Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Qupperneq 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Qupperneq 34
Þessi eftirlíking var notuð við rannsóknirnar á áhrifum vindsins á seglabúnaðinn og skipið. raunverulega var á hverjum stað! Veðrið er háð töluvert flókn- um og oft snögg breytilegum loft- þrýstingi. Og rétt 100 sjómílur frá stað með hagstæðum byr, var kannske alveg logn. Því var með- alhraði skipanna líka svona lítill. Nú á dögum vita skipstjórarn- ir meira um veðrið. Fjarskipta- tækin er hin stóra framþróun, sem seglskip geta líka notfært sér. Auk þess er nú til gnægð góðra hjálparvéla og siglinga- tækja. Þótt gömlu seglskipin hafi á ýmsan hátt siglt með seglbúnað, sem ekki að öllu leyti fullnægði fullri nýtingu þeirra, þá tókst þeim oft að ná undraverðum hraða og lögðu að baki hundruð mílna fjarlægðir á stuttum tíma — en skyndilega gat byr breytzt og var þá ekki um að spyrja, að tekið gat margar vikur að komast yfir tiltölulega lítið svæði. Ef slíkt átti sér stað í þoku og ná- lægt strönd, varð oftast úr því strand. 34 Með fjárstyrk frá þingi Ham- borgar hefur verið unnið að því að planleggja svo kallað „Dyna- skip“, sem vera á 17000 tonn að stærð. Skip af þessari stærð geta komizt inn í allar helztu hafnir. Á flutningasvæðinu er nú mest þörfin fyrir skip, sem eru 10000 til 18000 tonn að stærð og þar er samkeppnin afar hörð. „Dynaskipið“ verður 160 m langt og með klefa fyrir 28 skip- verja og 12 farþega. Klefarnir verða staðsettir á efsta þilfari langt frá hávaða hjálparvélanna. Skip undir seglum fer mikið betur í sjó heldur en skrúfuknúið skip. Ætti það eitt að geta dregið að sér skipverja og farþegar. Uppfinningamaðurinn hefur með nákvæmum rannsóknum sín- um komizt að þeirri niðurstöðu, að kostnaðurinn við flutning á vörum með þessu skipi verði % lægri en með venjulegum mótor- skipum á sjóleiðinni yfir til Ameríku frá Evrópu. Lengra er vart hægt að komast með útreikningunum einum sam- an, en uppfinningamaðurinn reynir nú að fá skip sitt smíðað, svo að vitneskja fáist fyrir því, hvort hugmyndir hans standast í reynslu. Smíðin mun kosta um 110 millj- ónir íslenzkra króna. Stórt skipa- smíðafyrirtæki í Hamborg hefur fengið áhuga á þessu og eru samningar byrjaðir um smíðina og útvegun fjármagns til hennar. Verði það úr að skipið verði smíðað, mun jómfrúrferð þess vafalaust vekja mikla eftirtekt — jafnvel meiri athygli en fyrsta ferð kjarnorkuskipsins „Savan- nah“. Það verður stórkostleg sýn að sjá þetta 160 m langa skip með 60 m há möstur, og undarlegt verður að horfa á ósýnilegar hendur hífa upp seglin og hag- ræða þeim á rárnar, svo að þau myndi 9600 m2 stóran flöt fyrir ókeypis orku til að blása í sjálf- an vindinn. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.