Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 12
„Eru nokkrir Yorkshire-menn meðal ykkar?“ Enginn svaraði og læknirinn hélt áfram máli sínu: „Ég þarf á að halda manni frá Yorkshire um þrjátíu og fimm ára gömlum. Ég þarfnast hans til þess að lengja líf- tóruna í gamalli konu, sem er mjög veik. Hún er meðvitundarlaus og kallar í sífellu á son sinn, sem hún hefur ekki séð í tíu ár. Ef við getum ekki fundið einhvern, sem getur látist vera sonur hennar, kann svo að fara, að við verðum að veita henni greftrun á hafi.“ Einn mannanna, sem bjargað hafði verið, háseti af Hafgúunni sagði: ,Ja, það eru til Yorkshire- menn og Yorkshiremenn. Ur hvaða hluta Yorkshire er gamla konan ættuð?“ „Hún er frá Whitby.“ „Þá held ég að ég geti orðið að liði. Ég er frá Whitby.“ „Hve gamall ertu, piltur minn?“ „Ég er þrjátíu og fjögurra, herra minn.“ „Það passar ágætlega. Komdu hérna með mér.“ „Hvaða nafn á ég að hafa, herra?“ „Peter Richardson. Endurtaktu nafnið nokkrum sinnum svo þú gleymir því ekki.“ „Það er óþarfi,“ svaraði piltur- inn lágróma, „ég er Peter Rich- ardson.“ Og Peter Richardson fann móður sína og gleði hennar varð svo mikil, að hún náði fullri heilsu og lifði enn í 18 ár. Það var engu líkara en hönd forlaganna hefði skipulagt skip- skaðana fimm í röð — án þess að eitt einasta mannslíf glataðist — til þess að sonur og sæfari gæti hitt dauðvona móður sína. Þeir, sem ekki trúa þessari ótrú- legu sögu geta fengið hana stað- festa í skrifstofu sjómála í borginni Canberra í Ástralíu. Æ.R.K. „Ef hann endilega vill hafa kirkjubrúðkaup,“ sagði heimsvön móðir við dóttur sína, „þá látum hann fá það. Maður á alltaf að virða síðasta vilja mannsins.“ * Hinn þekkti prófessor Parkinson (þessi með lögmálið sitt) hefir stúderað heilmargar „toppfígúr- ur“ þessa heims og komist að þeirri niðurstöðu, að þegar þeir hafi loksins náð „toppnum“, séu þeir orðnir alltof útslitnir til þess að gera nokkurn skapaðan hlut til framfara og endurbóta. * Maður stóð fyrir rétti, kærður fyrir ógætilegan akstur. „Ég skal láta yður vita það hr. dómari,“ sagði hann móðgaður, „að það sem ég veit um bíla og akstur væri nóg efni í heila bók.“ „Og það, sem þér ekki vitið um bíla og akstur,“ svaraði dómarinn um hæl, „væri nóg til að fylla heilt sjúkrahús.“ * Maður nokkur hringdi í ráðu- neyti og heimtaði að fá að tala við ríkisstjórnina. „Eruð þér með fullu viti?“ spurði ráðuneytisstjórinn undr- andi. „Nei, reyndar ekki. En þarf maður endilega að vera það?“ Gigtin lá milli lands og eyjar Sigurður gamli sjóari, sem hafði árum saman siglt um höfin sjö, var nú kominn í land. Gigtin tók að angra hann og svo fór að hann leitaði læknis. Við skoðun kom í ljós, að hann var allmikið tattóveraður að góð- um sjómannasið. En það frumlega var að það voru heimsálfurnar og lá vestur- hvelið niður eftir bakinu. „Hvar liggur gigtin,“ spurði læknirinn. , Ja, hún liggur nú um alla Suð- ur-Ameríku, en ég er mest kvalinn í sundinu á milli Jamaica og meg- inlandsins!“ ¥ Það hefur komið sér iila fyrir marga, að geta ekki haldið kjafti — aftur í tímann! * Það var í Teheran 1943 að þeir sátu og röbbuðu saman Churchill, Roosevelt og Stalin. Roosevelt hafði orðið: „1 gamla daga þurfti þrjú atriði til að vinna stríð: Peninga, meiri peninga og ennþá meiri peninga. Og í dag eru það líka þrír hlutir, sem við þurfum: Fólk, peninga og tíma.“ „Þá vinnum við,“ svaraði Churchill gamli um hæl. Sovét hefir fólk, Ameríkaninn peninga, — og við Bretarnir, — plenty of time!“ 300 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.