Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 17
þeim. Á síðasta ári beindi nefndin
því til Samgönguráðuneytisins að
settar yrðu reglur, sem skylduðu
alfarið að hafður yrði öryggisloki
við línu- og netaspil á öllum skip-
um og bátum, sem nota slík spil og
eru stærri en 15 rúmlestir brúttó.
Er það von nefndarinnar að slíkar
reglur verði settar hið fyrsta.
RANNSÖKUÐ
SJÓSLYS 1976
Atvik og álit
nefndarinnar um orsakir
slysanna
Maður slasast á
netabát
Nr. 1. — 23. mars 1975. — Álit
nefndarinnar: Telja verður að ör-
yggisloki hefði komið í veg fyrir
slysið.
305
Maður tvíhandleggs-
brotnar í netaspili
Nr. 2. — 24. apríl 1975. — Álit
nefndarinnar: Sami maður stjórn-
ar hér spili og dregur af, en slíkt er
ætíð varhugavert. Telja verður að
öryggisloki hefði komið í veg fyrir
slysið. Enn er rétt að vara menn við
að vera með hendur í veiðarfærum,
sem verið er að hífa eða slaka.
Háseti slasast á
vöruflutningaskipi
Nr. 3. — 1. ágúst 1975. — Álit
nefndarinnar: Slys þetta má rekja
til þess að gúmmí var ekki á stig-
anum og hann hvorki skorðaður né
bundinn.
Maður slasast á
vöruflutningaskipi
Nr. 4. — 17. september 1975. —
Álit nefndarinnar: Orsakir slyssins
óljósar.
Myndin sýnir öryggisloka við háþrýstispil. Rannsóknarnefnd sjóslysa er ekki
kunnugt um að slys hafi orðið við netaspil, sem útbúið er með öryggisloka.
Takmarkið hlýtur að vera, að slíkur búnaður verði um borð í öllum bátum.
Eldur í skuttogara
Nr. 5. — Föstudaginn 26. septem-
ber 1975. — Álit nefndarinnar:
Ekki er unnt að slá neinu föstu um
upptök eldsins þótt líkur bendi til
að kviknað hafi í út frá kúplingu.
Eðlilega var brugðist við eldinum.
Háseti missir fót
á skuttogara
Nr. 6. — Fimmtudaginn 5. febrú-
ar 1976. — Álit nefndarinnar: í
sambandi við þetta slys eru þrjú
atriði einkum athugaverð: 1)
Óeðlilegt að sami maður sinni
samtímis því að hífa á kopp og
stjórna spili. 2) Staðsetning
stjómloka fyrir umrætt spil óeðli-
leg miðað við að híft sé fyrir aftan
spilið. 3) Varast ber að teygja sig
yfir spilkoppa í gangi með törnum
á.
Maður fótbrotnar á
síðutogara
Nr. 7. — Mánudaginn 8. mars
1976. — Álit nefndarinnar:
Óhappaslys.
Maður slasast á netabát
Nr. 8.— Faugardaginn 27. mars
VlKINGUR