Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Síða 41
f 1 j ótur hann var að tileinka sér ný störf. Vorið 1967 hafði honum þó batnað svo, að hann tók á ný við skipstjórn á v.s. Hafþóri í nokkra mánuði, en í ágúst þetta ár hélt Jón til Englands til að sækja fyrsta rannsóknaskip okkar fs- lendinga, v.s. Árna Friðriksson RE 100. Jón tók við skipstjórn hans, þegar skipið var afhent hinn 5. september 1967 og var skipstjóri þess til dauðadags. > Jón varð ekki einungis vinsæll meðal síldveiðisjómanna fyrir það eitt að finna síld og eiga þannig drjúgan þátt í að skapa hinn mikla þjóðarauð fslendinga á undangengnum síldarárum. Vin- sældir hans voru ekki síður fólgn- ar í þeirri staðreynd, að hann var í senn manna hjálpfúsastur á stund erfiðleika og kunni öðrum betur að gleðjast með glöðum. Þessa eiginleika kunnu starfs-' bræðrur hans á sjónum vel að meta, enda munu nú margir sakna bjartrar og glaðlegrar raddar hans í talstöðinni á þeim erfiðleikatímum, sem nú steðja að síldveiðunum. Jón Einarsson var ákaflegafar- sæll skipstjóri og átti hina beztu kosti skipstjórnarmanna til að bera í ríkum mæli. Hann var góð- ur aflamaður, áræðinn, ef þess þurfti með, ágætur stjórnandi, ó- sérhlífinn, en jafnframt gætinn að því er varðaði skip og skips- höfn. Jón var maður söngvinn og vel hagmæltur. Fáa menn eða enga hef ég þekkt, sem glaðlynd- ari voru en Jón Einarsson, enda smitaði þessi lyndiseinkunn hans um skipið allt, svo hvorki ólund né geðillska þekktust, þar sem, Jón var annars vegar. Engumk duldist þó er vel til þekktu, að • nndir glaðlyndi hans bjó mikil skapfesta, sem stundum jaðraði við þrákelkni, en svo gott vald liafði hann á skapi sínu, að þessa urðu menn næstum aldrei varir, þótt samstarf væri liið nánasta. Jón hafði geysilegan áhuga á starfi sínu og lagði oft nótt við dag, til þess að ná þeim árangri, er hann sjálfur gerði kröfur til, enda var hann einn þeirra, er var VÍKINGUR KVEÐJA: Barði G. S. Barðason, skipsljóri Hann fæddist 19. febrúar 1904 á Siglufirði. Foreldrar hans voru merkis- Iijónin Ingibjörg Þorleifsdóttir frá Siglunesi og Barði Barðason, skipstjóri, þekktur hákarlaveiði- formaður og afburða sjómaður. Þau hjónin eignuðust alls 6 syni: 1. Skafta, sem dó 5 ára. 4. Barða, sem dó á fyrsta ári. 5. Barða Geirmund, skipstjóra. 6. Þórhall stýrimann, sem er á lífi og var stýrimaður hjá bróður sínum. Við fráfall Barða er horfinn af sjónarsviðinu einn af svipmestu og merkustu skipstjórum íslenzka fiskibátaflotans. Barði hóf formennsku á árabát aðeins 14 ára gamall. Bar þá strax á hæfileikum lians til mannaforráða. Hann lauk minnaprófi árið 1924 og hóf þá þegar skipstjórn. Árið 1927 lauk hann farmanna- prófi frá Stýrimannaskóla ís- lands með fyrstu einkunn. Hugur Barða stóð þá mest til siglinga á stærri skipum. það tamara að gera kröfur til sjálfs sín en annarra. Jóni þakka ég innilega áratugs giftudrjúgt og með afbrigðum ánægjulegt samstarf. Jón Einarsson átti því láni að fagna, að kvænast vorið 1941 Jónínu Gissurardóttur, hinni mestu ágætiskonu. Eignuðust þau tvö börn, Hrefnu, gifta Ríkharði Árnasyni, starfsmanni Landsím- ans og Einar, laganema við Há- skóla íslands. Þeim og öðrum að- standendum votta ég hér með mína dýpstu samúð. Jakob Jakobsson. Hann hafði um skeið verið í siglingum með sæmdarskipstjóra, Rafni Sigurðssyni. Af náinni kynningu minni við Barða tel ég að hann hafi í mörgum tilfellum tekið sér Rafn til fyrirmyndar í öllu því er bezt mátti verða, þó fór það svo að Barði ílentist eMri á kaupskipum heldur varð eftir- sóttur formaður á fiskiskipum. Hann var formaður: Á Elínu frá Siglufirði árið 1927, Nonna frá Siglufirði 1928, Sæfara frá Norðfirði 1929— 1930, Öldunni frá Stykkishólmi 1931—1936, Bjarna frá Hafnar- firði 1937, Þorfinni 1938. Árið 1939 keypti hann tréskip með gufuvél í Englandi. Sigldi því til Noregs, þar sem sett var í skipið dieselvél. Skipið hlaut nafnið Gunnvör. Þótti mörgum farkosturinn ekki fýsilegur, er hann kom til landsins. En þetta fór á annan veg. Gunn- vör reyndist hið mesta happaskip og svo aflasælt undir stjórn Barða, að hún var ávallt í toppn- um. 219

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.