Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 6
Hugarástand smyglarans
um“, sykurhúð og súkkulaðihjúp-
ur um vínblöndu.
Tollararnir verða æfir og neyða
þig til þess að greiða himinháan
toll af smygluðu áfengi.
Spænskir tollþjónar hafa aftur á
móti lítinn áhuga á brennivíni.
Það sem þeir óttast mest eru sjón-
varpstæki. Ferðamenn geta — og
gera það, hæglega selt þessi tæki á
Spáni með notalegum hagnaði,
sem síðan má nota í hið ljúfa líf á
Spáni.
Maður sem kemur að landa-
mærunum með slíkt tæki, getur
sleppt öllum útskýringum. Þeir
eru vissir um að hann ætlar að
selja það á Spáni og segir svo bara
á landamærunum að tækinu hafi
verið stolið.
Hollenzkir tollverðir eru hinir
mildustu, nema þeir mega ekki sjá
vasahnífa. Sama er að segja um
vissar tegundir barnaleikfanga,
t.d. leikfangabyssur. Þeir komast í
ham, því á þeim er bannaður inn-
flutningur.
Norskir og sænskir tollverðir
virðast óttast lyf manna mest. Sá
sem ekki hefur læknaskýrslu um
lyfið, hann er í vandræðum.
Við höfum hér sniðgengið að-
gerðir tollvarða og yfirvalda gegn
eiturlyfjasmygli, en maður með
pillur getur lent í miklum vand-
ræðum á sænsku og norsku
landamærunum.
Lög um innflutning lyfja eru
einhver þau ströngustu sem
þekkjast í Evrópu.
í Vestur-Þýskalandi eru toll-
verðir yfirleitt ekki kreddufullir,
en menn ættu þó að forðast að
fara inn í landið á skóm úr krókó-
dílaskinni, eða með töskur úr hinu
sama. Vesturþjóðverjar hafa und-
irritað alþjóðasáttmála um að
þyrma villtum dýrum og náttúru.
(International Wildlifa protecti-
on) og— þeir meina það.
Minjagripir
Það er siður margra sjómanna
og ferðamanna að hafa með sér
minjagripi. Fornir, merkilegir
munir eru falir víða um lönd, fyrir
lítið verð.
Menn skyldu þó varast að
kaupa slíka muni í vissum löndum
og þá sérstaklega í Grikklandi og í
Tyrklandi.
Það getur haft í för með sér
óheppileg eftirköst.
í þessum löndum getur aðeins
tvennt hent þá sem kaupa þjóð-
lega, forna minjagripi.
Að þeir hafi keypt falsaðar eft-
irlíkingar — og að tollurinn
hremmi þá.
Það síðarnefnda er verra.
Mjög ströng lög gilda í þessum
löndum um útflutning á forn-
minjum og reglur eru ótrúlega
flóknar og strangar.
Minjagripir, sem seldir eru
ferðamönnum eru því yfirleitt
innfluttir frá Hong Kong, Japan,
eða Þýskalandi, þar sem menn
láta sig ekki muna um að gera tréð
sem féll í gær, nokkur þúsund ára
og gipsið, sem hellt var í mótið í
gær, verður að marmara, sem leg-
ið hefur um aldir í jörðu. Menn
VÍKINGUR
önnumst viðgerðir á rafvél-
um og raflögnum fyrir skip
og í landi.
Góðir farmenn. Vönduð
vinna.
VOLTI H/F
Norðurstfg 3, símar 16458
og 16398
ÁNANAUSTUM
SlMI 28855
Elzta og stærsta veiSarfæra-
verzlun landsins.
294