Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 35
Varðveisla gamalla björgunartækja: „Aðalfudnur SVFÍ ályktar að tími sé til þess kominn að tryggja sem best að eldri björgunartækj- um, en nú úreltum, sé haldið til haga, þar sem gildi þeirra til fróð- leiks, svo og safnverðmæti þeirra vex nú óðfluga. Hið sama gildir raunar einnig um gerðabækur og önnur rituð gögn félagsins og deilda þess. Treystir fundurinn því, að hafist verði handa í þessu efni eigi síðar en á komandi afmælisári.“ „Aðalfundur SVFÍ 1977 felur stjórn félagsins að fylgja því fast eftir við Póst- og símamálastjórn, að hið fyrsta verði hafist handa um úrbætur á fjarskiptabúnaði þeirra strandarstöðva, sem enn eiga í erfiðleikum með að rækja hlutverk sitt í framkvæmd Til- kynningarskyldunnar. Vitnar fundurinn í þessu sambandi til ákvæða 7. greinar laga um til- kynningarskyldu íslenskra skipa. Jafnframt beinir fundurinn þeirri áskorun til skipstjórnar- manna, að þeir sinni betur hlust- vörslu um borð í skipum sínum en nú er raun á.“ Aðalfundur SVFÍ samþykkti að skora á Veðurstofu íslands að bæta eftir föngum veðurþjónustu VÍKINGUR Tilkynningaskylda flugfara: „Að gefnu tilefni, nú síðast vegna þyrluslyss á þessu ári felur aðalfundur SVFÍ stjórn félagsins að leita álits flugmálastjórnar á því, hvort ekki sé ástæða til að skerpa að mun gildandi ákvæði um tilkynningarskyldu flugfara. Þyki slíkt æskilegt og gerlegt, verði því komið í framkvæmd hið fyrsta.“ á svæðinu frá Skoruvík til Dala- tanga. Álitsgerð: Á þessu svæði er að- eins ein veðurathugunarstöð við sjó og er hún mjög illa staðsett fyrir sjófarendur, þar sem hún er staðsett innst í Vopnafirði. Þess vegna vill fundurinn beina því til Veðurstofu íslands að hún komi upp athugunarstöð úti í Strand- höfn eða Bakkafirði og Ketils- stöðum í Hlíð. Með þessum stöðvum væri komin á allgóð veðurþjónusta fyrir sjófarendur á þessu svæði. Var þessi á kjörskrá í N.-Noregi? 323

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.