Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 9
verndarvættur yfir þorpinu. Eru, að mig’ minnir, yfir 20 tröppur upp að ganga á klöppina, sem kirkjan stendur á, en á flestar hliðar er klöppin snarbrött. Húsin standa í fremur óreglu- legum röðum undir og utan í höll- um bjarghólanna og eru stein- sökklar ýmist steyptir eða hlaðn- ir undir sumum þeirra, en tré- pallar á stólpum undir öðrum. Mjög óhægt er um alla gatna- gerð vegna grunns jarðvegs og hins mishæðótta bæjarstæðis. En fagurt útsýni er af mörgum hóln- um. í sundinu fyrir neðan nýju kirkjuna stendur gamla kirkjan, sem nú er notuð fyrir bókasafn, og þar fyrir neðan nokkuð reisu- leg bygging „Konunglegu græn- lenzku verzlunarinnar" ásamt lágreistum húsum sem þjóna sem lögreglustöð og pósthús. — Þess- ar byggingar standa bak við há- ar klappir upp frá höfninni og liggur göngustígur yfir klappirn- ar og síðan taka við gamlir tré- stigar með mörgum höftum (ég held yfir 30) niður á aðalveginn, sem liggur upp frá höfninni upp bratta lægð gegn um miðhluta þorpsins alla leið upp að nýja barnaskólanum og spítalanum. Er vegur þessi vel fær bifreiðum, sem ég sá þarna nokkrar, aðal- lega jeppa og fáeina vörubíla. Er hann, sem og aðrir vegir í þorp- inu, púkkaður með grjóti (granít- mulning) og borinn ofan á hann einskonar sandur mógulur ogaur. Þar sem hætta er á að vatn renni yfir veginn eru byggðar rennur meðfram honum þannig að í skurði, sem tekur við vatninu eru lagðar steyptar hellur í tvöfaldri röð beggja megin í bakkana, en botninn er auður og varna hell- urnar því að bakkarnir hrynji niður og hefti vatnsflauminn. Við höfnina er slippur eða dráttarbraut fyrir skip, sem get- ur tekið 250 tonna skip upp til viðgerða. Þar er einnig svokallað ,,Fiskhús“ þar sem fiskimenn Grenjastaða leggja inn afla sinn. — Sá ég í eina tvo til þrjá daga margt fólk þar að vinnu og voru VÍKINGUR Hvergi eru jafní’alleg og stillileg börn og þau gfænlenzku. konur í miklum meirihluta, því karlmennirnir sækja sjóinn eins og gefur að skilja; mest á litlum trillubátum, að mér sýndist, sem minntu mig á gamlar skipsjullur frá skútuöldinni hér heima, bæði hvað snerti stærð og lögun. Þegar horft er á Sisimiut af ytri höfninni í glitrandi sólskini, er líkast sem litla vinalega álfa- borg sé að líta. Litlu marglitu húsin inn á milli granítfellanna gætu vel verið æfintýrahallir, þar sem nettvaxnar álfaprinsessur skyggnast út um gættir og gluggarúður eftir því hvort álfa- prinsarnir séu á leiðinni heim með mikla veiði. En svo verður þetta ósköp hversdagslegt, en þó um leið við- feldið og hlýlegt og minnir afar- mikið á vestfirzk fiskiþorp eins og þau litu út fyrir 30—50 árum þegar skútu- og smábátaútgerðin var á sínum bezfu viðgangsárum. Og jafnvel fólkið er ekkert ó- svipað því er ég man frá bernsku- árum mínum heima þegar það fór að fleygja frá sér skinnsokkum og roðskóm og fór að læra að ganga á gúmmístígvélum í stað- inn. Svipmót þess er hýrt og vinarlegt. Dálítið er það þó mis- frítt. Karlmennirnir bera með sér að þeim er veiðimennskan í blóð borin; svolítið silalegir, en eldsnöggir í hreyfingum, ef ástæða knýr. Og þá er nú kvenfólkið, dökk- brýnt og brúneygt og brosandi svo sem geislum stafi af hvörm- um þess. Og' þetta augnabros þeirra er svo miklum töfrum sleg- ið, að jafnvel yfir andlit hinna ófríðustu meyja og kvenna bregð- ur það slíkum ljóma að öll lýti hverfa. En mörg er þarna mærin væn og dáfögur, en engin þeirra vefur lengur „hárið nett frá hvirfli í topp upp snúið,“ og borðalitir hans Sigurðar míns Vólknúnir hátar leysa af hólnii göinln kajakana. Tíinarnir breytaet. 187

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.