Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 38
Sigurjón Einarsson, skipstjóri MINNING Enn einu sinni hefir dauðinn grisjað í hópi forustumanna sjó- mannastéttarinnar. Að kvöldi hins 3ja jan. s.l. var Sigurjón Einarsson, skipstjóri, hrifinn á brott, þar sem hann dvaldi ásamt konu sinni, og naut fagnaðar meðal starfsbræðra sinna og annarra vina. Sigurjón Einarsson var fæddur að Gestshúsum í Hafnarfirði hinn 25. janúar 1897 og var því tæp- lega 72 ára er hann lézt. Hann hóf sjómennskuferil sinn á Kútter Morgunstjörnunni að- eins 9 ára að aldri undir hand- leiðslu föður síns. Þar með voru örlög hans ráðin. Sjómennskan varð hans ævistarf, og má segja, að þá hafi íslenzku sjómanna- stéttinni bæzt sá liðskostur, sem hana munaði um og sem hún bjó að um sex áratuga skeið. Sigurjón var um nokkur ár á kútterum. Menntaði hann sig í Flensborg. Var 2 ár á þýzkum togurum, en 18 ára fór hann í Sjómannaskólann og lauk fiski- mannaprófi þaðan. Var hann þá búinn að vinna sér siglingatím- ann — og ríflega það. Tvítugur að aldri lauk hann svo farmanna- prófi frá Stýrimannaskólanum. Haustið 1918 kvæntist Sigurjón eftirlifandi eiginkonu sinni, Rannveigu Vigfúsdóttur, ættaðri af Snæfellsnesi. Má fullyrða að við hlið þess lífsförunauts hafi hann notið þess styrks og ástúð- ar, sem drýgst verður hverjum manni til athafna og dáða. Er sízt ofmælt að þar hafi Sigurjón höndlað sína lífshamingju, sem entist honum í blíðu og stríðu þar til yfir lauk. Og ekki dreg ég í efa að frú Rannveig eigi, í sínum hljóðu minningum ekki ósvipuð ummæli um sinn horfna eiginmann. 38' Á því tímabili, sem Sigurjón hóf sína sjómennsku, var lífsbar- áttan hörð og oft óvægin. Skaphöfn hans hefur gætt hann í ríkum mæli þeim dugnaði og at- orku, sem hann hafði til að bera og hóf hann til forustuhlutverka bæði til sjós og lands. Þar við bættist að hann var skarpgreindur að eðlisfari, fljót- ur að átta sig á kjarna mála, og var mjög létt um að leiða þá í ljós í ræðu og riti. 1927 tók Sigurjón við skip- stjórn á b/v Surprise frá Hafnar- firði, hafði hann þá verið skip- stjóri á bátum og stýrimaður á togurum um 10 ára skeið við góð- an orðstír, en í þá daga tók tím- ann sinn að ná „toppnum," og náði honum aldrei nema úrvalið úr stéttinni. Vel aflaði Sigurjón á Surprise og kom árangur þess bezt í ljós við að eigandi hans, hinn kunni útgerðarmaður, Einar Þorgilsson í Hafnarfirði, lét byggja í Eng- landi togarann Garðar, sem Sig- urjón tók við skipstjórn á 1930, og var með hann þar til hann fórst 1943 við strendur Bretlands, af völdum ófriðarins. Togarinn Garðar var stærsta skip íslenzka flotans, meðan hann flaut. Traust byggður og afburða sjóskip. Væri girnilegt til fróðleiks, ef ein- hverntíman fengist yfirlit um hið óhemju aflamagn, sem Sigur- jón færði að landi á því skipi, bæði af síld og bolfiski. Eftir hið þunga áfall við missi uppáhaldsfleytu sinnar, Garðars, hélt Sigurjón áfram skipstjórn á togurum um 17 ára skeið. Hann hélt ávallt reisn sinni sem mikill aflamaður og snilldar sjó- maður og stjórnandi. Þegar Dvalarheimili aldraðra sjómanna var reist, varð hann fyrsti forstjóri þeirrar viðamiklu stofnunar, sem þá var í mótun og gegndi því ábyrgðarstarfi með mikilli prýði um 10 ára skeið. 1 hagsmunamálum sjómanna- stéttarinnar lagði Sigurjón af mörkum óhemju mikið og giftu- ríkt starf. Kom þar glögglega í Ijós hvað maðurinn hafði til að bera af andlegum verðmætum. Stíll hans í rituðu máli einkennd- ist af skarpri hugsun og rökfestu í flutningi. Honum var ekkert óviðkom- andi, sem snerti hag og heill sjó- mannastéttarinnar og reyndar allrar þjóðarinnar og var jafn- vígfimur með pennan í sókn sem vörn. I stórmálum okkar lét hann einna mest að sér kveða í land- helgis- og slysavarnarmálum. Á þeim vettvangi þurfti enginn hann að eggja, enda mun áhrifa hans þar gæta um ókominn tíma. I slysavörnum stóð hann ekki einn, þar átti hans ágæta kona, Rannveig, óslitna samleið með honum. Um langt árabil stóðu þau lijón- in, með nánu samstarfi, framar lega í forustusveit þeirri, sem lyfti Grettistaki í þeim mann- úðar- og hugsjónamálum, að bjarga mannslífum og varna slys- um. Aukið öryggi á sjónum var hjartansmál þeirra hjóna; Sigurjón var mikill félags- hyggjumaður. Hann tók' virkan þátt í stofnun F.F.S.l. og starf- aði f stjórn samtakanna um ára- VÍKTNCHJ’r’

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.