Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 42
Þess má geta, að álit kunnugra var, að ekkert annað íslenzkt í'iskiskip af þessari stærð hafi nokkru sinni fært aðra eins björg í þjóðarbúið miðað við upphaflegt verð skipsins. Sameignarmenn Barða í útgerð Gunnvarar voru hinir þjóðkunnu athafnamenn Ingvar og Gunn- laugur Guðjónssynir á Siglufirði. Þá lét Barði, ásamt sömu fé- lögum, smíða vélskipið Ingvar Guðjónsson. Hafði hann umsjón með smíði þess og var síðan með skipið í 14 ár, bæði á síld og tog- veiðum, svo ogísiglingum.Reynd- ist Barði þar sem annars staðar happasælt í hvívetna. Árið 1962 tók Barði við að stjórna síldarleitinni. Þar var sem áður réttur maður á réttum stað. Ég naut þeirrar ánægju að vera með honum í því starfi um þriggja mánaða skeið. Þar mátti engu skeika, sama stundvísin, ár- veknin, trúmennskan og áður hafði verið í fyrri störfum. Barði var mikill trúmaður, minntist oft þeirra smáu, sem undir urðu í lífinu. Hann hafði þá óbilandi trú að gæfa fylgdi því að styðja að baki þeirra er bágt áttu, sérstaklega einstæðinganna. Þeir munu margir í kyrrlátri bæn óska honum góðrar ferðar yfir móðuna miklu. Barði kvæntist 14. des. 1929 Helgu Þorsteinsdóttur frá Álfta- firði vestra. Hún andaðist 28. apríl 1964. Sambúð þeirra hjóna var í alla staði hin elskulegasta og til fyrirmyndar. Heimili þeirra var staðsett á ýmsum stöðum eft- ir atvinnu húsbóndans, svo sem Reykjavík, Stykkishólmi, Siglu- firði og aftur í Reykjavík. Ég heimsótti hjónin á alla. þessa staði og naut ávallt hinnar beztu gestrisni. Minningarnar um þau hjónin orna mér til hinztu stundar. Barði og Helga eignuðust tvær dætur, Sigurlaugu, gifta Valdi- mar Friðbjörnssyni, skipstjóra, og Ingibjörgu er bjó föður sínum fagurt og friðsælt heimili til hinztu stundar. Ég vil við þetta tækifæri þakka Ingibjörgu sérstaklega fyrir vin- áttu hennar og gestrisni eftir að hún tók við hússtjórn. Barði tók virkan þátt í félags- málum. Hann sat á þingum Far- manna- og fiskimannasambands íslands sem fulltrúi Siglfirðinga, þar sem annars staðar reyndist hann fastur fyrir, samvinnuþýð- ur og tillögugóður. Auk allrar vinsemdar er ég naut hjá Barða vini mínum frá því við fyrst kynntumst, en það var árið 1927, og til hinztu stund- ar, vil ég sérstaklega minnast á að ekki gleymdi hann mér, þótt ég væri kominn hingað inn á Hrafnistu úr athafnalífinu. Hingað kom liann oft og ók mér þá í bifreið sinni út í náttúruna. Var þá margt rifjað upp frá fyrri dögum. Ef til vill sést bezt á þessu hver hans innri maður. Guð blessi minningu þessa mikilhæfa og góða drengs. Fjölskyldu hans og ástvinum óska ég allrar blessunar. Meö lijartans kveðju. Hrafnistu 10. júní 1969. Hallfreður Guðmundsson. ELDSTÓLPIMM - Framh. af bls. 217 bókstaflega hvarf, einnig stór- skemmdust bæði hornhúsin. Allir í flugvélinni fórust, utan lítill drengur, sem fannst í snjó- skafli skammt frá, en með svo brennd lungu, að hann gat ekki lifað. Tvær flugvélar höfðu rekist á yfir innsiglingunni til New York (The Narrows). Hin flugvélin, af gerðinni Constellation, féll niður, í stykkjum, á Millers-völl, Staten Island. Og mátti lengi á eftir tína upp parta á stærð við skipti- mynt, á nærliggjandi götum. Þar sem þotan kom niður í Brooklyn, fórust að minnsta kosti tveir menn, fyrir utan farþegana. Jólatréssali ágötuhorninuogmað- ur í bíl, sem brann. I bílflakinu fundust filmuleifar, og kom í ljós að maðurinn hafði verzlað með siðspillandi myndir. Hann hefir líklega haldið að hann væri kom- inn á logana. Fólki í næstu hús- um varð svo mikið um að það dró gluggatjöldin niður, til þess að þurfa ekki að horfa á þessi ósköp. En það eru ekki allir sem koma með heila kirkju með sér, yfir í eilífðina. En þetta var nú líka lúxusfar- rými. Smáfjólur úr ræðum danskra þingmanna: „Hér tala menn fram og aftur um framtíð þjóðarinnar og hér eru gerð- ar ráðstafanir til hagsbóta fyrir af- komendur vora. Nú vil ég spyrja, hvað hafa þessir afkomendur gert fyrir okkur?" „Ég vona að þingmenn beri það mikið traust til mín að enginn gruni mig um að skipta um skoðun annan- hvern mánuð, eins og ég hef skyrtu- skipti!“ Vonir glæðast á Parísarráðstefn- unni: „Þeir urðu sammála í aðalat- riðunum." „O-já, þeir urðu ásáttir um að vera ekki ásáttir! Við jarðarför konu einnar voru viðstaddir aðeins eiginmaðurinn og friðill hennar. Eiginmaðurinn var hinn rólegasti, en friðillinn mjög órólegur. Að jarðarförinni lokinni gekk eiginmaðurinn til hans, lagði hönd á öxl honum og sagði: „Ör- væntu ekki vinur minn, hver veit nema ég gifti mig aftur!“ „Reynsla mín hefur sanfært mig um að kvenfólkið þolir sársauka miklu betur en karlmenn.“ „Eruð þér læknir?“ „Nei, skókaupmaður." VÍKINGUR 220

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.