Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 15
„Slaka á vírnum!" Skip leggst frá
bryggjunni og það stöðvast ekki við
lykkju um fótinn.
ur var heldur ekki til um borð þótt
skipin hefðu verið skoðuð og
fengið haffærisskírteini. Nefndin
telur fulla ástæðu til að brýna fyrir
sjómönnum, einkum skipstjórn-
armönnum að ganga ætíð úr
skugga um að þessi búnaður sé
fyrir hendi um borð í skipunum og
hann jafnframt notaður.
í þessu sambandi vill nefndin
skýra frá því, að henni hefur borist
vitneskja um að einn togaraskip-
stjóri, Áki Stefánsson á b.v. Slétt-
bak EA-304, gefi mönnum sínum
ströng fyrirmæli um að nota ör-
yggisbúnað þann, sem skylt er að
hafa um borð, við vinnu sína og
láti ekki viðgangast að út af sé
brugðið. Vonandi eru þeir fleiri
skipstjórarnir, sem þetta gera, en
hér er á þetta bent þeim til eftir-
breytni, sem hikandi hafa verið í
þessum efnum.
Létt björgunarvesti
Þegar hin tíðu slys á skuttogur-
um voru til umræðu á árunum
1974—1975 beitti Rannsóknar-
nefnd sjóslysa sér m.a. fyrir því að
menn á þessum skipum notuðu
við vinnu sína létt björgunarvesti,
sem unnt var að hafa innan
Hann heldur að hann sé á leiðinni
UPP. Raunveruelga er hann á leiðinni
NIÐUR vegna fótabúnaðarins og olíu-
borna stigans. Hvaða vernd veita
lausar töflur, ef hann skyldi bera
þungan vélahlut og MISSA hann?
hlífðarfata. Með reglugerðinni
um öryggisráðstafanir á skuttog-
urum frá 10. júní 1975 var boðið
að jafnan skuli vera til 5 slík
björgunarvesti af viðurkenndri
gerð um borð í þessum skipum.
Nefndin telur, að reynslan hafi
ótvírætt sannað ágæti þeirra
björgunarvesta, sem hér um ræðir,
en þau eru fyrirferðarlítil og
mönnum ekki til trafala við vinnu.
Því þykir nefndinni full ástæða til
að hvetja sjómenn á hvers konar
skipum og bátum, ekki síst smá-
bátum, til að fá sér slík vesti og
nota þau við vinnu sína. Jafnframt
ber að brýna fyrir öllum, sem þau
nota, að fylgjast ætíð með ástandi
þeirra og ganga úr skugga um að
þau séu í fullkomnu lagi.
Vörn gegn
þilfarshálku
Eins og skýrt var frá í síðustu
skýrslu var nefndin að gera til-
raunir með ákveðna tegund
málningar til að koma í veg fyrir
hálku á þilfari, en mörg slys hafa
orðið á skuttogurum, er menn
hafa hlotið byltu á þilfari þeirra.
Hér er um að ræða sérstaka plast-
málningu. Var hún reynd um
nokkra hríð um borð í b.v. Sólbak
EA-5 og í bréfi skipstjórans, Stef-
Skipalestin er
kannski 30 metra
djúp og „heizið“
sveiflast að mann-
inum óvörum. Um
11% af öllum slys-
um á sjó koma
fyrir á svipaðan
hátt.
VÍKINGUR
303