Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Qupperneq 20
Nógu úr að velja!
„Hann: „Hvað eigum við að hafa
til morgunverðar í dag?“
Hún: „Ef við ættum nokkur egg,
þá myndum við fá okkur flesk- og
egg.... ef við ættum þá nokkuð
flesk!“
*
„Þú ert vel upplagður, þegar þú
eldsnemma morguns stekkur upp úr
rúminu við að vekjaraklukkanhring-
ir, og hrópar: Loksins!
*
Frægur leikari um fimmtugt gift-
ist tvítugri dansmær.
„Þetta er vitfirring,“ sagði vinur
hans. Þegar hún stendur á fertugu
ert þú orðinn sjötugur, — og hvað
ætlarðu þá að gera?“
„Ná mér í aðra tvítuga!"
Á gullbrúðkaupsdaginn fóru gömlu
hjónin til borgarinnar í þeim til-
gangi að kaupa sér sögulegan minja-
grip.
„Þessi vasi er mjög dýrmætur,"
sagði kaupmaðurinn. „Hann er yfir
2000 ára garnall."
„Þetta er nú orðum aukið,“ sagði
sá gamli. „Við erum nú ekki komin
lengra en til 1969!“
*
Leikkonur geta ekki síður en aðr-
ir, verið gamansamar og orðheppn-
ar. — Kvikmyndaframleiðandi sendi
einni „stjörnunni“ skeyti með fyrir-
spurn um hvað hún tæki fyrir að
leika í stórmynd, sem hann var að
undirbúa.
Hún svaraði um hæl og setti upp
eitt þúsund dali á viku.
„Borga þúsund dali með ánægju,“
svaraði hann.
Hann var skrýtinn á svipinn, þeg-
ar honum barst skeyti frá leikkon-
unni: „Þúsund dali fyrir að leika.
Ánægjan ókeypis!"
*
Nýjustu fréttir frá Peking herma,
að nú sé öllum hárskerum þar í
landi bannað að segja hrollvekjandi
sögur við vinnu sína.
Héðan í frá skulu þeir stöðugt
vitna í kenningar Maó Tse-tung!
*
Mæðgurnar voru á skemmtigöngu
meðfram höfninni. Allt í einu missti
dóttirin fótana og féll í höfnina.
Ungan mann bar að í þeim svipum
og stakk hann sér óðar eftir stúlk-
unni og tókst að bjarga henni að
landi. Móðirin kom þar að og leit
kuldalega á manninn: „Mér fannst
þér vera full lengi í kafi með dóttur
minni!“
*
1 „Latínuhverfinu" í París var
einu sinni sem oftar haldin mál-
verkasýning. Yfir dyrunum hékk
skilti, sem á stóð: „Bannað að fara
inn með hunda.“
Einn gestanna hafði bætt við:
„Dýraverndarfélagið!“
*
Vinkonan var í heimsókn hjá
einni nýgiftri.
„Og hvernig líkar þér að vera
gift?"
„Ó, þetta er óttalega erfitt. Mað-
ur þvær upp og býr um rúm — og
eftir viku verður maður að gera
þetta sama upp aftur!“
*
„í samkvæmi sýna konur oft mikla
stærðfræðihæfileika," segir hinn
frægi Peter Sellers. „Þær deila í
sinn eigin aldur með tveimur, tvö-
falda verðið á kjólunum sínum, þre-
falda tekjur eiginmannsins — og
bæta tíu árum við aldur vinkonunn-
ar!“
*
— Hver skyldi Iiafa trúaiV |>vi, aili viiV ættum eftir að' komast á sumarhótcl?
VÍKINGUR
r--------------\
I t< VAKTIN I
$
p
i
198