Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 14
Eftir augnablik hífir spilið og hendin
klemmist. Vinnuvettlingar eru hér
engin vörn.
skilningi hjá þessum aðilum og
leitt til jákvæðra umræðna um
þessi mál, sem síðan hafa haft úr-
bætur í för með sér.
Strönd
í tveimur síðustu skýrslum
nefndarinnar hefur verið drepið á
strönd skipa og báta, sem að mati
nefndarinnar hafa oft borið vott
um skort á aðgæslu og árvekni við
siglingastjórn. Enn erástæða til að
árétta fyrri áskoranir til skip-
stjórnarmanna um að þeir sýni
fyllstu ábyrgðartilfinningu í þess-
um efnum. Einkum ber að brýna
fyrir mönnum að láta ekki stjórn
skips í hendur manna, sem ekki
hafa réttindi og þekkingu til að
annast hana. Einnig er nauðsyn-
legt að vakthafandi skipstjórnar-
maður skili greinilega af sér vakt-
inni þannig að ekki leiki vafi á um
stefnu eða stöðu skips.
Tilkynning um slys
Að marggefnu tilefni minnir
Rannsóknarnefnd sjóslysa á, að
skylt er samkvæmt siglingalögum
að tilkynna yfirvaldi (dómara,
sýslumanni eða bæjarfógeta) um
Bak við manninn er járnharður polli.
— Hvað skeður þegar lykkjan um
vinstri fót hans herðir að og hann fellur
aftur yfir sig?
Skyrtuermarnar eiga annaðhvort að
vera hnepptar eða brotnar alveg upp.
Skrúfbolti í spilinu grípur ermina.
Handleggurinn og maðurinn fylgir
með.
slys, er orðið hafa um borð í skip-
um strax og kostur er þannig að
rannsókn geti hafist sem fyrst. Því
fyrr sem sjópróf fara fram þeim
mun líklegra er að þau kalli fram
rétta mynd af atburðum. í þessu
sambandi ber einnig að brýna
fyrir skipstjórnarmönnum að skrá
greinilega lýsingu á slysum þegar í
stað í leiðarbók eða dagbók
Engin öryggislína frá skipinu eða
maður á dekki, sem gefur honum
gætur. Hvenær fellur hann aftur fyrir
sig í sjóinn eða á steyptan hafnar-
bakkann. Slysahættan er yfirvofandi.
skipsins. Er það mjög mikilvægt
að fyrir liggi við sjópróf slík
skýrsla, sem gerð er rétt eftir að
slys hefur orðið. Því miður er þetta
mjög vanrækt og er skráðum lýs-
ingum oft mjög ábótavant. Getur
nefndin ekki stillt sig um að birta
eina „lysingu" á alvarlegu slysi
um borð í bát sem dæmi um það
hvernig ekki eigi að gera skýrslu
um slys. Umrædd færsla í dagbók
bátsins hljóðaði svo:
„Farið í róður kl. 6.30. Við
fyrstu bauju fer Binni í spilið og
slasast. Farið út aftur kl. 9.30.“
Styttra gat það varla verið og
hefði þarna átt að fylgja greinileg
lýsing á slysinu og aðdraganda
þess.
Slys á skuttogurum
Slys á skuttogurum eru sem
betur fer miklu færri en áður. Þó
urðu tvö banaslys, þar sem menn
tók út af skuttogurum. I hvorugu
tilvikinu var notaður öryggisbún-
aður, sem ætlaður er til að koma í
veg fyrir slík slys og fyrirskipaður
var með reglugerð frá 10. júní
1975, þ.e. öryggisbelti með líflínu
og björgunarvesti. Þessi útbúnað-
VÍKINGUR
302