Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 26
Ræða fulltrúa sjómanna á Sjómannadagmn í Reykjavík HtviHnniaiíur Kristján Jánsson. Sjósókn og aflabrögð eru og hafa alla tíð verið undirstaða lífs- kjara á Islandi. Fyrr á öldum þegar íslendingar samanstóðu eingöngu af bændum og vinnu- fólki þeirra, var ávallt stundað útræði og róið til fiskjar. Og það var einmitt undir því komið hvort vel eða illa aflaðist hvort íslend- ingar höfðu nóg að bítaogbrenna. Aftfurkippur ú ulluui svi<Vuni. Þannig er þetta enn í dag og verður um ófyrirsjáanlega fram- tíð. Við höfum öll fundið fyrir og haft fyrir augunum ástandið sem ríkir í þjóðfélaginu, eftir að síldaraflinn hefur í tvö ár verið minni en á beztu aflaárum. Gengi krónunnar er fellt hvað eftir ann- að, vöruverð stórhækkar, kaup er bundið með lögum, fjöldi manns gengur um atvinnulaus og aftur- kippur er á öllum sviðum þjóð- félagsins. Nú er lokið vetrarvertíð sem er ein sú aflasælasta sem komið hef- ur. Við getum ætlast til, að þess vegna fari nú að birta til í þjóð- félaginu. íslendingar voru öldurn saman búnir að horfa á útlendinga veiða mikinn fisk hér við land á stór- um skipum, en voru sjálfir á smá- kænum og öfluðu ekki meir en svo að landsmenn rétt drógu fram lífið. Það er svo fyrst á nítjándu öldinni og um síðustu aldamót sem Islendingar eignast þilskip og þá jókst aflinn og lífskjörin bötnuðu. Arafugn ganilir lo"arar. Það er þó fyrst þegar togara- útgerð hefst hér upp úr síðustu aldamótum sem efnahagur Is- lendinga tekur stórt stökk fram á við. Alla tíð síðan og alveg fram á þennan áratug hefur útgerð tog- ara og afli þeirra verið undir- Kristján Jónsson. staða þeirra lífskjara sem íslend- ingar búa við. Endurnýjun togaraflotans hef- ur alltaf farið fram í stórum á- föngum. Eftir fyrra stríðið voru gömlu togararnir seldir úr landi og seinna keypt ný skip, og þá áttum við vel búinn togaraflota. I lok síðara stríðsins endurtók sig sama sagan, skip okkar, sem voru orðin gömul og léleg, voru seld úr landi, flest til Færeyja. En íslenzka ríkisstjórnin lét smíða ný skip, „nýsköpunartog- arana," sem hún afhenti síðan einstaklingum og bæjarútgerðum. Á þeim árum sem þessi skip voru að koma til landsins, var talið að Islendingar ættu full- komnasta togaraflota heims. En nú er orðin mikil breyting. Nýj- ustu togarar okkar eru orðnir áratugs gamlir, og hinn glæsilegi floti, sem við áttum eftir stríð, hefur týnt tölunni og þeir sem eftir eru, eru orðnir gamlir og margir þeirra úreltir. En togaraútgerð annarra þjóða hefur ekki staðnað. Hinar gömlu fiskveiðiþjóðir hafa stöðugt end- urnýjað sinn togaraflota. Þjóðir sem áður voru ekki með í úthafs- veiðum, eins og t.d. Sovétríkin, eiga nú einhvern fullkomnasta togaraflota, sem þekkist og veiða nú um öll heimsins höf. Færey- ingar, sem áður keyptu okkar gömlu skip, sigla nú á nýtízku skipum. Norðmenn, sem áður gerðu eingöngu út báta, taka nú. þátt í togaraútgerð, ekki ein- göngu á heimamiðum, heldur eiga þeir einnig fullkomna verksmiðj u- togara, sem veiða á fjarlægum miðum. I.niij$iir fjarvistir ng akkoriVsvinna. Á sama tíma' og togaraútgerð hér hnignaði, jókst síldveiði mik- ið með tilkomu nýrra tækja og stærri báta. Sú þróun hófst með komu hinna 12 svokölluðu aust- ur-þýzku báta, sem ríkisstjórn Is- lands lét smíða í Austur-Þýzka- landi. Við aukningu síldveiðanna fjölgaði mikið hinum stóru síld- veiðibátum. íslendingar eignuð- VÍKINGUR 204

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.