Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Side 41
m/b Friðbert Guðmundsson. Hinn 21. des. s.l. kom m/b „Friðbert Guðmundsson“ ÍS 403 til heimabafnar sinnar, Suðureyrar, frá Frederiksbavn eftir að hafa fengið skipt þar um vél. Báturinn er byggð- ur í I'rederikssundi í Damtiörku árið 1958 og er 81 brúttó lest að stærð. f liann var þá sett B & W Alpha dieselvél 280/310 hestafla 4 strokka. Hin nýja vél sem nú er í bátn- um er 400/440 hestafla B & W Alpha dieselvél, einnig 4 strokka, og þrátt fyrir að vél þessi er svona mikið aflmeiri er liún styttri og tekur minna pláss en eldri vélin, sem í bátnum var. — Þessi nýja gerð af B & W Alpha dieselvélum er með olíukældum stimpl- um, sem dragu á mjög úr sliti strokkanna. Ennfremur er þessi vélagerð með lausar skiptanlegar strokkfóðringar, „roterandi“ skolloftsblásara og viðltyggðan ferskvatnskæli. með sæmilega skynsemi kítið bjóða sér. Ef vitglóra hefði verið í laga- smíðinni, hefði þessu verið dreift jafnt yfir allan almenning á land- inu. Viðbrögð sjómanna urðu lílca snögg, og mótmælum rigndi yfir stjórnarvöld, sem aðeins brostu, bókstafurinn blífur, verkfall er ekki svo hættulegt, því atvinnu- leysi hefur verið skipulagt. Að sönnu voni þetta orð í tíma töluð. Innan F. F. S. í. voru kjara- málin endurskoðuð og til viðbót- ar fyrri kröfum sett fram krafan um lífeyrissjóð og frítt fæði. Með tveim síðustu kröfuliðunum töld- um við okkur fá verulegar bætur til baka af ránsfeng ríkisstjórn- arinnar. Eftir langt þref fékkst lífeyris- sjóðskrafan uppfyllt, þó með meiri annmörkum en gott þótti. Fæðiskrafan var síðan til um- ræðu svo dögum skipti. Vildum við fá frítt fæði, en við það var ekki komandi. Til samkomulags var lagt til af okkar hálfu, að fá greiddar 3000 kr. upp í fæði pr. mánuð og til viðbótar yrði aldrei greitt meira en 1500 lcr. upp i fæði. Ef fram úr þessu færi skyldi útgerðin taka á sig kostn- aðinn. Þannig stóð þá deilan með fæð- ið, er ríkisstjórnin setti lögin sín, auk þess sem eftir átti að leysa 1100 kr., fyrmefnda fatapen- inga, sem aðeins koma til þegar slcip fiskar fyrir trygg- ingu. Sjómannafélagið hafði þá dregið sig út úr deilunni með þann varnagla samt í samkomu- lagi við útgerðarmenn, að þess félagar skyldu allar sömu kjara- bætur hafa og yfirmenn kynnu að fá, og þar með var Jón Sig- urðsson orðinn helzti dýrlingur þjóðarinnar og gat átt náðuga daga heima, meðan aðrir áttu að tosa inn frekari kjarabótum. Annars vil ég leyfa mér að víta öll vinnubrögð í þessari deilu. Samkvæmt upplýsingum Jónasar Haralds fullyrðir fiann, að full- VÍKINGUR trúar sjómanna í Verðlagsráði ásamt ríkisstjórn hafi verið bún- ir að móta lcjaraatriðin, áður en til verkfalls kom og ríkisstjórnin hafi lofað að beita sér fyrir fram- gangi þeirra. Kjaraatriðin, sem þar varð samkomulag um, voru nánast þau sömu og lögfest voru eftir mánaðar langt verkfall. Um þessi atriði var okkur í samninga- nefnd sambandsfélaga F. F. S. I. ekki kunmigt og héldu fulltrúar okkar í Verðlagsráði þessu leyndu fyrir okkur. Fulltrúarnir vilja þó ekki viðurkenna, að þetta sé rétt, og stendur þar staðhæfing gegn staðhæfingu milli fulltrúa sjó- manna í Verðlagsráði og Jónasar Haralds um sannindi þessi. Hitt kom fljótt í Ijós, að reynt var af fulltrúum okkar í Verð- lagsráði að teyma deiluna inn á lausn þessara atriða, svo ekki er mér grunlaust um að Jónas segi sannleikann. Forsætisráðherra fullyrðir líka, að hafa átt þátt i lausn deilunn- ar, þótt ég yrði aldrei var við það. Ábyrgð hvílir því mikil á hon- um, ef hann hefur verið búinn að samþyklcja áðurgreind kjara- atriði fyrir verkfall, en lætur þau boð ekki berast til samningsaðila. Ef slíkt boð hefði legið frammi í upphafi deilunnar, hefði ég að minnsta lcosti tekið það til athug- unar og vélstjórar aldrei látið til verkfalls koma. Ábyrgðin er því sannarlega þung, sem hvílir á núverandi for- sætisráðherra, auk þess sem skömmin er hans, þótt hann láti blöðin sín, Mogga og litla Mogga þrástagast á því, að einhverjum öðrum sé um að kenna. „Ég veit betra meðal við kvefi en rommtoddý.“ „Það er ágætt, — en ég kæri mig ekkert um að vita það!“ * 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.