafnhliða stund- aði hann sjó með happi öll þau ár, sem hann var formaður. Daníel Sigurðsson. „Unnur“ 14.00 tonn. Smíðuð í Danmörku 1922. Jón Á. Jónsson, Reynivöllum, var fæddur á Akranesi 30. ágúst 1892. Foreldrar: Jón Ásbjörns- son og Guðrún Jónsdóttir. Jón Byrjaði sjómennsku á skútunum frá Reykjavík og síðar á togur- um, áður en Vökulögin komu og var á þeim í mörg ár. Síðan er Jón formaður á opnum vélbát frá Reykjavík í 10 ár. Einnig var Jón formaður í Sandgerði. 1930 flytur Jón til Vestmannaeyja og gerist formaður á m.b. „Erni“ og hafði formennsku á honum í nokkur ár. Síðan kaupir Jón „Unni 111“ og er með hana nokk- urt tímabil. Seldi síðan þann bát og tók þá við m.b. „Glað“ og því næst með m.b „Gulltopp." Upp úr því flutti Jón til Rvík- ur, sem mun hafa verið árið 1948 og stundaði sjómennsku þar í 6 ár, bæði frá Reykjavík og Njarð- víkum. Jón átti langa og stranga sjómannsævi,því hann gaf hvergi eftir og var heppinn formaður. Frnmli. á bli. 44 Hólberg Jónsson. „Ingólfur“ 12.00 tonn. Smíðaður í Reykjavík 1915. VlKINGUR 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.