Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 36
atriði fyrir sér yngri og eldri mönnum, svo að ekki verður van- þekkingu eða óvitaskap um kennt, aðeins gáleysi. Gáleysi, sem í þessu tilfelli hefði eftir Guðs og manna lögum kostað þessa tvo ágætismenn lífið en fyllt forsíður dagblaðanna gleið- letruðum fyrirsögnum um hrylli- legt slys á Hafnarfjarðarhöfn. Þegar yngri maðurinn, sem jafnframt er sögumaður minn, kom niður í ketilinn, sá hann strax, að eitthvað alvarlegt var á seyði þar sem yfirmaður hans lá endilangur á bakinu í djúpum svefni eins og eftir klóróform. En í stað þess að hugleiða ástæð- una, sem þó var augljós, og reyna að komast upp til þess að ná í hjálp, byrjaði sögumaður minn að toga í hinn manninn og draga hann til en mun hafa sofnað eins og hinn fyrri á örfáum sekúnd- um. Það næsta, sem gerist, er að sögumaður minn vaknar til með- vitundar þar sem hann liggur á grúfu yfir fótum hins mannsins, en hann liggur sem fyrr á bakinu með höfuðið neðan við hið opna ketillok. Meðan sögumaður er að vakna, rennur staðreyndin upp fyrir honum (eiturloft eða súrefnis- leysi). En ekki dettur honum í hug að reyna að komast upp, heldur byrjar enn að toga og bjástrar við hinn ennþá stein- sofandi mann og tekst á einhvern hátt, honum allsendis óskiljanleg- an, að troða hinum ósjálfbjarga manni upp í ketilopið og út og komast svo sjálfur á eftir. Með aðstoð hins unga ferjumanns tókst að koma hinum svæfða manni niður á þilfar og leggja hann þar til, og þar lá hann í tæpa tvo klukkutíma, áður en hann var kominn það mikið til sjálfs síns að tiltækt þótti að koma honum í land. Aðspurður kvaðst ferjumaður ekki hafa gætt á klukkuna, þeg- ar söguhetjur okkur fóru niður, en gizkaði á, að þeir hafi verið þar niðri um tvo tíma. Það voru tveir fámálugir menn, sem drógust upp í leigu- bíl frá Steindóri og voru fluttir heim. Yngri maðurinn vitandi um nýafstaðna hættu og ástæð- una fyrir henni og hafði ekki misst annað úr meðvitund sinni varðandi þennan atburð en tím- ann, sem dásvefninn stóð yfir. Hann jafnaði sig þá einnig fljótt og mætti til vinnu sinnar næsta dag. Hann var að vísu aumur og lerkaður en virtist ekki hafa nein teljandi óþægindi af hinni óvæntu svæfingu. Eldri maðurinn varð verr úti, hann lá nokkra daga eftir áfallið og vaknaði ekki til fullrar með- vitundar fyrr en daginn eftir. Allt það, sem gerðist frá því að hann fór niður í ketilinn, þar til hann vaknaði í rúmi sínu, var tapað úr minni hans, og hefur hann ennþá enga hugmynd um þá atburði, nema eftir frásögn yngri mannsins. Enda þótt hann hjálpaði til við að komast í bát- inn og upp úr honum og í bílinn í landi, kom minnið ekki fyrr en síðar. Að sjálfsögðu hefur hann einnig óafvitandi tekið þátt í uppgöngu úr katlinum, því að annars hefði verr farið. En hér skall hurð vissulega nærri hælum fyrir fljótræði, ekki einu sinni heldur tvisvar, þ. e.: að fara niður í ketil, sem búinn var að standa lokaður í langan tíma, án þess að gera neinar ör- yggisráðstafanir og í öðru lagi að yngri maðurinn gerði tilraun til þess að troða svæfðum manni á undan sér upp úr þessari vist- arveru, er hér um ræðir, því að enga skynsamlega ástæðu er að finna fyrir þeirri ákvörðun hans frekar en hinni, sem þeir tóku, þegar þeir í einu hljóði ákváðu niðurgöngu. Með þeirri tilraun hefði hann vel getað orðið valdur að dauða beggja, þar sem ekkert annað en kraftaverk hefur getað forðað því, að þeir festust báðir á þeirri leið. Því skrái ég þessa sögu, að aldrei verður of oft brýnt fyrir mönnum að gæta fyllstu varúðar, jafnt í líkum tilfellum og hér um ræðir og yfirleitt í öllum sínum störfum, ekki sízt í vélafaginu. Þar má aldrei flýta sér um of. Þar má aldrei hreyfa hlut án þess að þekkja hann til hlítar og þar má aldrei tefla á tæpasta vaðið. Þessir menn vissu þetta allt, en þó kom þetta fyrir þá fyrir 35 árum. En því miður er þetta ekkert einsdæmi. Fjöldamörg slys hafa orðið á þeim árum, sem síð- an eru liðin. Slys, sem rekja má til sömu ástæðu, aðgæzluleysis og fljótfærni. Guðfinnur Þorbjörnsson. HUGSAÐ Á SAMNINGAFUNDUM Fenginn illa au&urinn í áttir margar borinn. Ákaft amlar sauöurinn áður en hann er skorinn. Ennþá máttu færa fóm fósturlandsins vinur. Ráðavana ríkisstjóm riðar nú og stynur. Hennar fögru fyrirheit frusu úti á hjami. Arka nú í auraleit Emil, Gylfi og Bjami. Yfirmenn þjóðinni baka tröl bátana setja á land. Togaraflotinn á vonarvöl og viðreisnin komin í strand. Vélstjórar í vígamóö vildu samningsfriðinn. Ríkisstjórnin raöagóö rak þá út á miöin. * 36 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.