Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 21
Pater Noster vitinn, sem í meira en heila öld lýsti sjófarendum við strendur Svíþjóðar. Viti friðlýstur Hinn frægi sænski viti PATER NOSTER hefur nú verið friðlýst- ur, þ.e.a.s. vitabyggingin. Ut af vesturströnd Svíþjóðar er svæði með um það bil 200 skerjum, sem bera samheitið Pater Noster. Skerin voru mjög hættuleg skip- um, sem leið áttu um Kattegat og Skagerak, meðan nútíma hjálpar- tækja naut ekki við. Sjófarendum til leiðbeiningar fram hjá skerjunum var Pater Noster vitinn reistur árið 1868 og í rúm hundrað ár lýsti vitinn sjófar- endum og nú mun vitinn leystur frá „störfum“ með nýjum, full- komnum ljósvita. VÍKINGUR Margar sögur eru um skipstapa á þessum slóðum frá fyrri öldum og um 1600 kvörtuðu þeir sem bjuggu á ströndinni við Pater Noster undan því að það væri orðið þeim ofviða, fjárhagslega að fæða og klæða skipbrotsmenn. Pater Noster vitinn létti þessum Ifr Hinn mikli vitasmiður, Gustaf von Heidenstam, yfirverkfræðingur byggði Pater Noster vitann og er minningar- tafla yfir dyrum, sem ber nafn hans. Gustaf von Heidenstam var faðir hins fræga sænska skálds og rithöfundar Verner von Heidenstam. 309

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.