Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 30
skrifað 4 greinar í Morgunbl. um flotvörpur og flotvörpugerð og yfir- burði skuttogara til þeirra veiða. Ég ræði ekki um tegund skipanna, held- ur nýjustu gerð flotvörpu, sem hann mælir með. Hr. G. Þ. hefur lesið mikið og lagt mikla vinnu í að studera og skilja þessar hálffræðibækur um vörpur og lagt of mikið upp úr því sem þar stendur. Því þessar bækur eru fyrst og fremst auglýsingabækur og segja ekki nema hálfan sannleika um það sem þeir eru að auglýsa, en geta ekki skakkafallanna fyrr en þeir eru komnir með einhverja smábreytingu, sem þeir geta gumað af og á þennan hátt halda þeir mönnum í þeirri trú að þeir séu á þróunarleið í vörpu- gerð. Ég tel að hr. G. Þ. ráði yfir allri þeirri veiðarfæraþekkingu, sem er til staðar innanHafrannsóknarstofn- unarinnar. Hann skýrir frá þeirri niðurstöðu sem hér fer á eftir. * Þar sem neðri grandararnir þurfa að vera 4—6 m. lengri en hinir efri, til þess að fá nægilega stórt vörpu- op, var tekið uppá því árið 1962 að lengja neðri vængina sem því nem- ur, en hafa grandarana alla jafn- langa. Þetta var fyrst og fremst gert í þægindaskyni, en hafði óvænt mjög hagstæð áhrif, þar sem neðri vængirnir skveruðust niður og juku op netsins, auk þess sem netið í heild þrýstist niður þannig að ekki þurfti að nota jafnlanga víra og áður. * Þarna er komið inn á það atriði, sem ég hef verið að skrifa um og skýra. Það virðist sem þessi sannindi hafi komið vísindamönnum á óvart og þarna sitja Þjóðverjar fastir. Þeir sjá að svona er það, en geta ekki skýrt hversvegna þessi breyt- ing hefur svona áhrif á vörpuna. Þetta er netfræðilegt viðfangsefni og Þjóðverjar eru eins og aðrir, þeir vilja ekki viðurkenna að það sé fræða vant í netagerð. Þessvegna sitja þeir fastir frá árinu 1962 eða þeir drógu ranga ályktun og héldu áfram að stækka vörpur, þyngja fargið á undirgrandara og setja keðjur á fótreipi eða fiskilínu, sem þeir ættu fyrir löngu síðan að vera búnir að sjá, að er ráðleysis fálm. Það næsta sem skeður ef Þjóðverj- ar hitta á að gefa vörpum meiri raunhæfa opnun er það, að þessi vörpubákn þeirra eru ofviða öllum skipum og óviðráðanlegar ef þær fyllast af fiski. Þetta sannar einnig að Þjóðverj- um hefur ekki ennþá dottið í hug að netagerð þarf að eignast fræði, sem skýra atriði eins og þetta. Það eru yfir 20 ár síðan ég tók eftir því að mismunun birðanna gat haft áhrif á opnun vörpunnar, og fyrir rúmum 10 árum kom fyrsta bréf mitt í Víkinginn, með mynd af flotvörpu, sem er nokkurnveginn fullvirk og kafar. Varpan sem er á myndinni er ekki stærðfræðilega rétt, þó ég næði þess- um árangri með henni. Ég var kominn það langt í athug- unum mínum, að ég var fullviss um það, að netfræðileg lausn lægi í vörpugerð í þessu formi og með þessari smávörpu komst ég upp á lag með að reikna út net til vörpu- gerðar. Skýringin er að sumu leyti og í stórum dráttum í fyrsta bréf- inu, og það sem ég hef skrifað síðan eru þær athuganir og þau rök, sem styðja þessa útkomu, einnig það sem ég hef sagt um snurpunætur bygg- ist á því, sem rétt stærðfræði í neti leggur manni upp í hendurnar. Ég hef blandað þessu innan um mark- lítið mas og getsagnir, til þess að örva menn til andmæla, ef ég færi með rökleysur. Því að sjálfsögðu getur einn maður ekki verið örugg- ur um það, að hafa fundið og leyst öll fræðileg spursmál í nýrri og ó- þekktri fræðigrein, hvað mikilli gagnrýni sem hann beitir á eigin verk. Þessvegna hef ég skrifað frekjulega, svo menn fengju áhuga á því að segja mér til syndanna, ef ég færi með rökvillur. Ef rökin voru góð, var erigin hætta að menn hefðu áhuga á því að svara þessum bréfum. Þessvegna hef ég í næði komið því í Víkinginn, sem koma þarf, til þess að tryggja það, að verkfræði- leg netagerð verður talin eiga upp- tök á íslandi. Eins og hr. G. Þ. minntist á, hnupluðu Þjóðverjar Larsensvörp- unni með því að breyta henni smá- vægilega. Þetta er einskonar lögmál. Stóru fuglarnir ræna smáfuglunum þegar þeir sjá sér fært. En þegar þeir vita ekki hverju er að hnupla eða hvernig þeir eiga að fram- kvæma hnuplið, þá verða þeir hver öðrum heiðarlegri. Ég hef aldrei ætlað og ætla ekki að gera neitt veiðarfæri úr neti, því það væri komið í hers hendur, áður en hendi væri veifað og misskilið. Aftur á móti get ég á hverjum tíma bent á, ef einhver þróun verð- ur í veiðarfæragerð (sem ekki er sjáanlegt að sé neinstaðar á upp- siglingu) að þetta hafi ég sagt í Víkingnum. Því menn verða að þekkja allt það, sem ég hef sagt og svolítið meira, áður en þeir geta unnið upp rökrétt veiðarfæri úr neti. Við íslendingar eigum meira und- ir því en aðrar þjóðir, að veiða fisk með viðráðanlegum tilkostnaði. Við erum á gelgjuskeiði sem sjálf- stæð þjóð og kunnum ekki hóf í stjórnunarmálum. Við lítum of mik- ið upp til annarra þjóða, sem guma af afrekum í veiðarfæragerð, en geta ekki kunnað annað og meira en ísl. netagerðarmenn. Ég hef annað veifið vikið að því, á hverja ég ætlaði að ráðast fyrir þá smán, sem net hefur orðið fyrir. Það er engum til að dreifa öðrum en þeim vísindastofnunum ríkisins í sjávarútvegsmálum, sem eru ráðgef- andi og eru með rannsóknarstörf, sem kosta of fjár á okkar mæli- kvarða, án þess að gera sér grein fyrir því, hvað þeir eru að fást við. Þetta er endalaus runa af mistökum, VÍKINGUR 208

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.