Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Side 44
t
Magnús Símonarson
HREPPSTJÓRI, GRÍMSEY
Hann lézt í Fjórðungssjúkrahúsi
Akureyrar hinn 1. júní sl. tæplega sjö-
tugur að aldri. Við fráfall Magnúsar
Símonarsonar hvarf úr hópnum einn af
elztu útsölumönnum og velunnurum
Víkingsins. Ekki þekkti ég hann per-
sónulega, en hinsvegar hafði ég, gegn-
um árin, myndað mér þær skoðanir um
manninn, sem ég fékk staðfestingu á
við lestur minningargreinar um hann í
Morgunblaðinu, eftir séra Pétur Sigur-
geirsson á Akureyri, en þar segir m.a.:
„Hann var reiðubúinn til þess að
greiða fram úr vandamálum og hjálpa,
ef það var á hans valdi að leysa vand-
ann. — Ráðagóður var hann og sann-
gjarn, hugsaði um heill og velferð Grímseyinga.. . Magnús Símonarson er
kvaddur með þakklæti og virðingu. — Þegar söngur fuglanna er mestur í
björgunum, og báran hjalar blítt við fjörustein í vogunum, kveður hann
eylandið, sem honum var svo kært, og siglir hinztu för inn í sólskinið."
Einfaldlega það, að Magnús Símonarson skyldi öll þau 30 ár, sem Vík-
ingurinn hefir komið út, halda tryggð við blaðið og greiða fyrir þeim ein-
tökum, sem þangað voru send, og senda árlega andvirði þess, sýnir ljósar
en margt annað hug hans til íslenzkrar sjómannastéttar, enda stundaði
hann sjálfur sjómennsku um langt árabil. Magnús Símonarson var stoð og
stytta Grímseyinga meðan hans naut við. Við kveðjum hann með þakk-
látum hug fyrir samstarfið.
G. J.
um í fleiri mínútur án þess að
liitta nokkra hræðu á ferð sinni.“
Sir Basil Smallpeice sem í árs-
lok 1965 tók við yfirstjórn hins
æruverðuga gamla fyrirtækis og
strax tók til ýmissar nýbreytni,
telur mikla viðskiptaiega hættu af
rekstri hinnar nýju „Queen
Elisabeth 2.“ Skip þetta, sem
hleypt var af stokkunum 1967
kostaði um 320 milljónir DM, og
verður aðeins hægt að halda í
rekstri með verulegum rikisstyrk.
En skipið er ioks á þessu hausti
(1968) frá skipasmíðastöð John
Brown í Glasgow. Af öðrum sex
skipum fyrirtækisins verða að-
eins „Franconia" og „Carmonia"
höfð í farþegaflutningum, en
hinum fjórum ætlað að stunda
skemmtiferðasiglingar.
En hvað sem hið siglingastolta
Bretland reynir að strekkja fána
sinn, víkja önnur siglinga fyrir-
tæki undan í samkeppninni, þar
sem sífellt fleiri farþegar velja
fremur sjö-stunda flug heldur en
sjö-daga-skipsferð, einkum með
tilliti til þess að kostnaður er
svipaður eða um 1,900 DM í
hvoru tilfellinu sem er. Og gera
má ráð fyrir að lokaátökin um
hinar fornfrægu skipaferðir séu
á næsta leiti. Á næsta ári munu
fyrstu Jumbo-Jet flugvélar liefja
ferðir sínar með 366 og síðar 490
farþegarými, frá Frankfurt til
New York og Chicago.
Axel Bitch-Christensen for-
stjóri „Deutsche Atlantik Linie“
tilkynnti að í haust verði „Hanse-
atic“ (25,300 brt.) tekið út úr
N-Atlantshafs farþegaflutning-
um og sett í skemmtiferðasigl-
ingar. Allar fyrri slíkar ferðir
þess voru 90 til 95% fyrirfram
pantaðar og gáfu arð. Fyrir „Co-
lumbus-ferðina" til Trinidad og
Jamaika kostaði ódýrasti farmið-
inn 2,800 DM. En í beinni yfir-
ferð í Atlantshafsferð frá Cux-
haven til New York og til baka
gefur sami farseðill af sér 1,900
DM.
Hið nýja skip fyrirtækisins
„Hamburg" (23,500 brt.) sem nú
er verið að fullbyggja hjá Deut-
sche Werft á ekki að fara í far-
222
þegaflutninga. 1 jómfrúferð sína
í apríl 1969 á hún að fara til suð-
ur-Ameríku. Um borð verða að-
eins velgreiðandi frumferðar-
gestir. Ódýrustu farseðlar: 5,500
DM.
„Norddeutsche Loyd“ skipa-
fyrirtækið gerir sífellt meira að
því, að nota skip sín „Bremen“og
„Europa" í skemmtiferða sigl-
ingar. Þannig fer t. d. „Europa“
í ferðir til Svartahafs, til Nord-
kap um Island til Spitzbergen. Og
á árinu 1969 á ,,Bremen“ ein-
göngu að stunda siglingar um
Karabiska-hafið.
Sem þakklætisvott fyrir fjár-
hagslega ríkisábyrgð 1957 liafði
Richard Bertram forstjóri ND-
Loyd lofað að draga sem minnst
úr N - Atlantshaf sf arþegaf lutn-
ingaferðum — um samning var
ekki að ræða. Til þess að nálgast
þessa siðferðislegu skuldbind-
ingu, mun fyrirtækið ábyrgjast
sjö ferðir til New York á næsta
ári (1968: ellefu). I síðustu ferð
„Bremen“ 1. ágúst frá Bremer-
haven voru 980 farþegar eða um
90% af farþegarýminu. En það
er um það bil sami farþegafjöldi
eins og Lufthansa og Pan Ameri-
can flytja frá vestur-þýskum
flugvöllum til Bandaríkjanna á
einum degi.
Þýtt: Halld. J.
VÍKINGUR