Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 18
eins til að eiga varasjóð. Voru fiskigeymslur þessar orðnar margar og þéttar víðsvegar um fljótið. Leiðin út að þorpinu, þessum Feneyjum Afríku var merkt með staurum, og var síma- lína hengd upp á þá. Þetta var löng leið að fara, ca. 4 til 5 kílómetrar, fyrir allavega ásigkomnar konur, oft með yngsta barnið á baki eða brjósti, við róðurinn, sem setið var við eða staðið eftir ástæðum, og ekki voru börnin gömul þegar þau tóku þátt í róðrinum. Er róið með einni ár og skipt um borð eftir því hvert halda skal. Á dögum þrælasölunnar og sjó- ræningjanna flýði ættflokkur þessa fólks út á vatnið og reisti sér þar staurakofa, og hefur haf- ist við þar síðan. Er þorpið talið stofnað 1716. Kofar þessir eru merkilegar vistarverur. — Með- fylgjandi mynd skýrirþákannske bezt. Oft er gólffleti þeirra, sem ekki er stór, skipt á milli manna og dýra. Allt er á sömu héeð. Þó er til að ein geit, svín eða hænsni eru höfð á öðru gólfi, eða jarð- vegsbotni undir kofanum, en þeg- ar hækkar í vatninu, þá verður að taka dýrin upp. Fólkið er sagt hraust og lítið um sjúkdóma. Læknir fer vikulega út í þorp- ið og fylgist með heilbrigði fólks- ins, sem virðist ánægt, glaðlegt og hrifið af sinni tilveru, að það vill enn ekki flytjast í land, þrátt fyrir tilmæli landsstjórnarinnar. Alla leiðina út í þorpið erum við að fara fram úr þessum 12, 15 og 18 feta löngu eintrjáningum tveggia til 3ja feta breiðum, oft yfirhlöðnum. Ég kemst ekki yfir að lýsa jafnvægishæfileikum, still- ingu, fágun og yfirvegun hreyf- inga bátsverja, því á svona skelj- um verða menn að hafa gott vald á hreyfingum sínum, og oft var aðeins 2ja—3ja tommu borð fyr- ir báru, en kvika á vatninu og alda frá vélbátnum, sem þó alltaf sló af ferðinni er farið var fram- hjá þessum litlu fleytum. Kon- urnar gátu ekki alltaf dulið ótta sinn er þær glímdu við að verja bátinn ágjöf og veltu, og oft Suðurlandagróður. þurfti sannarlega á allri gát. að halda. Margt eldra fólk, og það er sérkennilegast var í útliti og klæðaburði, tók því heldur illa og átti til að nöldra mikið og senda okkur tóninn ef teknar voru myndir af því, en ungt fólk, og ég tala ekki um þær laglegustu, vildu gjarnan láta mynda sig. 1 þessu frumstæða þorpi var til bambus skáli, frekar vistlegur og hafði upp á Pepsi Cola og Coca Cola og ís og aðra nútíma hress- ingu að bjóða, sem kom sér vel í hitanum, sem var 38 gr. á celsius í forsælu. Við yfirgáfum svo þetta frum- stæða þorp, sem enn lifir í fortíð- inni. Áhrif þess eru ógleymanleg. Á leiðinni til Cotonou fórum við framhjá flugvellinum, sem flug- vélar kirkjunnar og vopnaflug- vélarnar nota. -— Þann dag kom Wilson, forsætisráðherra Breta, til Nigeríu að ræða við Laos- stjórnina. Um árangur ferðar hans veit ég ekki. En eins og allir vita standa stjórnmálamenn heimsbyggðarinnar ráðþrota yfir ástandinu í Biafra. Hin skræln- aða jörð landsins hefur drukkið blóð milljóna píslarvotta íbo- manna í þessum átökum. Afríkuleiðtogar hafa margir lýst yfir hryggð sinni yf ir ástand- inu í Biafra, en kunna þar engin ráð til úrbóta. Aðeins fjögur Afríkuríki hafa viðurkennt sjálfstæði Biafra. Þó njóta uppreisnarmenn íboætt- flokksins vaxandi samúðar ogvíð- tækrar. Forseti Líberíu, William Tubmann og Milton Obote, for- seti Uganda, Halassi Lassie, for- seti Eþíópíu o. fl. o. fl. hafa beitt sér og lagt sig fram fyrir sáttum og friði í Nigeríu. í Biafra eru 250 ættflokkar, ólíkir í mörgu. Iboar höfðu þar lengi gott gengi og völd vegna menntunar sinnar, þar til að öfund og illdeilur and- stæðinga þeirra hófu hatrammar ofsóknir er þeir lýstu yfir sjálf- stæði sínu. Þessi átök hafa breytt Biafra í land hungurs, dauða og hörmunga. Þá sögu endurtek ég ekki hér. Leiðtogar beggja hafa mikið til síns máls. Laosstjórnin vill varðveita Nigeríu sem eina heild, og aðrir Afríkuleiðtogar óttast að slíkar aðskilnaðarhreyf- ingar og upplausnaröfl ættflokka- rígs gætu splundrað öllum ríkj- um Afríku, ef ekki væri spyrnt við fæti, og væri það mikill álits- hnekkir fyrir frelsisbaráttu þeirra og framtíðaráform. Vafasöm má teljast óbilgirni 0j ukwu höfuðsmanns og gengdar- lausar mannfórnir, án þess að ég sé fær um að leggja hér á nokk- urn dóm. Mánaðarlega deyja þarna 200 þúsund manns. í desember síðast- liðnum á milli 700 og 800 þúsund manns og þar af mest börn, og nú lifa þar varla nokkur börn yngri en átta ára. Orð um slíka hluti eru hljómlaus, mannfallið og neyðin eru svo gífurleg. Á jörð okkar lifa 3,2 milljarðar manna. Það er ekki ástæða til að Svertingjaþorp inni í mið-Dahomey. VÍKINGUR 196

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.