Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 39
er hann reit þar um borð. Hitt var „Laurer4, sem síðar var endurskírt „Tropic Bird“, keypt og endur- byggt af Frank Burnett frá Van- couver, sem sigldi því á suðrænum slóðum, þar sem hann safnaði forngripum, og varð frægur fyrir, en það skip er nú varðveitt í forn- gripasafni háskólans í British Columbia. En hvað snertir Casco, þá var því skipi bjargað frá eyðileggingu, til þess að gegna enn illræmdara hlutverki en að drepa seli. Slægur og óprúttinn ævintýramaður, sá stórkostlega möguleika í sam- bandi við hinn rómaða hraðsigl- ara. Hin langa og vogumskorna strönd við Washington og British Columbíu, var tilvalin til þess að smygla Kínverjum inn í landið. Auk þess var geysimikil eftirspurn eftir ópíum í Norðurameríku. í borgum Bandaríkjanna og Kan- ada var óþrjótandi markaður fyrir þetta fíkniefni og verðið afar hátt. Hinn nýi eigandi að Casco stundaði þennan mjög svo ábata- sama, en ólöglega bisness af miklu kappi. Hinar ótrúlegustu sögur gengu manna á meðal, um ævin- týralegar og bíræfnar smyglferðir skipsins og landanir við strend- urnar í skjóli myrkurs. Einnig um kappsiglingar við eftirlitsskipin, en í þeim eltingaleik hafði Casco ávallt betur. Loks tók strandgæsl- an nýja tegund skipa í notkun og nú skyldi Casco tekin. Svo var það dag einn, er Casco var enn á ferð, með verðmætan farm af Kínverjum og ópíum, elt af varðskipi, eins og svo oft áður. En skipstjórinn á smyglskipinu þóttist nokkuð öruggur um sig, því að nokkuð langt var á milli skip- anna. Þá varð það að vindinn lægði og skipið varð ferðlaust. En t Lystisnekkjan Casco. Byggð í Vancouver 1885. Lengd 95 fet. Breidd 32 fet. Djúprista 12 fet. Ganghraði um 15 hnút- ar, þegar mikið lá við og vindur hagstæður. VÍKINGUR 327

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.