Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 47
Joe talaði meira um pólitík en nokkur annar. Það hafði hann lært þegar hann var í hernum og það var orðið skelfing langt síðan og vatnsósa gólfin í búðinni voru einsog árhringir í mikilli og lang- vinnri eilífð. Þau voru úr krossviði og smám saman slitnaði eitt lagið af öðru. Við kassann var slitið mest, þar voru ein fimm lög slitin upp til agna og Joe hafði neglt þunnan krossvið þar yfir og hann var líka búinn að slitna niður um eitt lag eða tvö. Gólfin eru ágæt. Þau eru úr rauðviði, fimm þúsund ára göml- um og þau munar ekkert um einn gamlan hermann, sem selur kaffi, eina litla ævi, sagði Joe, þegar einhver spurði hvort hann ætlaði ekki að fara að endurnýja gólfin. — Það geri ég þegar tuskurnar í Washington byggja brúna yfir flóann. Þá koma stjórnarpeningar hingað líka. Það voru hinir einu og sönnu peningar. Aðrir peningar voru í vösunum á hinum samansaum- uðu og það taldist til tíðinda ef einhver átti aur, sem hann vildi eyða. Stjórnin var öðruvísi. Hún vildi eyða. Grafa djúpt í drulluna og mýrarnar til þess að búa til vegi til i þess að aka á hergögnum. Fólkið fékk að nota þá líka, en fyrst og fremst voru þeir fyrir herinn. — Þú ætlar að reyna að komast út, sagði Joe þegar hann hafði lokið við krabbasúpuna. — Það hefur verið lítið að fá og strákarnir eru flestir í bælinu hjá kerlingun- um nema þeir sem eru í Virkinu. Það hefur lítið verið reynt. IV. Hann kepptist við bátinn. Honum ofbauð í raun og veru allur hamagangurinn. Hvað lá á? Helst minnti hann á unga konu, sem er að undirbúa jarðar- för. Allt var skúrað og fægt. Líka málað, því útförin átti að verða sómasamleg. Svona hafði það verið úti í eyjum og eins var það hér. Ef byrjað var að dytta að húsi hér um slóðir, þá hafði einhver sálast. Jarðarfarirnar voru stór- kostlegar og sumar stóðu í marga daga, einsog líkin, því ættingjar komu víða að. Mest var um að vera hjá ítölunum, sem héldu þjóðhátíð ef einhver dó og veisl- urnar stóðu yfir í marga daga. Hann var að undirbúa bát. Samt fann hann að hann var að undirbúa sína seinustu ferð. Þetta gat ekki gengið svona öllu lengur. Honum kom ferjan á Staten Is- land í hug. Líka hún, svona stór og beinamikil, búin úr öllum þessum sveru bitum og járnplötum. Líka hún færi sína síðustu ferð, hvort sem það var þetta árið eða hitt. Stríðið varð að taka enda. Stundum langaði hann til þess að leggja frá sér verkfærin og ganga burtu. Grípa fram fyrir hendurnar á forlögunum. Líka gat hann selt bátinn, selt húsið, en innst inni vissi hann að enginn vildi kaupa. Menn vildu báta úr harðplasti, ekki fúna, vatnsósa trébáta. Hver keypti hús í negrahverfi? Hús sem var að sökkva í rotna, vota jörð- ina? Nei, enginn myndi kaupa svona hús og hann kepptist við að ljúka við bátinn. Hann varð að vera í fullkomnu lagi í sinni seinustu ferð. Kvöld eitt sat hann og reykti. Það var byrjað að dimma og hann virti fyrir sér andlit sitt í svörtu vatninu. Hann fann að stundin nálgað- ist. í kvöld myndi hann koma við hjá Joe til þess að tryggja sér menn til þess að sjósetja á morgun. Og svo? Hann fann djúpt fyrir ein- manaleik sínum og kvöl. Enginn myndi halda jarðarför, þegar hann færi. Enginn myndi mála húsið hans, þaðanaf síður leika á fiðlu fyrir fullu húsi af drukknum syrgjendum. Hann var einn. Þegar hann færi væri það fækkun, og á næstu mínútu myndi fæðast barn, svo að þjóðskráin myndi ekki breytast nema fáeinar sekúndur og hann fleygði frá sér stubbnum og reyndi að hitta sjálfan sig í ennið og myndin leystist upp. Hann ætlaði ekki til Joe. Næsta morgun ætlaði hann í virkið. Það var skárra en að deyja án jarðarfarar. Og hann lötraði hægt yfir mýrina í átt að húsun- um. — Ertu ekki að verða tilbúinn? spurði einhver utan úr rökkrinu. — Nei, ætli það taki því í haust. Rússarnir eru búnir að skrapa allt upp hvort eð er, sagði hann og var þakklátur fyrir að þessu var lokið í bili. SÖLUSAMBAND ÍSLENZKRA FISKFRAMLEIÐENDA stofnað í júlímánuði 1932, með samtökum tisktramleiðenda, tll þess að ná eðlilegu verði á úttluttan fisk landsmanna. Skrifstofa Sölusambandsins er í Aðalstræti 6. Símnetnl: FISKSÖLUNEFNDIN Síml: 11480 (7 línur). Leiðrétting: Á bls. 271 í síðasta tbl. stóð að eigandi plastbátsins ÞOR- STEINN RE væri Björn Þor- steinsson. Hið rétta er að hann heitir Guðbjöm Þorsteinsson (Bói) og væntanlega eru þá flestir sjómenn betur með á nótunum. ritstj. VÍKINGUR 335

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.